Eyþór Arnalds orðinn kjölfestueigandi Morgunblaðsins

Eyþór Arnalds hefur keypt hlut Samherja, Síldar­vinnslunnar og Vísis í Árvakri, útgáfu­félagi Morgun­blaðsins.

Eyþór Arnalds á nú 26,6 prósent í útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Eyþór Arnalds á nú 26,6 pró­sent í útgáfu­fé­lagi Morg­un­blaðs­ins. Mynd: Birgir Þór

Breyt­ing­ar hafa orðið á eign­ar­haldi í Þórs­mörk ehf., sem er eig­andi Árvak­urs hf., út­gef­anda Morg­un­blaðsins, mbl.is og fleiri miðla. Sam­herji hef­ur selt all­an hlut sinn til Eyþórs Arn­alds.

Þetta kemur fram í Morgun­blaðinu, og á mbl.is, í dag.

Sam­herji átti 18,43% hlut í gegn­um fé­lagið Katt­ar­nef ehf. og fer með þessu úr hlut­hafa­hópn­um. Að auki kaup­ir Eyþór 6,14% hlut Síld­ar­vinnsl­unn­ar hf. og 2,05% hlut Vís­is hf., alls 26,62%, að því er segir í frétt Morgun­blaðsins.

Samanlagt á Eyþór Arnalds nú 26,6 prósent í Árvakri. Í tilkynningu segir Eyþór að hann telji fram­tíðina í fjöl­miðlun felast í samspili nýmiðlunar og hefð­bundinnar útgáfu dagblaða og rótgróinna miðla.

„Fjöl­miðlar og mik­il­vægi öfl­ugr­ar sjálf­stæðrar fjöl­miðlun­ar hafa lengi verið mér sér­stakt hugðar­efni. Mér er það því fagnaðar­efni að koma með þess­um hætti að Árvakri, út­gef­anda Morg­un­blaðsins, eins elsta dag­blaðs lands­ins sem gefið hef­ur verið óslitið út síðan 1913, og fleiri miðla. Ég tel fram­tíðina fel­ast í sam­spili hefðbund­inna miðla á borð við dag­blöð og svo nýmiðlun­ar, svo sem á net­inu. Í haf­sjó mis­áreiðan­legra fregna sem bein­ast að fólki úr öll­um átt­um verður gildi traustra og ábyggi­legra fjöl­miðla skýr­ara og starf­semi þeirra mik­il­væg­ari upp­lýstri umræðu í lýðræðis­sam­fé­lagi. Með sína fjöl­breyttu út­gáfu­starf­semi er Árvak­ur í kjör­stöðu til að nýta styrk hvers og eins miðils, bæði til afþrey­ing­ar og miðlun­ar ábyggi­legra frétta og ít­ar­legra um­fjall­ana. Árvak­ur er út­gáfu­fé­lag með langa sögu og á fram­tíðina fyr­ir sér,“ segir Eyþór.

Samkvæmt lista fjölmiðla­nefndar yfir hluthafa Árvakurs, er stærstu eigendur félagsins nú, Ísfélag Vestmanna­eyja, með 13,43 prósent hlut, og Hlynur A ehf., með 16,3 prósent hlut. Félögin eru bæði í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur að stærstum hluta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár