Árið 2018: United Silicon verður gjaldþrota, grunur um glæpi og átök um íbúalýðræði

Kís­il­málm­verk­smiðja United Silicon var stöðvuð í fyrra, varð gjald­þrota í ár og fyrr­ver­andi for­víg­is­maður hennar er grun­aður um margs­konar glæpi. Líf­eyr­is­sjóðir hafa tapað millj­örðum og íbúar vilja margir hverjir ekki sjá verk­smiðj­una.

United Sil­icon, félag utan um rekstur kís­il­málm­verk­smiðju, var sett í gjald­­þrot 22. jan­úar síð­­ast­lið­inn. Félagið hafði þá verið í greiðslu­­stöðvun frá því í ágúst 2017.

Um miðjan febr­úar náð­ist sam­komu­lag milli skipta­­stjóra þrota­­bús United Sil­icon og Arion banka um að bank­inn fái að ganga að sínum veðum og taka yfir allar helstu eignir félags­­ins.

Hlut­hafar og kröf­u­hafar félags­­­­ins hafa þurft að afskrifa stórar upp­­­­hæðir vegna United Sil­icon það sem af er þessu ári. Arion banki hefur til að mynda þegar afskrifað 4,8 millj­­­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins. Bank­inn tók yfir hlutafé í United Sil­icon og bók­­færir virði eign­anna á 5,4 millj­­arða króna. Auk þess eru úti­stand­andi lánslof­orð og ábyrgðir upp á um 900 millj­­ónir króna.

Arion banki ábyrgð­ist rekstur United Sil­icon frá því að félagið var sett í greiðslu­­stöðvun og fram að gjald­­þroti og borg­aði um 200 millj­­­­­ónir króna á mán­uði vegna rekstur þess á því tíma­bili.

En fleiri hafa tapað stórum fjár­­hæð­­um. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­ónum króna í United Sil­icon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­ur­inn á í félag­inu um 100 pró­­­­­sent. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna (EF­Í­A). Þar nemur nið­­­­­ur­­­­­færslan einnig 100 pró­­­­­sent­­­­­um. Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands (LS­BÍ) fjár­­­­­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn Festa 875 millj­­­­ónir króna í United Sil­icon. Hann hefur einnig fram­­­­kvæmt var­úð­­­­ar­n­ið­­­­ur­­­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Óásættanleg mengun

Starf­semi kís­il­verk­smiðju United Sil­icon stöðvuð 1. sept­em­ber í fyrra. eftir að Umhverf­is­­­stofnun tók ákvörðun þess efn­­­is. Óheim­ilt var að end­­­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­­­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­­­ur­­­bótum og ítar­­­legu mati á þeim. Það mat mun, líkt og áður sagði, taka allt að 20 mán­uði.

Í bréfi sem Umhverf­is­­­stofnun sendi til for­svar­s­­­manna United Sil­icon föst­u­dag­inn 19. jan­úar kom fram að ráð­­­ast þurfi í úrbætur sem kosta um þrjá millj­­­arða króna áður en að verk­­­smiðjan fær að fara í gang að nýju. Í kjöl­farið var tekin ákvörðun um að setja félagið í þrot.

Margháttaðar afleiðingar og nýjar deilur

Arion banki stofn­aði nýtt félagum starf­­semi kís­­il­verk­smiðj­unnar í Helg­u­vík sem fékk nafnið Stakks­berg. Mark­mið Arion banka var að vinna að úrbótum á verk­smiðj­unni og selja hana eins fljótt og auðið er. Fyrir lá að það myndi þó taka allt að 20 mán­uði. 

Og fleiri ljón reynd­ust í veg­inum en bara þau að gera verk­smiðj­una starfs­hæfa og láta hana upp­fylla sett skil­yrði. Mikil and­staða hefur byggst upp á meðal íbúa Reykja­nes­bæjar við frekarið stór­iðju í Helguvík. Sú and­staða snýr bæði að end­ur­ræs­ingu kís­il­málm­vers Stakks­bergs og fyr­ir­hug­aðri verk­smiðju félags­ins Thorsil á svæð­inu.

Vegna hennar hafa verið stofnuð félaga­sam­tökin „And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík“. Samtökin hafa staðið fyrir und­ir­skrifta­söfnun til að efna til bind­andi íbúa­kosn­inga vegna starf­semi Stakks­berg og Thorsil í Helguvík. Átakið fór m.a. fram á að beiðni Stakks­bergs um breyt­ingu á deiliskipu­lagi í Helguvík verði hafnað.

Þá hafa sam­tökin falið lög­manni að óska eftir því við Umhverf­is­stofnun að starfs­leyfi Stakks­bergs verði aft­ur­kallað.

Samtökin telja einnig ljóst að stöðvun starf­sem­innar ein og sér sé ekki til þess fallin að ná því mark­miði að tryggja nauð­syn­legar úrbætur þannig að frá­vikin end­ur­taki sig ekki heldur sé nauð­syn­legt að starfs­leyf­is­veit­ing­ar­ferlið sé end­ur­tekið á réttum for­sendum. Aft­ur­köllun starfs­leyf­is­ins sé eina úrræðið sem getur náð því mark­miði að tryggja til fram­búðar að starf­semi verk­smiðj­unnar verði í sam­ræmi við lög.

Arion banki segir íbúakosningu ólögmæta og geta leitt til bótaskyldu

Stakks­berg, og þar af leið­andi Arion banki, hefur ekki hug á því að beygja sig undir þessar óskir. Kjarninn greindi frá því um miðjan des­em­ber að félagið teldi að íbúa­kosn­ing um breyt­ingar á skipu­lagi á svæð­inu sem félagið hefur óskað eftir að láta vinna sé ekki lög­mæt. Í bréfi sem félagið sendi Skipu­lags­stofnun, og Kjarninn hefur undir höndum, segir að „slíkar umsóknir verði að afgreiða á grund­velli lög­mætra og mál­efna­legra sjón­ar­miða en ekki í vin­sæld­ar­kosn­ingu.“ Nú stendur yfir und­ir­skrifta­söfnun Í Reykja­nesbæ þar sem kraf­ist er bind­andi íbúa­kosn­ingar vegna starf­semi kís­il­málm­verk­smiðja í Helguvík.

Í bréf­inu segir lög­maður Stakks­berg að þegar hafi verið fall­ist á starf­sem­ina sem hafi fengið öll leyfi og sé meðal ann­ars með gilt starfs­leyfi. „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

Verði kosið um málið, og nið­ur­staða þeirrar kosn­ingar verði sú að starf­semi kís­il­málm­verk­smiðj­unnar verði hafnað, þá telur Stakks­berg Reykja­nesbæ hafa bakað sér bóta­skyldu. Í bréf­inu segir að verði látin fara fram kosn­ing „og leiði hún til þess að ekki verði hægt að starf­rækja þá verk­smiðju sem þegar hefur verið byggð á lóð­inni mun það að mati Stakks­berg ehf. leiða af sér skaða­bóta­skyldu gagn­vart eig­anda lóð­ar­innar[...]Sökin væri nokkuð aug­ljós enda um að ræða ásetn­ing til þess að koma í veg fyrir til­tekna starf­semi/upp­bygg­ingu sem þegar hafði verið fall­ist á og hefði þegar leitt til veru­legrar fjár­fest­ingar.“

Ef skipu­lagi yrði breytt til að koma í veg fyrir starf­semi verk­smiðj­unnar myndi það leiða til veru­legs tjóns sem birt­ist meðal ann­ars í því að „verð­mæti fast­eign­ar­innar skerð­ist veru­lega, umfram það sem við á um sam­bæri­legar eignir í næsta nágrenni. Augljóst má vera að skipu­lags­breyt­ing sem beind­ist beint gegn lóð­inni, einkum ef hún beind­ist ekki að lóð Thorsil, væri bóta­skyld. Mögulegt væri einnig að krefj­ast yfir­töku eign­ar­innar í heild gegn greiðslu fulls verðs[...]Í þessu sam­bandi er minnt á að þegar unnin fjár­fest­ing í verk­smiðju Stakks­berg nemur um 22 millj­örðum króna.“

Grunur um glæpi

En ýmsir aðrir angar máls­ins eru óhnýtt­ir. Í mars lögðu stjórnir þeirra líf­eyr­is­sjóða sem fjár­fest höfðu í United Sil­icon fram kæru til hér­­aðs­sak­­sókn­­ara þar sem óskað var eftir það að emb­ættið tæki til rann­­sóknar nokkur alvar­­leg til­­vik sem grunur leikur á að feli í sér refsi­verð brot af hálfu Magn­úsar Ólafs Garð­­ar­s­­son­­ar, fyrr­ver­andi fram­­kvæmda­­stjóra og stjórn­­­ar­­manns United Sil­icon hf., og eftir atvikum ann­­arra stjórn­­enda, stjórn­­­ar­­manna og starfs­­manna félags­­ins.

Magnús Garðarsson, stofnandi og fyrrverandi forstjóri United Silicon.
Magnús Garð­ars­son, stofn­andi og fyrr­ver­andi for­stjóri United Silicon.

Áður hafði stjórn United Sil­icon og Arion banki, stærsti kröf­u­hafi félags­­ins, sent kærur vegna gruns um refsi­verða hátt­­semi Magn­úsar til yfir­­­valda. Þetta var því þriðja kæran sem berst vegna gruns um brot hans.

í ágúst­lok greindi Kjarninn frá því að þrotabú United Sil­icon hefði stefnt Magn­úsi öðru sinni fyrir meint fjár­svik hans. Nýja málið sér­ist um 71 milljón króna sem Magnús á að hafa látið leggja inn á banka­reikn­ing sinn í Dan­mörku og nýtt í eigin þágu.

Þrota­búið hafði áður stefnt Magn­úsi í byrjun árs 2018 vegna meints fjár­dráttar upp á rúm­lega hálfan millj­arð króna. Sam­kvæmt skýrslu sem KPMG vann fyrir þrota­bú­ið, og Kjarn­inn greindi ítar­lega frá í jan­úar síð­ast­liðnum í röð frétta­skýr­inga, kom fram að alls sé Magnús grun­aður um að hafa dregið að sér 605 millj­ónir króna.

Sam­kvæmt skýrsl­unni er rök­studdur grunur um að Magnús hafi, í starfi sínu sem for­stjóri United Sil­icon, falsað reikn­inga og und­ir­skrift­ir, átt við lána­samn­inga og búið til gervi­lén í við­leitni sinni til að draga að sér fé úr fyr­ir­tæk­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

árið2018

Mest lesið undanfarið ár