Sagan um sölu ríkisins á ráðandi hlut í Búnaðarbankanum

Rann­sókn­ar­nefnd hefur kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að aðkoma Hauck & Auf­häuser að kaupum á Bún­að­ar­bank­anum hafi verið til mála­mynda. Kaup bank­ans voru fjár­mögnuð í gegnum aflands­fé­lag á vegum Kaup­þings. Það sem lengi hefur verið haldið virð­ist stað­fest.

Formlega hófst sala á hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum á sama tíma og Lands­bank­anum, með aug­lýs­ingu sem birt var 10. júní 2002. Í fund­ar­gerðum fram­kvæmda­nefndar um einka­væð­ingu, sem Kjarninn hefur undir höndum, kemur hins vegar skýrt fram að ekki hafi staðið til að selja jafn stóran hluta í bank­anum og á end­anum var seldur, heldur ætti að miða að því að selja 20 pró­sent hlut í sept­em­ber 2002. Í kjöl­farið gæti leit haf­ist að kjöl­festu­fjár­festi í Bún­að­ar­bank­anum.

Þessi stefna breytt­ist skyndi­lega og strax snemma í júlí 2002 greindi Jón Sveins­son, sem sat sem full­trúi Halldórs Ásgríms­sonar utan­rík­is­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í einka­væð­ing­ar­nefnd­inni, nefnd­inni frá því. Í fund­ar­gerð frá 8. júlí 2002 er bókað að „vilji við­skipta­ráð­herra [Val­gerður Sverr­is­dóttir] stæði til þess að aug­lýsa báða bank­ana í einu. Hvað eign­ar­hluta varð­aði væri verið að tala um 25-33% í fyrsta áfanga með kaup­rétti síðar“. Auglýst var eftir áhuga­sömum kaup­endum að þeim hlut.

Næstu mán­uði var einka­væð­ing­ar­nefnd upp­tekin við að selja Lands­banka Íslands. Hún tók hins vegar aftur upp þráð­inn hvað varðar Bún­að­ar­bank­ann í sept­em­ber þetta sama ár. Þá var búið að sam­þykkja að fara í einka­við­ræður við Samson-hóp­inn um kaup á Lands­bank­anum nokkrum dögum áður.

Snéri sér að S-hópnum

Fjórum dögum eftir að einka­væð­ing­ar­nefnd ákvað að selja Samson-hópnum hlut rík­is­ins í Lands­bank­anum, þann 13. sept­em­ber 2002, snéri nefndin sér að því að hefja und­ir­bún­ing á sölu á Bún­að­ar­bank­anum.

Þar sem stórir hlutir í bæði Lands­bank­anum og Bún­að­ar­bank­anum höfðu verið aug­lýstir til sölu á sama tíma, og tveir hópar, Kald­bakur og S-hóp­ur­inn svo­kall­aði, höfðu boðið í þá báða, taldi einka­væð­ing­ar­nefnd ljóst að báðir þessir hópar væru gjald­gengir til að halda áfram við­ræðum um að eign­ast Bún­að­ar­bank­ann. Hinir tveir bjóð­end­urnir sem lýst höfðu áhuga, Íslands­banki og Þórður Magn­ús­son ásamt með­fjár­festum, var til­kynnt að þeir myndu ekki halda áfram í ferl­inu.

Reynt var að fá S-hóp­inn og Kaldbak til að sam­ein­ast. Þær til­raunar áttu sér að hálfu ráða­manna í Fram­sókn­ar­flokknum, en gengu á end­anum frekar illa.

Vert er að rifja upp á að íslenska ríkið hafði lengi lagt mikla áherslu á að eitt af helstu mark­miðum einka­væð­ingar bank­anna væri að fá erlenda fjár­mála­stofnun til að koma inn sem eig­andi að íslenskum banka. Þar sem hlutur rík­is­ins í Lands­bank­anum hafði verið seldur til Samson, sem aug­ljós­lega var ekki erlendur banki, þá þótti ljóst að æski­legt væri að bjóð­endur í Bún­að­ar­bank­ann væru með slíkan með­fjár­festi í fartesk­inu.

Rík tengsl við Framsóknarflokkinn

Mat á hvort til­boðið væri betra hafði breyst frá því sem var þegar ákveðið var hverjum ætti að selja Lands­bank­ann. Nú var vægi verðs aukið og mats­þáttum fækkað. Og S-hóp­ur­inn átti hæsta boðið.

Hópurinn var leiddur af mönnum með rík tengsl við Fram­sókn­ar­flokk­inn, þeim Ólafi Ólafs­syni, sem nú afplánar fang­els­is­dóm vegna Al Thani-máls­ins, og Finni Ing­ólfs­syni, fyrrum vara­for­manni og ráð­herra Fram­sókn­ar­flokks­ins. Aðrir lyk­il­menn í hópnum voru Kristján Loftsson, oft­ast kenndur við Hval, Margeir Dan­í­els­son, Jón Helgi Guð­munds­son, oft­ast kenndur við Byko, og lög­mað­ur­inn Kristinn Hall­gríms­son.

Í mati HSBC, ráð­gjafa íslenska rík­is­ins, á S-hópnum kom meðal ann­ars fram að breski bank­inn hefði áhyggjur af miklum kross­eigna­tengslum milli þeirra sem komu að fjár­fest­ing­ar­hópnum því það gerði bank­anum erfitt fyrir að meta raun­veru­lega stöðu hans. Þá var ráð­andi þáttur í mati á fjár­mögnun kaupanna í Bún­að­ar­bank­anum aðkoma Societe General að verk­efn­inu. Frá þeirri „aðkomu“ verður betur greint síðar, en ljóst að hún skipti miklu máli við rök­stuðn­ing á því að S-hóp­ur­inn ætti að fá að kaupa.

Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, sendi bréf þar sem hann fór fram á að aðkoma Hauck & Aufhauser yrði rannsökuð. Mynd: Birgir Þór Harðarson
Tryggvi Gunn­ars­son, umboðs­maður Alþingis, sendi bréf þar sem hann fór fram á að aðkoma Hauck & Auf­hauser yrði rann­sökuð. Mynd: Birgir Þór Harð­ar­son

HSBC hafði áhyggjur af fleiri hlutum. Í mati hans stendur einnig að „stjórn­endur [Bún­að­ar­bank­ans] hafa lýst yfir áhyggjum af mögu­legum hags­muna­á­rekstrum: hafa áhyggjur af því að B [Bún­að­ar­bank­inn] verði tal­inn vera mjög nátengdur S-hópnum og póli­tískum sam­böndum hans sem muni gera varð­veislu við­skipta­vina og öflun nýrra við­skipta­vina mun erf­ið­ari.“ Þá kom einnig fram að þeir aðilar sem mynd­uðu S-hóp­inn höfðu verið í miklum lána­við­skiptum við Bún­að­ar­bank­ann. Samtals námu lán til þeirra 4,3 millj­örðum króna, eða 2,9 pró­sentum af heild­ar­út­lánum bank­ans um mitt ár 2002. Við mat á þekk­ingu og reynslu S-hóps­ins var sér­stak­lega tekið til­lit til aðkomu Societe General eða ann­arrar erlendrar fjár­mála­stofn­unar og þess tengsla­nets sem myndi fylgja slíkri aðkomu.

Frönskum risabanka veifað fyrir framan einkavæðingarnefnd

En hvernig tengd­ist risa­vax­inn franskur banki með víð­feðma alþjóð­lega starf­semi félitlum kaup­enda­hópi með rík póli­tísk tengsl við annan stjórn­ar­flokk­inn sem lang­aði að eign­ast banka á litla Íslandi? Jú, S-hóp­ur­inn lét í það skína í upp­lýs­inga­gjöf sinni til einka­væð­ing­ar­nefndar að Societe General ætl­aði að kaupa hlut rík­is­ins með hópnum. Þeim skila­boðum var fyrst komið á fram­færi við ráð­gjafa nefnd­ar­innar seint í októ­ber eða snemma í nóv­em­ber 2002. Aðkoma Societe General virð­ist á end­anum hafa ráðið úrslitum um það að einka­væð­ing­ar­nefnd ákvað að mæla með því við ráð­herra­nefnd um einka­væð­ingu, á fundi sínum 4. nóv­em­ber 2002, að S-hóp­ur­inn fengi að kaupa hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum. Sam­setn­ing hóps­ins var á þeim tíma reyndar allt önnur en sú sem á end­anum keypti hlut rík­is­ins í bank­anum. Skrifað var undir sam­komu­lag um kaup hóps­ins á hlut í Bún­að­ar­bank­anum 15. nóv­em­ber 2002.

Í fund­ar­gerð einka­væð­ing­ar­nefndar sem dag­sett er 12. des­em­ber 2002 segir að gert yrði ráð fyrir því að „aðild Soc.Gen yrði stað­fest morg­un­inn eftir.“ Það gerð­ist hins vegar ekki og þess í stað til­kynntu for­svars­menn S-hóps­ins einka­væð­ing­ar­nefnd að erlendi aðil­inn sem átti aðild að hópnum yrði ekki kynntur fyrr en skrifað yrði undir kaup­samn­ing­inn. Á fundi sínum þennan dag, 13. des­em­ber, ræddi einka­væð­ing­ar­nefnd um hvernig ætti að bregð­ast við þess­ari beiðni. Í fund­ar­gerð er bókað að „nefndin taldi nauð­syn­legt að vita hverjir væru vænt­an­legir fjár­festar m.t.t. mark­miða rík­is­ins með söl­unni.“ Greini­legt var á við­brögð­unum að þessi afstaða kom nefnd­ar­mönnum í opna skjöldu og sam­kvæmt fund­ar­gerð­inni var meðal ann­ars rætt um hvort hætta ætti við ferlið. Það var hins vegar ekki gert.

Næsti fundur einka­væð­ing­ar­nefndar var ekki hald­inn fyrr en 6. jan­úar 2003, 24 dögum síðar og tíu dögum áður en gengið var frá kaupum S-hóps­ins á ráð­andi hlut í Bún­að­ar­bank­anum.

S-hóp­ur­inn átti ekki sér­stak­lega mikla pen­inga (kaup­verðið var að stórum hluta fengið að láni hjá Lands­bank­anum) og hafði enga reynslu af því að reka banka. Það var því mjög mik­il­vægt fyrir hann að láta líta svo út að sterkur erlendur aðili væri með í hópnum til að gera einka­væð­ing­ar­nefnd auð­veld­ara fyrir að selja honum bank­ann.

Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, og Ólafur Ólafsson voru báðir á meðal þeirra sem dæmdir voru í Al Thani-málinu svokallaða. Mynd: RÚV/Skjáskot
Sigurður Ein­ars­son, fyrr­ver­andi stjórn­ar­for­maður Kaup­þings, og Ólafur Ólafsson voru báðir á meðal þeirra sem dæmdir voru í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða. Mynd: RÚV/Skjáskot

Þann 9. jan­úar, viku áður en skrifað var undir samn­ing um kaup S-hóps­ins á 45,8 pró­sent hlut hans í Bún­að­ar­bank­anum á 11,4 millj­arða króna (sem að mestu voru fengnir að láni hjá Lands­bank­anum), var þeim sem sátu í einka­væð­ing­ar­nefnd í fyrsta sinn gerð grein fyrir því hver erlendi fjár­festir­inn var sem ætl­aði að fjár­festa með hópnum. Það reynd­ist alls ekki vera franski stór­bank­inn Societe General, heldur þýskur einka­banki að nafni Hauck &Auf­hauser.

Rúmum tveimur árum eftir að Hauck & Auf­hauser keypti hlut í Eglu, og þar af leið­andi í Bún­að­ar­banka, var bank­inn búinn að selja hann allan til ann­arra aðila innan S-hóps­ins.

Litla Kaupþing sem vildi verða risastórt

Þegar einka­væð­ing bank­anna stóð yfir var lít­ill fjár­fest­ing­ar­banki far­inn að gera sig mjög gild­andi á Íslandi. Hann hét Kaupþing og honum var stýrt af Sigurði Ein­ars­syni og Hreiðari Má Sig­urðs­syni. Í bók Ármanns Þor­valds­sonar, Ævin­týra­eyunni, sem kom út árið 2009 er aðkomu Kaup­þings að einka­væð­ing­ar­ferl­inu lýst. Ármann var einn af helstu stjórn­endum Kaup­þings á þessum tíma og varð síðar for­stjóri Kaupt­hing Singer&Fried­lander í Bret­landi.

Ármann segir frá því að Kaupþing hafi ekki verið í náð­inni hjá ráð­andi stjórn­mála­öflum á þessum tíma, sér­stak­lega Davíð Oddssyni, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra. Þótt að áhugi hafi verið fyrir því innan bank­ans að reyna að eign­ast hlut rík­is­ins í annað hvort Lands­bank­anum eða Bún­að­ar­bank­anum þá var það ekki talið vera raun­veru­legur mögu­leiki vegna þeirrar póli­tísku and­stöðu.

Ármann sagði að þótt Kaupþing hafi ekki tekið þátt í einka­væð­ing­ar­ferl­inu hafi athyglin beinst að bank­anum þegar salan á bönk­unum tveimur var frá­gengin. „Bæði nýir eig­endur Lands­bank­ans og Bún­að­ar­bank­ans vildu taka þátt í sam­ein­ingu í banka­geir­anum[...]Báðir höfðu auga­stað á Kaup­þingi[...]Nýir eig­endur bank­anna höfðu jafn­framt mikla trú á stjórn­endum Kaup­þings og vissu sem var að við höfðum mestu alþjóð­legu reynsl­una. Báðir hópar sáu fram­tíð­ar­vaxta­mögu­leika bank­anna utan land­stein­anna og því höfðu þeir mik­inn áhuga á að ræða sam­ein­ingu við Kaupþing. Sigurður Ein­ars­son og Hreiðar Már Sig­urðs­son urðu allt í einu „sæt­ustu stelp­urnar á ball­inu“ og horft var til þeirra losta­fullum augum.“

Í bók Ármanns er raunar greint frá því að þreif­ingar hefðu átt sér stað við S-hóp­inn á meðan að hann var enn að semja við stjórn­völd um kaup á eign­ar­hlutnum í Bún­að­ar­bank­anum. Björn Jón Bragason rakti svip­aða sögu í grein sem hann skrif­aði í tíma­ritið Sögu í lok árs 2011. Þar sagði hann að sam­ein­ing Kaup­þings og Bún­að­ar­bank­ans hafi verið „hönnuð“ á leyni­fundum mörgum mán­uðum áður en einka­væð­ingin gekk í gegn. Þá fundi sátu, að sögn Björns, Finnur Ing­ólfs­son, Sigurður Ein­ars­son og Ólafur Ólafsson. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans fjár­magn­aði Hauck & Auf­häuser í aðdrag­anda kaupanna og því var þýski bank­inn verið að leppa fyrir Kaupþing. Þetta virð­ist nú vera stað­fest í vænt­an­legri nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­nefndar á kaup­unum.

Sam­ein­ingin var frá­gengin í apríl 2003, tæpum þremur mán­uðum eftir að ríkið seldi hlut sinn í Bún­að­ar­bank­anum til S-hóps­ins. Sigurjón Þ. Árnason, fyrr­ver­andi banka­stjóri Lands­bank­ans, sagði við rann­sókn­ar­nefnd Alþingis að við sam­ein­ing­una hefðu Kaup­þings­menn fengið það sem þeir þurftu; „láns­hæf­is­mat og við­skipta­banka­grunn á Íslandi." Afleið­ingin er öllum kunn: sam­ein­aður banki orsak­aði fimmta stærsta gjald­þrot heims. Helstu stjórn­endur hans hafa auk þess verið marg­dæmdir fyrir lög­brot sem framin voru í starfi bank­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

einkavæðing

Mest lesið undanfarið ár