Nýr meirihluti verði klár í slaginn áður en fyrsti borgarstjórnarfundur hefst

Viðræður um myndun meirihluta í Reykjavík hafa staðið yfir í fjóra daga en Samfylkingin, Framsóknar­flokkur, Píratar og Viðreisn stefna að því að ljúka þeim áður en fyrsti borgar­stjórnar­fundur kjör­tímabilsins verður settur þann 7. júní næst­komandi.

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Einar Þorsteinsson, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Dagur B. Eggertsson funda stíft þessa dagana.
Þórdís Lóa Þór­halls­dóttir, Einar Þor­steins­son, Dóra Björt Guð­jóns­dóttir og Dagur B. Egg­erts­son funda stíft þessa dag­ana. Mynd: Bára Huld Beck

Húsnæðismál, samgöngur og lofts­lagsmál voru á dagskrá hjá flokkunum fjórum sem funda nú um myndum meirihluta í Reykjavík, að því er fram kom í fréttum RÚV. Samfylkingin, Framsóknar­flokkur, Píratar og Viðreisn freista þess nú að mynda nýjan meirihluta í borginni og hafa fundað í fjóra daga í Elliða­árdal.

„Ég held kannski að fólk hafi fundið það í kosninga­baráttunni að flokkarnir töluðu ekki alveg einum rómi í þessu og viðræðurnar ganga út á að finna sameiginlega fleti þannig að við náum þeim krafti sem þarf í þessa uppbyggingu á næstu árum,“ sagði Dagur B. Eggertsson oddviti Samfylkingarinnar í samtali við frétta­mann RÚV.

Dagur sagði að öll helstu byggingar­svæði í borginni hefðu verið rædd, Reykja­víkur­flugvöllur hefði enn ekki komist á dagskrá en hann vildi ekkert gefa upp um í hvaða málum flokkarnir væru ósammála. Viðræðurnar væru hugsaðar til að útkljá ágreinings­efni, þær gangi vel og séu í góðum anda.

Fyrsti fundur nýrrar borgar­stjórnar í Reykjavík er á dagskrá þannn 7. júní næst­komandi og sagði Dagur að sér fyndist „góður bragur “ að því að ljúka meirihluta­viðræðum fyrir þann tíma.

Samanlagt eru flokkarnir fjórir með þrettán borgar­fulltrúa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kosningar 2022

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár