Ákvörðun Boris Johnson dæmd ólögmæt

Brexit hringekjan heldur áfram í breskum stjórn­málum.

Ákvörðun Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, um að gera hlé á þingstöfum í fimm vikur fyrir útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu, var í dag dæmd ólögleg af Hæstarétti Bretlands.

Í samtali við breska ríkis­útvarpið BBC segist Johnson ósammála niður­stöðunni en hann muni virða hana.

Þingið hefur ekki verið starfandi frá 10. september.

Allir dómarar við Hæstarétt voru sammála um að ákvörðun Johnson hafi verið brot á lögum, en forseti breska þingsins hefur nú ákvörðunar­vald um næstu skref og þá hvenær þingið taki til starfa. Í dómnum segir að ákvörðunin hafi verið valdið miklum áhrifum á lýðræðisleg grunn­gildi Bretlands og störf þingsins.

Johnson hafði áður fullyrt að ákvörðunin væri í samræmi við lög, og að stjórn hans fengi nú betri tíma til að undirbúa útgöngu Bretlands úr Evrópu­sambandinu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár