Besta leiðin til að ræna banka er að eignast hann

Íslenska útrásin hófst með því að hópur manna komst yfir Bún­að­ar­bank­ann með blekk­ingum og án þess að leggja út neitt eigið fé. Næstu árin jókst auður, völd og umsvif þeirra gríð­ar­lega. Afleið­ing­arnar eru öllum kunnar. Nú hefur blekk­ingin verið opin­beruð.

Íslenska útrásin og fjár­mála­æv­in­týrið sem henni fylgdi hófst form­lega með einka­væð­ingu á hlut rík­is­ins í Lands­banka Íslands og Bún­að­ar­banka Íslands undir lok árs 2002 og í byrjun árs 2003. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar um aðkomu þýska bank­ans Hauck & Auf­häuser að kaupum á 45,8 pró­sent hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum er opin­ber­aður blekk­ing­ar­leikur sem reynd­ist enn ótrú­legri og marg­slungn­ari en flestir ætl­uðu.

Lengi hafa verið uppi grun­semdir um að aðkoma þýska bank­ans væri ekki öll það sem hún var séð. Hauck & Auf­häuser var lít­ill einka­banki sem ekki átti neitt sýni­legt erindi við að kaupa íslenskan við­skipta­banka. Þegar kafað var ofan í upp­lýs­ingar úr frum­gögnum sem lágu til grund­vallar skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis frá 12. apríl 2010 um aðdrag­anda og orsakir falls íslensku bank­anna 2008 og tengda atburði og vistaðar eru hjá Þjóð­skjala­safni Íslands, fékkst margt af því stað­fest. Þegar við bætt­ust upp­lýs­ingar úr kerfum Arion banka hf., Deloitte ehf., Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins, hér­aðs­sak­sókn­ara (áður emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara), Íslands­banka hf., Kaup­hallar Íslands hf., Kaup­þings ehf. (áður slita­stjórn Kaup­þings), Nasdaq verð­bréfa­mið­stöðvar hf. og Rík­is­end­ur­skoð­unar komst heild­ar­mynd á þá fléttu sem átt hefði sér stað. Fléttu sem í fólst ein­beittur brota­vilji til að blekkja stjórn­völd, eft­ir­lits­að­ila, almenn­ing og fjöl­miðla til að leyna því hverjir hefðu raun­veru­lega staðið að baki aðkomu Hauck & Auf­häuser að Bún­að­ar­bank­anum. Fléttu sem í fólst til­færsla á fé milli félaga með sér­kenni­leg nöfn á fram­andi aflandseyjum. Fléttu sem í fólst að aðal­ger­end­urnir högn­uð­ust um marga millj­arða króna.

En af hverju réð­ust menn í svona víð­feðma fléttu? Og hverjar urðu afleið­ing­arnar?

Fyrri spurn­ing­unni má svara með því að segja að það fylgdu því mikil tæki­færi fyrir metn­að­ar­gjarna banka­menn að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann. Hann var með gott láns­hæfi eftir að hafa verið ára­tugum saman í rík­i­s­eigu og hann var með við­skipta­banka­leyfi. Slíkur banki færði nýjum eig­endum völd og aðgengi að gríð­ar­legum fjár­munum. Fjár­munum sem hægt var að nota til að auka enn þau völd og lána ótæpi­lega til tengdra aðila á tímum þar sem gott láns­hæfi og háir íslenskir vextir tryggðu aðgengi að nán­ast botn­lausu láns­fjár­magni erlendis frá.

Seinni spurn­ing­unni má svara með því að benda á þá atburði sem áttu sér stað snemma í októ­ber 2008.

En upp­hafið allt má rekja til hausts­ins 2002.

Lagt á ráðin í Kringlunni í október 2002

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar um aðkomu Hauck & Auf­häuser er ítrekað minnst á orðróm um að búið hefði verið að ákveða að sam­eina Kaupþing og Bún­að­ar­banka Íslands áður en að hin svo­kall­aði S-hópur, með Ólaf Ólafsson í broddi fylk­ingar, keypti 45,8 pró­sent hlut í síð­ar­nefnda bank­anum. Kaupþing var á þessum tíma lítið fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hafði þó vaxið hratt og vakið athygli fyrir fyr­ir­ferð og djörf­ung. Stjórn­endur þess, sér­stak­lega þeir Sigurður Ein­ars­son og Hreiðar Már Sig­urðs­son, þóttu hold­gerv­ingar nýrra tíma í íslensku fjár­málaum­hverfi. Áhættu­sæknir og ákveðnir.

Í skýrsl­unni segir að nán­ari stað­hæf­ingar um þessi atriði – þ.e. um fyr­ir­hug­aða en leyni­lega sam­ein­ingu Kaup­þings og Bún­að­ar­bank­ans – hafi ítrekað komið fram á und­an­förnum árum og að þær hafi allar lotið að því að sam­komu­lag um sam­ein­ing­una hafi legið fyrir í októ­ber 2002. Þá hafi verið haldnir fundir í þáver­andi skrif­stofu­hús­næði eign­ar­halds­fé­lags­ins Sunds ehf. í svo­nefndum litla turni Kringl­unnar.

Sigurjón Þ. Árnason starfaði hjá Búnaðarbankanum þegar hann var einkavæddur. Hann hefur sagt það augljóst að fulltrúi Hauck & Aufhäuser hafi ekkert vitað um bankann. „Hann hefði alveg eins getað hafa verið að kaupa ísbúð.“
Sigurjón Þ. Árnason starf­aði hjá Bún­að­ar­bank­anum þegar hann var einka­væddur. Hann hefur sagt það aug­ljóst að full­trúi Hauck & Auf­häuser hafi ekk­ert vitað um bank­ann. „Hann hefði alveg eins getað hafa verið að kaupa ísbúð.“

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir: „Á þeim fundum voru sagðir hafa verið meðal ann­arra Ólafur Ólafsson og Sigurður Ein­ars­sonar, þáver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings hf. Um þetta var haft eftir Sig­ur­jóni Þ. Árnasyni í[...]skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis 12. apríl 2010: „Þessi díll held ég var allur og það að sam­ein­ing­unni, þetta var allt hannað miklu fyrr, það er alltaf talað um að það hafi verið hannað í skrif­stof­unni hjá Sund í októ­ber 2002.[...]ég [held] reyndar að það hafi verið samið um þetta fyrir löngu, löngu síðan og verið eitt­hvað mjög grun­sam­legt allt í tengslum við þessi kaup á Bún­að­ar­bank­anum. Ég get sagt ykkur frá því síðar ef þið viljið, það fannst mér allt mjög grun­sam­legt.“

Ármann Þor­valds­son, sem var einn af æðstu stjórn­endum Kaup­þings og stýrði m.a. banka veld­is­ins í Bret­landi, skrif­aði um þetta í bók sinni „Ævin­týra­eyjan“ sem kom út 2009. Þar greinir Ármann frá því að þreif­ingar hefðu átt sér stað við S-hóp­inn á meðan að hann var enn að semja við stjórn­völd um kaup á eign­ar­hlutnum í Bún­að­ar­bank­anum.

Björn Jón Bragason sagn­fræð­ingur rakti svip­aða sögu í grein sem hann skrif­aði í tíma­ritið Sögu í lok árs 2011. Þar sagði hann að sam­ein­ing Kaup­þings og Bún­að­ar­bank­ans hafi verið „hönnuð“ á leyni­fundum mörgum mán­uðum áður en einka­væð­ingin gekk í gegn. Þá fundi sátu, að sögn Björns Jóns, Finnur Ing­ólfs­son, Sigurður Ein­ars­son og Ólafur Ólafsson.

Aðal­leik­endur máls­ins hafa alltaf neitað því að þetta sam­komu­lag hafi verið gert. Ólafur Ólafsson sagði til að mynda í yfir­lýs­ingu 4. apríl 2003 að það væri „rangt að samn­ingar hafi legið fyrir um sam­ein­ingu Bún­að­ar­banka og Kaup­þings áður en gengið var frá kaup­unum á kjöl­festu­hlutnum í Bún­að­ar­bank­anum eins og ýjað hafi verið að.“ Það verður þó að taka þeirri yfir­lýs­ingu með ákveðnum fyr­ir­vara, í ljósi þess að nán­ast ekk­ert sem Ólafur hefur haldið fram opin­ber­lega um við­skiptin hefur reynst satt.

Blekkt til að mæta skilyrðum

Hópurinn sem keypti hlut­inn í Bún­að­ar­bank­anum gekk alltaf undir nafn­inu S-hóp­ur­inn. Sá hópur sam­an­stóð af Eglu ehf. (fé­lags í eigu Kers (að mestu í eigu Ólafs Ólafs­son­ar) sem átti 49,5 pró­sent, VÍS sem átti 0,5 pró­sent og opin­ber­lega Hauck & Auf­häuser sem sagt var eiga 50 pró­sent), Eign­ar­halds­fé­lag­inu Sam­vinnu­trygg­ing­um, Sam­vinnu­líf­eyr­is­sjóðnum og VÍS. Rík tengsl voru við Fram­sókn­ar­flokk­inn og sam­vinnu­hreyf­ing­una sál­ugu innan hóps­ins. Óum­deil­an­legur leið­togi hóps­ins, og sá sem stýrði öllu í kringum hann, var Ólafur Ólafsson.

Ein frægasta fréttaljósmynd Íslandssögunnar sýnir Ólaf Ólafsson og Finn Ingólfsson, fyrrverandi ráðherra og varaformann Framsóknarflokksins, keyra saman í burtu eftir að hafa undirritað kaupsamning að Búnaðarbankanum fyrir hönd S-hópsins.
Ein fræg­asta frétta­ljós­mynd Íslands­sög­unnar sýnir Ólaf Ólafsson og Finn Ing­ólfs­son, fyrr­ver­andi ráð­herra og vara­for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, keyra saman í burtu eftir að hafa und­ir­ritað kaup­samn­ing að Bún­að­ar­bank­anum fyrir hönd S-hóps­ins.

S-hóp­ur­inn hafði sent inn bréf til fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu og lýst yfir áhuga á að kaupa hlut í annað hvort Lands­banka Íslands eða Bún­að­ar­bank­anum sum­arið 2002. Í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar segir að ekki verði annað sé en að hóp­ur­inn hafi látið fyrst í það skína að erlendur aðili myndi koma að til­boði hans á fundi með fram­kvæmda­nefnd­inni 28. ágúst 2002. Þannig var bókað í fund­ar­gerð að full­trúar S-hóps­ins hafi upp­lýst að „tveir erlendir bankar hefðu sýnt áhuga á að koma að mál­inu sem ráð­gjafar eða fjár­festar“ og síðan hafi full­trúar hóps­ins spurt hvort það breytti stöðu hóps­ins í ferl­inu.

Samkvæmt fund­ar­gerð­inni svar­aði for­maður fram­kvæmda­nefnd­ar­innar því til að svo væri ekki, frekar væri „gef­inn plús fyrir erlenda pen­inga“. Þar var því strax ljóst að aðkoma erlends banka myndi styrkja til­boð S-hóps­ins. Í kjöl­farið var látið mjög sterkt í það skína að franski bank­inn Société Générale ætl­aði sér að kaupa hlut.

Ákveðið var 4. nóv­em­ber 2002 að mæla með því að ganga til samn­inga við S-hóp­inn um kaup á 45,8 pró­sent hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Þá höfðu meintir fundir um ætl­aða sam­ein­ingu við Kaupþing þegar átt sér stað. Kaup­þings var hins vegar hvergi getið í til­boði S-hóps­ins.

Í til­kynn­ingu fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu um einka­við­ræður við S-hóp­inn kom skýrt fram að lyk­il­for­senda fyrir þeim væri aðkoma erlendrar fjár­mála­stofn­unar. Annars yrðu þær hugs­an­lega ekki fram­lengdrar.

Þegar hinn hóp­ur­inn sem val­inn hafði verið til við­ræðna um kaup á hlutnum, Kald­bakur, óskaði eftir skýr­ingum á þessu svar­aði for­maður fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu því til að sér­stak­lega hefðu þrjú atriði „skilið á milli við val á við­semj­anda“. Meðal þeirra atriða sem nefnd voru í þessu sam­bandi var að S-hóp­ur­inn hefði haft í sínum hópi „virt erlent fjár­mála­fyr­ir­tæki sem fjár­festi“.

Á þessum tíma lá ekk­ert fast fyrir um neina erlenda aðkomu að kaupum S-hóps­ins. Í bréf­inu sagði nefndin að „S-hóp­ur­inn hefði gefið til kynna að 25-30% hlutur í eign­ar­halds­fé­lagi um eign í Bún­að­ar­bank­anum yrði í eigu Société Générale eða ann­ars alþjóð­legs fjár­festis.“ Fram­kvæmda­nefndin lagði áherslu á að „þátt­taka Société Générale eða ann­arrar hátt virtrar alþjóð­legrar fjár­mála­stofn­unar, sem umtals­verðs hlut­hafa í eign­ar­halds­fé­lagi um til­boðið [hefði] verið veiga­mik­ill þáttur á bak við ákvörðun nefnd­ar­innar að efna til einka­við­ræðna við [S-hóp­inn]“. Lögð var áhersla á að einka­við­ræður yrðu ákveðnar til til­tek­ins tak­mark­aðs tíma og að fram­kvæmda­nefndin yrði treg til að fram­lengja einka­við­ræður ef hún teldi þá „Société Générale eða annan alþjóð­legan fjár­festi ólík­legan til að eiga umtals­verðan hlut í eign­ar­halds­fé­lagi um til­boðið“.

Því blasti við að erlendur aðili var nauð­syn­legur til að til­boð­inu yrði tekið.

Ráðgjafar á vegum Ólafs tóku þátt í blekkingarleiknum

Nú hefur verið opin­berað að, líkt og marga grun­aði, þá var aðkoma Société Générale hluti af blekk­ing­ar­leik. Aldrei stóð til að bank­inn myndi kaupa hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Tveir starfs­menn þýska­lands­arms bank­ans, sem störf­uðu fyrir Ólaf Ólafsson í mál­inu, höfðu aldrei neina heim­ild til að skuld­binda slíkan stór­banka í kaup á við­skipta­banka á Íslandi. Menn­irnir voru ein­fald­lega að sinna ráð­gjöf og spil­uðu þar með í leik Ólafs. Fyrir ómakið fengu þeir um 300 millj­ónir króna greiddar, sam­kvæmt skýrsl­unni.

Sá banki sem samþykkti að vera leppur í einni bíræfnustu blekkingarfléttu sem ráðist hefur verið í hérlendis var lítill þýskur einkabanki, Hauck & Aufhäuser. Það tók rúmlega 14 ár að upplýsa endanlega um aðkomu hans.
Sá banki sem sam­þykkti að vera leppur í einni bíræfn­ustu blekk­ing­ar­fléttu sem ráð­ist hefur verið í hér­lendis var lít­ill þýskur einka­banki, Hauck & Auf­häuser. Það tók rúm­lega 14 ár að upp­lýsa end­an­lega um aðkomu hans.

Það sem síðan gerð­ist þekkja flestir. Beðið var með að til­kynna hver erlenda fjár­mála­stofn­unin sem myndi taka þátt í kaup­unum væri nán­ast fram að und­ir­skrift, sem átti sér stað 16. jan­úar 2003. Þegar á hólm­inn var komið reynd­ist hún, sam­kvæmt til­kynn­ingum, vera þýski einka­bank­inn Hauck & Auf­häuser. En nú hefur auð­vitað verið opin­berað með til­vísun í gögn að sú aðkoma var líka blekk­ing. Kaupþing fjár­magn­aði kaupin að fullu, að baki lágu bak­samn­ingar sem tryggðu Hauck & Auf­häuser fullt skað­leysi, þókn­ana­tekjur upp á eina milljón evra fyrir að leppa og sölu­rétt á hlutnum eftir að þýski lepp­bank­inn var búinn að halda á honum í tæp tvö ár.

Til við­bótar lá fyrir í flétt­unni, sem var kölluð „Puffin“, að hagn­aður sem gæti skap­ast hjá réttum eig­enda hlut­ar­ins, aflands­fé­lags­ins Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyj­unum, myndi renna til tveggja aflands­fé­laga, skráð á sama stað, sem áttu það félag. Annað þeirra aflands­fé­laga var Marine Choice Limited, í eigu Ólafs Ólafs­sonar. Hann hagn­að­ist um 3,8 millj­arða króna á flétt­unni. Hitt félagið, Dekhill Advisors, hagn­að­ist um 2,9 millj­arða króna á „Puffin“ verk­efn­inu. Á núvirði er sam­eig­in­legur hagn­aður félag­anna tveggja rúm­lega 11 millj­arðar krona.

Eign­ar­hald Dekhill hefur ekki verið stað­fest. Rann­sókn­ar­nefndin ályktar að aðilar tengdir Kaup­þingi hafi verið eig­endur þess. Þar er án nokk­urs vafa átt við að mögu­lega hafi stjórn­endur Kaup­þings átt það. En það hefur líka öðrum mögu­leikum verið velt upp. Í samn­ings­drögum sem birt eru í skýrsl­unni kom á einum tíma til greina að Ágúst og Lýður Guð­munds­synir myndu eiga hlut í Welling & Partners.

Bræður keyptu í Kaupþingi í miðri fléttu...með láni frá Kaupþingi

En hvernig koma þeir bræður að þessum leik?

Ágúst og Lýður Guð­munds­synir léku stórt hlut­verk í þeirri spila­borg sem Kaupþing var. Og nú þegar aðkoma Kaup­þings að einka­væð­ingu Bún­að­ar­bank­ans hefur verið stað­fest af rann­sókn­ar­nefnd verður að skoða inn­komu þeirra í Kaupþing í öðru ljósi.

Spólum aðeins til baka. Á tíunda ára­tugnum áttu átta spari­sjóðir í land­inu, þar á meðal SPRON, eign­ar­halds­fé­lag sem hét Meið­ur. Félagið hélt á eign­ar­hluti spari­sjóð­anna átta í þá litlu fjár­mála­fyr­ir­tæki sem hét Kaup­þing. For­stjóri Kaup­þings á þessum tíma var Guð­mundur Hauks­son. Hann var yfir­maður og fyr­ir­mynd þess hóps sem síðar tók yfir og stýrði Kaup­þingi í upp­gangi og loks fram af bjarg­brún­inni. Guð­mundur hætti þar 1996 til að taka við stöðu spari­sjóðs­stjóra SPRON, sem þá þótti stærra starf en að stýra litlu fjár­mála­fyr­ir­tæki.

Í októ­ber 2002, á sama tíma og meintir fundir lyk­il­manna úr S-hópnum og Kaup­þings­manna um vænt­an­lega sam­ein­ingu áttu sér stað í Kringl­unni, setti Kaup­þing eign sína í sjálfu sér inn í eign­ar­halds­fé­lagið Meið, sem átti eftir það 15,7 pró­sent í Kaup­þingi. Kaup­þing mátti sam­kvæmt lögum ekki eiga meira en tíu pró­sent í sjálfu sér og því var ljóst að fyr­ir­tækið þurfti að selja sinn hlut í Meið, alls 55 pró­sent hluta­fjár. Það gerði Kaup­þing 27. des­em­ber 2002, skömmu áður en S-hóp­ur­inn svo­kall­aði kláraði kaupin á Bún­að­ar­bank­anum af rík­inu.

Kaupin voru fjár­mögnuð af Kaup­þingi og kaup­and­inn var Bakka­bra­edur Holding, félag í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona. Bræð­urnir höfðu verið góðir við­skipta­vinir Kaup­þings um skeið og sterk tengsl höfðu skap­ast á milli þeirra og helstu stjórn­enda Kaup­þings. Kaup­verðið er um 2,4 millj­arðar króna, eða nán­ast sama upp­hæð og Hauck & Auf­häuser greiddi fyrir sinn meinta hlut í Bún­að­ar­bank­anum. Kaupverð á 45,8 pró­sent hlut í bank­anum var um 11,8 millj­arðar króna og hlutur þýska bank­ans, sem Kaupþing lán­aði leyni­lega fyrir, um 2,7 millj­arðar króna.

Bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir léku lykilhlutverk í spilaborg Kaupþings. Félag þeirra var stærsti eigandi bankans á uppgangstímum hans.
Bræð­urnir Lýður og Ágúst Guð­munds­synir léku lyk­il­hlut­verk í spila­borg Kaup­þings. Félag þeirra var stærsti eig­andi bank­ans á upp­gangs­tímum hans.

Kaupþing lán­aði því Bakka­var­ar­bræðrum til að kaupa hluti í sjálfum sér. Pen­ing­arnir sem Bakka­var­ar­bræður greiddu Kaup­þingi (sem voru fengnir að láni frá sama banka) nýtt­ust svo til að lána Welling & Partners á Bresku Jóm­frú­areyjum sem lán­aði Hauck & Auf­häuser til að þykj­ast vera að kaupa í Bún­að­ar­bank­anum.

Upphafið að endalokunum og afleiðingunum

Það má með sanni segja að bolt­inn hafi byrjað að rúlla hjá öllum hlut­að­eig­andi eftir að þessi flétta var fram­kvæmd. Nafni Meiðs var breytt í Exista og bræð­urnir héldu þar um alla þræði í krafti mik­ils eign­ar­hluta. Exista var ásamt félagi Ólafs Ólafs­sonar stærsti eig­andi sam­ein­aðs banka Kaup­þings og Bún­að­ar­banka, sem lengst af hét bara Kaupþing, fram að því að hann féll í októ­ber 2008. Við blasir að hvor­ugur aðil­inn borg­aði nokkuð eigið fé fyrir þann hlut sem hann eign­að­ist í Kaup­þingi. Þeir lögðu ekki út eina krónu.

Allir hlut­að­eig­andi efn­uð­ust stór­kost­lega á þessum tíma. Exista keypti m.a. VÍS, Símann, stóran hlut í finnska trygg­inga­fé­lag­inu Sampo og meira að segja Við­skipta­blaðið. Auk þess var Bakkavör mik­il­vægur hluti af sam­stæð­unni. Virði eigna hennar mæld­ist mörg hund­ruð millj­arðar króna.

Ólafur Ólafsson varð einn rík­asti og valda­mesti maður lands­ins. Í árs­lok 2003 voru eignir Kjalars, fjár­fest­inga­fé­lags Ólafs, metnar á 3,2 millj­arða króna. Tveimur árum síðar voru þær metnar á 85 millj­arða króna. Aðrir með­limir S-hóps­ins nutu líka góðs af verkn­að­inum og urðu fokríkir, þótt Ólafur hafi skarað þar fram úr.

Sigurður Einarsson hefur verið tekinn til gjaldþrotaskipta í stærsta einstaklingsgjaldþroti sem orðið hefur hérlendis. Hann reyndist eiga sáralitlar uppgefnar eignir. Ólafur Ólafsson er hins vegar á meðal ríkustu manna landsins og mjög umsvifamikill jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hér sitja þeir saman á sakamannabekk í Al Thani-málinu.
Sigurður Ein­ars­son hefur verið tek­inn til gjald­þrota­skipta í stærsta ein­stak­lings­gjald­þroti sem orðið hefur hér­lendis. Hann reynd­ist eiga sára­litlar upp­gefnar eignir. Ólafur Ólafsson er hins vegar á meðal rík­ustu manna lands­ins og mjög umsvifa­mik­ill jafnt á Íslandi sem og erlendis. Hér sitja þeir saman á saka­manna­bekk í Al Thani-mál­inu.

Ólafur barst á og var fyr­ir­ferða­mik­ill á þessum árum. Hann stofn­aði góð­gerð­ar­sjóð og setti millj­arð króna í hann og hann fékk Elton John til að syngja í klukku­tíma í fimm­tugs­af­mæl­inu sínu. Hann keypti sér þyrlu og flaug henni sjálfur ítrekað í bústað sinn á Snæ­fells­nesi. Við­skipta­veldi hans sam­an­stóð af fjár­fest­inga­fé­lög­unum Kjalar og Eglu. Auk hlut­ar­ins í Samskip átti hann m.a. hluti í HB Granda, Iceland Seafood, Alfesca og ýmsum fast­eigna­verk­efnum svo fátt eitt sé nefnt. Ólafur var líka stór­tækur í gjald­miðla­skipta­samn­ingum og gerði m.a. einn slíkan við Kaupþing 6. októ­ber 2008, sama dag og neyð­ar­lög voru sett á Íslandi. Þar veðj­aði hann gegn íslensku krón­unni og krafð­ist þess átta dögum síðar að samn­ing­ur­inn yrði gerður upp á geng­inu 305 krónur á hverja evru, sem hefði þýtt að Kaupþing, fallni bank­inn sem hann verið næst stærsti eig­and­inn í, ætti að borga honum 115 millj­arða króna.

Hluta­bréfa­verð í sam­ein­uðu Kaup­þingi rauk upp eftir að Puffin-fléttan var fram­kvæmd. Í upp­hafi árs 2003 var það 129,5 krónur á hlut. Á fyrsta árinu hækk­aði gengið um 73,4 pró­sent. Frá árs­byrjun 2004 og fram á mitt ár 2007 hækk­uðu hluta­bréf í Kaup­þingi um 536 pró­sent. Virði eign­ar­hluta Ólafs og Bakka­var­ar­bræðra hækk­aði um sama hlut­fall. Síðar kom reyndar í ljós að Kaupþing hafði stundað skipu­lagða og kerf­is­bundna mark­aðs­mis­notkun að minnsta kosti frá byrjun árs 2005. Til­gang­ur­inn var að halda uppi verði bréf­anna hand­virkt. Fyrir þetta hlutu níu fyrr­ver­andi stjórn­endur og starfs­menn Kaupþing dóm í Hæsta­rétti í fyrra­haust. Á meðal þeirra sem hlutu dóm í mál­inu voru Hreiðar Már Sig­urðs­son, Sigurður Ein­ars­son, Bjarki Diego og Magnús Guð­munds­son. Allir fjórir léku lyk­il­hlut­verk í því þegar Puffin-fléttan um aðkomu Hauck & Auf­häuser að kaup­unum á Bún­að­ar­bank­anum var hönnuð og fram­kvæmd.

Alls tókst Ólafi og tengdum félögum að safna upp skuldum upp á 147 millj­arða króna við íslensku bank­ana fram að hruni þeirra. Mest skuld­uðu félög Ólafs Kaup­þingi, alls 96,1 millj­arð króna. Exista-bræður voru enn stór­tæk­ari í skulda­söfnun. Þeir og félög tengd þeim skuld­uðu íslenskum bönkum 309 millj­arða króna við hrunið. Þar af námu skuldir þeirra við Kaupþing, bank­ann sem þeir voru stærsti eig­and­inn í, 239 millj­örðum króna.

Stjórn­endur Kaup­þings fengu líka drauma sína upp­fyllta. Áður óþekkt ofur­laun, umfangs­mikil hluta­bréfa­kaup, útrás og tögl og haldir í íslensku atvinnu­lífi. Sigurður Ein­ars­son var sæmdur fálka­orð­unni og Ólafur Ragnar Grímsson tal­aði um hann sem einn sinn nán­asta sam­starfs­mann. Hann og Hreiðar Már voru kjörnir við­skipta­menn árs­ins. Og svo fram­vegis.

Afrakst­ur­inn af þessum bræð­ingi öllum saman varð fimmta stærsta gjald­þrot heims­sög­unnar.

Margdæmdir en fokríkir og fjárfesta á Íslandi með afslætti

Síðustu ár hafa verið afdrifa­rík fyrir þennan hóp. Helstu stjórn­endur Kaup­þings, sér­stak­lega Hreiðar Már, hafa verið ákærðir margoft og hlotið þyngstu dóma sem fallið hafa í Hæsta­rétti í efna­hags­brota­málum á Íslandi. Dómarnir voru m.a. fyrir stór­fellda mark­aðs­mis­notkun og hina svoköll­uðu Al Thani-fléttu, sem minnir um margt á Puffin-flétt­una í kringum Hauck & Auf­häuser blekk­ing­una. Í henni var fengin erlendur aðili til að þykj­ast eiga hlut í Kaup­þingi sem Kaupþing fjár­magn­aði í reynd og bak­samn­ingur var í gildi sem gat gert það að verkum að Ólafur Ólafsson hagn­að­ist ef fléttan gengi upp, en átti ekki að geta tapað neinu ef hún gerði það ekki. En eru mál gegn þeim óút­kljáð fyrir dóm­stólum eða enn í rann­sókn, bæði hér­lendis og erlendis.

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, er sá einstaki aðili sem hefur hlotið þyngstu dóma í efnahagsbrotamálum á Íslandi. Enn eru mál gegn honum til meðferðar í dómskerfinu og til rannsóknar, bæði hérlendis og erlendis.
Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, er sá ein­staki aðili sem hefur hlotið þyngstu dóma í efna­hags­brota­málum á Íslandi. Enn eru mál gegn honum til með­ferðar í dóms­kerf­inu og til rann­sóknar, bæði hér­lendis og erlendis.

Sigurður Ein­ars­son var úrskurð­aður gjald­þrota 23. sept­em­ber 2015 en alls var kröfum upp á 254,4 millj­arða króna lýst í bú hans. Einungis 38,3 millj­ónir króna feng­ust upp í kröfur eða tæp­lega 0,02 pró­sent. Um er að ræða langstærsta gjald­þrot ein­stak­lings í Íslands­sög­unni. Samkvæmt þessu virt­ist Sigurður eiga nán­ast engar eignir þrátt fyrir allan upp­gang­inn, ofur­launin og við­skipta­samn­ing­anna á fyrstu árum ald­ar­innar.

Hreiðar Már Sig­urðs­son og fjöl­skylda hans eru í miklum og blóm­legum við­skiptum á Íslandi. Þau hafa frá árinu 2009 byggt upp fyr­ir­tækið Gistiver sem tengd­ist rekstri fjöl­margra gisti­staða víðs vegar um landið. Eig­in­kona Hreið­ars er skráður eig­andi félags­ins og fram­kvæmda­stjóri.

Ólafur Ólafsson gerði skulda­upp­gjörs­sam­komu­lag við Arion banka árið 2011. Samkvæmt því slapp Ólafur við að greiða 64 millj­arða króna af skuldum sínum en þurfti að láta valdar eignir, meðal ann­ars eign­ar­hlut sinn í HB Granda. Ólafur hélt hins vegar Sam­skipum að fullu auk fjölda ann­arra eigna hér heima og erlendis. Hann er í dag tal­inn með rík­ustu Íslend­ing­unum og virð­ist eiga mjög digra sjóði til að eyða í almanna­tengsla­fyr­ir­tæki og lög­fræði­þjón­ustu. Ólafur hefur greitt fyrir slíkt í mjög opin­skárri bar­áttu fyrir upp­reist æru í kjöl­far þess að hann hlaut þungan fang­els­is­dóm í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða. Sú bar­átta snýr m.a. að því að ráð­ast gegn dóms­kerfi lands­ins, enda heldur Ólafur því fram að dómur Hæsta­réttar í mál­inu hafi verið rangur.

Bakka­var­ar­bræð­urnir Ágúst og Lýður hafa líka náð vopnum sínum. Þeim hefur tek­ist að ná fullum yfir­ráðum í Bakkavör að nýju m.a. með því að kaupa hluti í félag­inu af íslenskum líf­eyr­is­sjóðum. Í úttekt sem gerð var á starf­semi líf­eyr­is­sjóð­anna í aðdrag­anda banka­hruns­ins, og kynnt var í apríl 2012, kom fram að sjóð­irnir hefðu tapað sam­tals 170,9 millj­örðum króna á hluta­bréfum og skulda­bréfum sem útgefin voru af Existu og tengdum aðilum, þar sem bræð­urnir voru stærstu eig­endur. Hlut­deild þess­ara aðila, sem voru aðal­lega Kaupþing, Exista og Bakkavör, í heild­ar­tapi líf­eyr­is­sjóð­anna vegna slíkra bréfa var 44 pró­sent.

Lýður hlaut átta mán­aða fang­els­is­dóm fyrir sinn hlut í því að senda ranga til­kynn­ingu til fyr­ir­tækja­skrár í hinu svo­kall­aða Exista-­máli. Þá var til­kynnt um hluta­fjár­aukn­ingu upp á 50 millj­arða í lok árs 2008, en aðeins var greitt fyrir það um einn millj­arður króna. Í Panama­skjöl­unum var stað­fest að þeir bræður hefðu átt minnst sex aflands­fé­lög skráð í þekktum skatta­skjólum.

Og nán­ast allir ofan­greindir eiga aug­ljós­lega digra sjóði erlendis. Á meðal þeirra sem hafa nýtt sér fjár­fest­ing­ar­leið Seðla­banka Íslands, sem veitti eig­endum erlendra mynta tæki­færi til að fá 20 pró­sent afslátt á íslenskum eignum með því að flytja pen­inga inn í íslenskt hag­kerfi, eru félög í eigu bræðr­anna Lýðs og Ágústs Guð­munds­sona, Hreið­ars Más Sig­urðs­son­ar og Ólafs Ólafs­son­ar.

Það þarf kannski ekki að koma mikið á óvart. Líkt og segir í þekktri bók William K. Black, lög­fræð­ings og sér­fræð­ings í hvít­flibbaaf­brotum, þá er besta leiðin til að ræna banka að eign­ast slíkan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

efnahagsbrot

Mest lesið undanfarið ár