Ólafur Ólafsson vill mæta fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd

Ólafur Ólafsson hefur farið þess á leit við for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis að fá að tjá sig fyrir nefnd­inni vegna Hauck & Auf­häuser.

Ólafur Ólafsson hefur óskað eftir því við for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis að hann fái að tjá sig fyrir nefnd­inni um einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans. Þetta kemur fram í yfir­lýs­ingu frá honum.

Ólafur segir að hann hafi verið bor­inn þungum sökum í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um málið og hann hafi ekki getað haldið uppi vörnum. Það vill hann gera fyrir nefnd­inni.

Yfir­lýs­ing­una má lesa hér á eftir.

„Ég hef farið þess á leit við for­mann stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis að fá að tjá mig fyrir nefnd­inni um einka­væð­ingu Bún­að­ar­banka Íslands hf. fyrir tæpum fimmtán árum.

Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis kynnti nið­ur­stöðu sína um þátt þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser í kaupum á Bún­að­ar­banka Íslands hf., fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd þann 29. mars sl. þar sem ég var bor­inn þungum sökum. Í kjöl­farið hófst mikil fjöl­miðlaum­fjöllun sem byggði á skýrslu nefnd­ar­innar. Við slíkar aðstæður er ógern­ingur að halda uppi vörnum og nauð­syn­legt að gefa sér ráð­rúm til að rýna í ásak­anir sem þar koma fram. Ég gaf sam­dæg­urs út yfir­lýs­ingu þar sem ég árétt­aði að ríkið hefði fengið greitt að fullu fyrir Bún­að­ar­bank­ann og að staðið hefði verið við alla samn­inga. Enn fremur skýrði ég frá því að ég myndi ekki tjá mig um efni skýrsl­unnar fyrr en ég hefði kynnt mér hana.

Það er ekki hlaupið að því að rifja upp tæp­lega fimmtán ára gam­alt mál. Síðan skýrsla rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kom út hef ég farið yfir öll aðgengi­leg gögn er tengj­ast mál­inu. Ég tel mik­il­vægt að kasta ljósi á þær nýju upp­lýs­ingar sem ég hafði ekki fengið aðgang að áður og nið­ur­stöður eru dregnar af í rann­sókn­ar­skýrsl­unni. Réttur vett­vangur til að bregð­ast við er að mínu mati fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis, enda var nið­ur­staða rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar kynnt þar. Ég geri mér vonir um að varpa þar ljósi á atburð­ar­rás­ina og svara spurn­ingum sem nefndin kann að beina til mín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár