Skipulagsstofnun fellst á tillögu að matsáætlun

Skipulags­stofnun hefur fallist á tillögu að mats­áætlun með athuga­semdum vegna fyrir­hugaðra endurbóta á kísil­verksmiðjunni í Helguvík í Reykja­nesbæ.

Skipulags­stofnun hefur fallist á tillögu að mats­áætlun með athuga­semdum vegna fyrir­hugaðra endurbóta á kísil­verksmiðjunni í Helguvík í Reykja­nesbæ. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stofnuninni.

Um er að ræða heildar­framleiðslu allt að 100.000 tonnum af kísli á ári í allt að fjórum ljósboga­ofnum, stækkun og endur­bótum á núverandi mann­virkjum kísil­verksmiðjunnar til að uppfylla skilyrði Umhverfis­stofnunar. Í ákvörðun Skipulags­stofnunar um tillögu að mats­áætlun er fjallað um heilsu, samráð, samfélag, ásýnd, valkosti, mengun, veður, fráveitu, grunnvatn og vöktun.

Í niður­stöðu Skipulags­stofnunar kemur fram að í samræmi við lög um mat á umhverfis­áhrifum hafi stofnunin farið yfir tillögu Stakks­bergs ehf. að mats­áætlun ásamt þeim umsögnum og athuga­semdum sem borist hafa stofnuninni og viðbrögðum framkvæmda­aðila við þeim. Skipulags­stofnun hafi ennfremur fallist á tillögu framkvæmda­aðila að mats­áætlun með eftir­farandi athuga­semdum:

  1. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir hvernig staðið hefur verið að samráði við íbúa við vinnslu umhverfis­matsins, umfram samráð á mats­áætlunar­stigi.
  2. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir þeim hita­frávikum sem hljótast af því að kælimiðli er veitt til sjávar. Sýna þarf hversu mikill hitamunur verður þar sem hann er mestur og hversu stórt svæði verður fyrir áhrifum.
  3. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir vatns­notkun kísil­verksmiðjunnar og áhrifum hennar á grunnvatn á svæðinu. Gera þarf grein fyrir því hvernig vatns verður aflað til verksmiðjunnar og hvort verksmiðjan verði með eigin vatns­öflun eða fái vatn úr starfandi vatns­veitum. Þá þarf að gera grein fyrir þeim kosti við kælingu að nota ekki grunnvatn.
  4. Í frummats­skýrslu þarf að byggja spá um dreifingu mengunar­efna á þeim veður­gögnum sem Veður­stofa Íslands telur að endur­spegli veður á svæðinu á seinni árum. Nauðsynlegt er í frummats­skýrslu að gera grein fyrir mögulegri hámarks­mengun við verstu veður­skilyrði svo sem þegar hæglætis­vindur stendur frá verksmiðju yfir nálæga íbúðar­byggð og í raka­mettuðu lofti.
  5. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein hvaða snefil­efni fylgja hráefnum, einkum þung­málmar, arsen og önnur mengandi efni, eftir því sem við á. Gera þarf grein fyrir hvort og þá hvernig þau geta borist út í umhverfið og hvaða viðmiðunar­mörk eru um styrk efnanna í hráefnum. Í frummats­skýrslu þarf auk þess að koma fram hver eru bakgrunns­gildi helstu þungmálma, arsens og þrávirkra lífrænna efna til að unnt sé að gera grein fyrir grunn­gildum vöktunar og álagsþoli svæðisins miðað við önnur svæði á Íslandi. Þá þarf að gera grein fyrir þeim kostum og annmörkum sem neyðar­skorsteinn hefur á loftgæði umhverfis verksmiðjuna.
  6. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir og leggja mat á hver áhrif breyti­legs afls ofna eru á loftgæði umhverfis verksmiðjuna líkt og Umhverfis­stofnun bendir á. Þá þarf jafnframt að greina frá því hvernig brugðist verður við þegar ofnar eru ekki á fullu álagi og mestar líkur eru á lykta­mengun.
  7. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir því hvaða áhrif áætlaðar tæknilegar úrbætur hafa á loftgæði og styrk sem berst út í umhverfið. Ennfremur hvaða áhrif breytingar á reyk­hreinsi­virki, útblæstri og meðhöndlun ryks hafa á efna­samsetningu útblásturs og dreifingu hans á ársgrundvelli og til lengri tíma líkt og Veður­stofa Íslands bendir á.
  8. Í frummats­skýrslu þarf að gera grein fyrir og leggja mat á áhrif kísil­versins á heilsu þar sem megin áhersla verði lögð á afleidd áhrif á heilsu af loftgæðum einkum af völdum mengunar­efna og lyktar frá verksmiðjunni. Nauðsynlegt er að setja fram tillögu að vöktun á áhrifum starfsemi kísil­versins á heilsu á rekstrar­tíma.
  9. Í frummats­skýrslu þarf að leggja mat á áhrif kísil­verksmiðjunnar á samfélags­þætti á borð við vinnu­markað og íbúaþróun á Suðurnesjum. Þar verði sérstak­lega fjallað um fjölda og tegund starfa sem kísil­verið skapar með tilliti til vinnu­markaðarins á Suðurnesjum.
  10. Í frummats­skýrslu þarf að sýna hvernig ásýnd verksmiðjunnar verður frá sömu stöðum og gert var í fyrra mati á umhverfis­áhrifum en einnig þarf að velja fleiri sjónar­horn sem sýna ásýndar­breytingar, einkum frá þeim stöðum sem eru upplýsandi fyrir íbúa í nálægu þéttbýli, líkt og Reykja­nesbær bendir á í umsögn sinni.
  11. Í frummats­skýrslu þarf að fjalla um mismun­andi kosti fyrir­komulags mengunar­varna og losunar og um uppsetningu skorsteina. Þá þarf að fjalla um þann kost að ræsa verksmiðjuna ekki aftur (núllkost). Einnig þarf að gera grein fyrir áfanga­skiptingu við uppbyggingu verksmiðjunnar og gera grein fyrir þeim valkostum sem felast í mismun­andi framleiðslu­magni (stærð/umfangi).

Framkvæmdaaðili vinnur nú frummatsskýrslu

Nú þegar Skipulags­stofnun hefur fallist á tillögu að mats­áætlun er næsta skref í ferlinu að framkvæmda­aðili vinnur frummats­skýrslu og skilar henni inn til Skipulags­stofnunar þegar hún er tilbúin og þarf hún að vera í samræmi við mats­áætlun.

Í frummats­skýrslu setur framkvæmda­aðili fram mat sitt á umhverfis­áhrifum framkvæmdarinnar í samræmi við mats­áætlun og sendir Skipulags­stofnun skýrsluna. Stofnunin fer yfir skýrsluna og metur hvort hún sé í samræmi við mats­áætlun og ákvæði laga og reglu­gerðar. Frummats­skýrsla er svo kynnt á vef stofnunarinnar og í fjöl­miðlum ásamt því að leitað er til umsagnar­aðila, en kynningar­tími er alls 6 vikur, á þeim tíma gefst almenningi kostur að kynna sér framkvæmdina og koma athuga­semdum sínum á framfæri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár