Engin formleg beiðni frá Ólafi Ólafssyni um að koma fyrir nefndina

Ólafur Ólafsson hefur ekki óskað form­lega eftir því að koma fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd. Því liggur ekki fyrir hvort eða hvenær það muni ger­ast né hvort sá fundur verði opinn fjöl­miðlum.

Jón Steindór Valdimarsson, varaformaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ólafur Ólafsson hefur ekki sent form­lega beiðni til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar um að fá að koma fyrir hana og tjá sig vegna kaupa S-hóps­ins á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum snemma árs 2013. Því hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvenær hann muni koma fyrir nefnd­ina, hvort að sá fundur verði opin blaða- og frétta­mönnum né hvort að streymt verði frá honum á vef Alþingis svo að almenn­ingur geti fylgst með. Þetta segir Jón Steindór Valdi­mars­son, vara­for­maður stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar, sem mun stýra vinnu nefnd­ar­innar um skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á stórum hluta í Bún­að­ar­banka Íslands.

Brynjar Níelsson, for­maður nefnd­ar­innar, mun ekki taka þátt í þeirri vinnu þar sem hann hefur sam­þykkt að víkja í mál­inu. Ástæðan er sú að Brynjar var um tíma verj­andi Bjarka Diego í saka­máli sem sner­ist um meint efna­hags­brot. Bjarki er einn þeirra sem gegndi lyk­il­hlut­verki í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaupin, og sner­ist um að blekkja stjórn­völd, almenn­ing og fjöl­miðla til að halda að þýski bank­inn Hauck & Auf­häuser væri á meðal kaup­enda að Bún­að­ar­bank­anum. Skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar sýndi að bank­inn var leppur.

Ólafur sendi frétta­til­kynn­ingu frá sér fyrir viku síðan þar sem hann sagð­ist hafa farið þess á leit við Brynjar Níelsson, for­mann nefnd­ar­innar, að fá að koma fyrir hana til að „kasta ljósi á þær nýju upp­lýs­ingar sem ég hafði ekki fengið aðgang að áður og nið­ur­stöður eru dregnar af í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Réttur vett­vangur til að bregð­ast við er að mínu mati fyrir stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd Alþing­is, enda var nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kynnt þar.“

Jón Steindór segir hins vegar að engin form­leg beiðni hafi borist nefnd­inni frá Ólafi. Hann hafi vissu­lega haft sam­band við Brynjar en að öðru leyti hafi Ólafur „ein­göngu sent út frétta­til­kynn­ingu á fjöl­miðla um sínar óskir.“ Hann segir að málið sé í raun enn á und­ir­bún­ings­stigi í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, og að nefndin hafi sett sér það mark­mið að vanda til verka og ganga skipu­lega til þeirra. Þess vegna muni hún flýta sér hægt. „Verklag nefnd­ar­innar, við úrvinnslu skýrsl­unnar og önnur þau verk­efni sem þings­á­lykt­unin sem við erum að vinna málið í sam­ræmi við, er í mótun. Þar með talin máls­með­ferð, hugs­an­legir gestir og svo fram­vegis.“

Kom fyrir dóm og sagði ósatt

Ólafur fékk tæki­færi til að koma sinni hlið á mál­inu á fram­færi á meðan að á vinnu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar stóð. Eftir að hafa neitað að mæta til skýrslu­töku var honum á end­anum gert að mæta fyrir dóm og svara spurn­ingum rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar. Þar sagði Ólafur að eftir því sem hann best vissi væru allar þær upp­lýs­ingar sem íslenska rík­inu voru veittar um kaup­in, og kynntar voru í fjöl­miðlum sam­hliða kaup­um, verið réttar og nákvæmar, að því er hann best vissi.

Gögn sem nefndin hafði undir höndum sýndu hins vegar með óyggj­andi hætti fram á að svo er ekki. Ólafur var leið­andi í þeirri fléttu sem ofin var í kringum kaup­in, sam­kvæmt nið­ur­stöðum nefnd­ar­innar. Í henni fólst að Hauck & Auf­häuser var aldrei raun­veru­legur eig­andi að hlutn­um, Kaup­þing fjár­magn­aði við­skiptin en ekki þýski bank­inn, Ólafur Ólafs­son og lík­lega Kaup­þing eða stjórn­endur þess högn­uð­ust um millj­arða króna á flétt­unni og Hauck & Auf­häuser var tryggt algjört skað­leysi.

Þá sagði Finnur Vil­hjálms­son, starfs­maður nefnd­ar­inn­ar, á blaða­manna­fundi sem haldin var vegna kynn­ingar á skýrsl­unni: „Ólafur Ólafs­son stýrði verk­efn­inu fra A til Ö.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Einkavæðing bankanna

ViðskiptiEinkavæðing bankanna

Segir frá mat­ar­boði þar sem stjórn­mál og fjár­mál runnu saman en eng­inn vildi skrifa í gesta­bók­ina

Í nýút­kominni bók Gylfa Zoega er kvöld­verð­ar­boði í húsi Seðla­bank­ans við Ægisíðu lýst. Þar á seðla­banka­stjóri að hafa setið að snæð­ingi með við­skipta­fé­lögum sínum, skömmu áður en einka­væð­ing bank­anna átti sér stað árið 2003. Finnur Ing­ólfs­son, fyrrum seðla­banka­stjóri, kann­ast ekk­ert við að þetta hafi átt sér stað.
FréttirEinkavæðing bankanna

Finnur Ing­ólfs­son „skamm­ast“ sín út af blekk­ingum í einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans

Finnur Ing­ólfs­son, fjár­festir og fyrr­ver­andi ráð­herra, segir að hann skammist sín fyrir að hafa ekki séð í gegnum þann blekk­ing­ar­leik sem einka­væð­ing Bún­að­ar­bank­ans var á sínum tíma. Með orðum sínum á Finnur við meinta aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­hausers að við­skipt­unum sem reynd­ust vera fals.
Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár