Yfir 80% þingmanna Verkamannaflokksins lýstu yfir vantrausti á Jeremy Corbyn

Jeremy Corbyn, með Tony Blair í bakgrunni.
Jeremy Corbyn, með Tony Blair í bak­grunni. Mynd: EPA

81% þingmanna Verkamanna­flokksins lýstu yfir vantrausti á formanninn Jeremy Corbyn í atkvæða­greiðslu í dag. 172 þingmenn greiddu atkvæði með vantrausti, 40 þingmenn greiddu atkvæði gegn því. Fjögur atkvæði voru ógild og 13 þingmenn kusu ekki, samkvæmt Sky News.

Þrátt fyrir þetta ætlar Corbyn sér ekki að segja af sér, að því er fram kemur í tilkynningu frá honum. Hann segir að hann hafi verið lýðræðis­lega kjörinn leiðtogi flokksins „fyrir nýja tegund stjórn­mála“. 60% meðlima og stuðnings­manna flokksins hafi kosið hann og hann ætli ekki að svíkja það fólk með því að segja af sér. Kosningin meðal þingmanna flokksins hafi ekkert lögformlegt gildi. Þingmenn flokksins velji ekki formanninn, það geri flokkurinn.

Fólk í kringum Corbyn segir jafnframt að hann hafi aldrei haft mikinn stuðning meðal þing­flokks Verkamanna­flokksins, á meðan hann hafi verið og sé vinsæll meðal almennra flokks­manna.

Því lítur allt út fyrir að Corbyn muni þurfa að berjast um áfram­haldandi formennsku í flokknum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár