Arion banki vill selja verksmiðjuna í Helguvík „eins fljótt og kostur er“

Bókfært virði kís­il­málm­verk­smiðj­unnar í Helguvík, sem var upp­haf­lega í eigu United Silicon, er 15,5 millj­örðum krónum undir þeirri fjár­fest­ingu sem þegar er búið að kosta til við upp­bygg­ingu hennar. Arion banki ætlar sér að selja hana við fyrsta tæki­færi.

Eignir Stakks­berg, félags­ins sem Arion banki stofn­aði utan um starf­semi kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helguvík, eru metnar á 6,5 millj­arða króna. Virði þeirra hækk­aði um 1,3 millj­arð króna í fyrra, en það var bók­fært á 5,2 millj­arða króna í árs­lok 2017. Skuldir þess eru engar. Arion banki hyggst selja Stakks­berg eins fljótt og kostur er.

[links]Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi Arion banka fyrir árið 2018 sem birtur var fyrir helgi.

Sé bók­fært virði kís­il­málm­verk­smiðj­unnar end­an­legt virði hennar er ljóst að gríð­ar­legt tap hefur orðið á fjár­fest­ingum í henni. Í bréfi sem lög­maður Stakks­berg sendi til skipu­lags­stofn­unar í lok árs í fyrra kom fram að þegar unnin fjár­fest­ing í verk­smiðju Stakks­berg næmi „um 22 millj­örðum króna.“

Óvissa og ágreiningur við aðra kröfuhafa

Eftir að United Silicon var lýst gjald­þrota þann 22. jan­úar í fyrra, vegna alvar­legra tækni­legra erf­ið­leika í rekstri sem lauk með því að tíma­bundið bann var lagt við starf­semi félags­ins, tók Arion banki, sem stærsti kröfu­hafi félags­ins, yfir eignir þess og færði inn í nýtt félag, áður­nefnt Stakks­berg. Í kjöl­far þess vann bank­inn að því að „draga úr óvissu varð­andi end­ur­gang­setn­ingu verk­smiðj­unnar, m.a. með því að fá starfs­leyfi rekstr­ar­ins yfir­færð til félags­ins, afla félag­inu nýs raf­orku­samn­ings og vinna að grunn verk­fræði­legri hönnun þeirra úrbóta sem nauð­syn­legt er að unnar séu í aðdrag­anda end­ur­gang­setn­ingar. Stakks­berg vinnur í dag að gerð nýs umhverf­is­mats fyrir verk­smiðj­una, sem miðar vel áfram, sem og að und­ir­bún­ingi að breyt­ingu á deiliskipu­lagi sem unnið verður í sam­vinnu við Reykja­nesbæ er nær dregur end­ur­gang­setn­ingu. Nið­ur­staða um hið síð­ar­nefnda er óviss á þessu stigi.“

Í árs­reikn­ingi Arion banka kemur einnig fram fram að tveir óveð­tryggðir kröfu­hafar hafi mót­mælt því að bank­inn hafi leyst til sín allar eignir United Silicon við þrot félags­ins, þrátt fyrir að skipta­stjóri þrota­bús­ins hefði sam­þykkt veð­kröfur Arion banka. „Skipta­stjóri þrota­bús­ins hefur vísað ágrein­ingnum til Hér­aðs­dóms Reykja­ness. Bankinn hefur farið yfir mót­mælin og hafnar þeim öllum. Aðal­með­ferð máls­ins er áætluð í haust. Vakin er athygli á því að í samn­ingi milli bank­ans og þrota­bús­ins kemur fram að ef komi til þess að veð bank­ans verði dæmd ólög­mæt muni bank­inn end­ur­greiða þrota­bú­inu fjár­hæð ógiltra veð­skjala.“

Margir þegar tapað miklu

Arion banki hefur þegar afskrifað 4,8 millj­­­­­arða króna vegna verk­efn­is­ins.

En fleiri hafa tapað stórum fjár­­hæð­­um. Frjálsi líf­eyr­is­­­­­sjóð­­­­­ur­inn, sem fjár­­­­­­­­­festi 1.178 millj­­­­­ónum króna í United Silicon, hefur fært niður virði þeirra hluta­bréfa og skulda­bréfa sem sjóð­­­­­ur­inn á í félag­inu um 100 pró­­­­­sent. Sömu sögu er að segja af Eft­ir­­­­­launa­­­­­sjóði félags íslenskra atvinn­u­flug­­­­­manna (EFÍA). Þar nemur nið­­­­­ur­­­­­færslan einnig 100 pró­­­­­sent­­­­­um. Líf­eyr­is­­­­­sjóð starfs­­­­­manna Bún­­­­­að­­­­­ar­­­­­banka Íslands (LSBÍ) fjár­­­­­­­festir einnig í verk­efn­inu. Arion banki rekur alla sjóð­ina þrjá, starfs­­­­­fólk bank­ans gegnir stjórn­­­­­un­­­­­ar­­­­­stöðum í þeim og þeir eru til húsa í höf­uð­­­­­stöðvum hans í Borg­­­­­ar­­­­túni.

Þá setti líf­eyr­is­­­­sjóð­­­­ur­inn Festa 875 millj­­­­ónir króna í United Silicon. Hann hefur einnig fram­­­­kvæmt var­úð­­­­ar­n­ið­­­­ur­­­­færslu vegna verk­efn­is­ins.

Mikil andstaða á meðal íbúa

Starf­semi kís­il­verk­smiðju United Silicon stöðvuð 1. sept­em­ber í fyrra. eftir að Umhverf­is­­­stofnun tók ákvörðun þess efn­­­is. Óheim­ilt var að end­­­ur­ræsa ofn verk­smiðj­unnar nema með skrif­­­legri heim­ild frá stofn­un­inni að loknum full­nægj­andi end­­­ur­­­bótum og ítar­­­legu mati á þeim. Það mat mun, líkt og áður sagði, taka allt að 20 mán­uði.

[adspot]Í bréfi sem Umhverf­is­­­stofnun sendi til for­svar­s­­­manna United Silicon föst­u­dag­inn 19. jan­úar 2018 kom fram að ráð­­­ast þurfi í úrbætur sem kosta um þrjá millj­­­arða króna áður en að verk­­­smiðjan fær að fara í gang að nýju. Í kjöl­farið var tekin ákvörðun um að setja félagið í þrot og færa eignir hennar yfir til nýs félags í eigu Arion banka. Það hefur síðan það hlut­verk að gera verk­smiðj­una starf­hæfa og selja hana síðan.

Mikil and­staða hefur byggst upp á meðal íbúa Reykja­nes­bæjar við frekarið stór­iðju í Helguvík. Sú and­staða snýr bæði að end­ur­ræs­ingu kís­il­málm­vers Stakks­bergs og fyr­ir­hug­aðri verk­smiðju félags­ins Thorsil á svæð­inu.

Vegna hennar hafa verið stofnuð félaga­sam­tökin „And­stæð­ingar stór­iðju í Helguvík“. Samtökin hafa staðið fyrir und­ir­skrifta­söfnun til að efna til bind­andi íbúa­kosn­inga vegna starf­semi Stakks­berg og Thorsil í Helguvík. Þau afhentu bæj­ar­yf­ir­völdum í Reykja­nesbæ und­ir­skrifta­lista 2.700 íbúa Reykja­nes­bæjar í vik­unni.

Samtökin vilja einnig að beiðni um breyt­ingar á deiliskipu­lagi í Helguvík verði hafnað og hafa falið lög­manni að óska eftir því við Umhverf­is­stofnun að starfs­leyfi Stakks­bergs verði aft­ur­kallað.

Kostnaðurinn nú þegar 22 milljarðar

Kjarninn greindi frá því um miðjan des­em­ber síð­ast­lið­inn að Stakks­berg, og þar af leið­andi Arion banki, hafi ekki hug á því að beygja sig undir þessar óskir. Þá var sagt frá því að Stakks­berg teldi að íbúa­kosn­ing um breyt­ingar á skipu­lagi á svæð­inu sem félagið hefur óskað eftir að láta vinna sé ekki lög­mæt.

Í bréfi sem félagið sendi Skipu­lags­stofnun, og Kjarninn hefur undir höndum, segir að „slíkar umsóknir verði að afgreiða á grund­velli lög­mætra og mál­efna­legra sjón­ar­miða en ekki í vin­sæld­ar­kosn­ingu.“ Þar var verið að vísa í und­ir­skrifta­söfn­un­ina sem þá stóð yfir.

Í bréf­inu segir lög­maður Stakks­berg að þegar hafi verið fall­ist á starf­sem­ina sem hafi fengið öll leyfi og sé meðal ann­ars með gilt starfs­leyfi. „Verk­smiðjan hefur þegar verið byggð á lóð­inni fyrir um 22 millj­arða króna. Um er að ræða rétt­indi sem njóti verndar eign­ar­rétt­ar­á­kvæðis 72. gr. stjórn­ar­skrár­innar og atvinnu­rétt­indi sem njóti verndar 75. gr. stjórn­ar­skrár. Um slík rétt­indi verði ekki kosið í almennum kosn­ingum að mati Stakks­berg ehf.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár