Fjárfestingafélag Björgólfs Thors lánaði yfir einn milljarð til félagsins sem keypti DV

Aðkoma Novators að kaupum og rekstri DV og tengdra miðla haustið 2017 hefur reynst afar kostnaðarsöm. Miðlarnir runnu inn í Torg, útgáfu­félag Frétta­blaðsins, í fyrra og lítið sem ekkert mun greiðast til baka af lánunum.

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag sem er leitt af Björgólfi Thor Björg­ólfs­syni, hafði lánað fyrr­verandi eig­anda útgáfu­fé­lags DV og tengdra miðla yfir einn milljarð króna um síðustu áramót. Lánveitingarnar hófust haustið 2017 þegar félagið, Dalsdalur ehf., keypti fjöl­miðlanna.

Lán­in, sem eru vaxta­laus og ekki með til­greindan gjald­daga, eru ólík­leg til að inn­heimt­ast í ljósi þess að útgáfu­fé­lag­ið, sem ber nafnið Frjáls fjöl­miðl­un, var rennt inn í Torg, útgáfu­fé­lag Frétta­blaðs­ins, í fyrra vegna þess að rekst­ur­inn stóð ekki undir sér og félagið var á fallandi fæt­i.

Sá sem kom fram fyrir hönd Dalsdals opinber­lega, og er skráður eigandi þess félags, er lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson. Hann vildi aldrei upplýsa um hvaðan fjármagn til að kaupa og reka fjöl­miðlanna í miklum taprekstri hefði komið.

Á endanum var það Samkeppnis­eftirlitið sem opinberaði hver hefði fjár­magnað kaupin og tapreksturinn. Það reyndist vera Novator. Björgólfur Thor, sem er einn ríkasti maður heims, hefur aldrei upplýst af hverju hann ákvað að setja einn milljarð króna í þetta verkefni. Kjarninn sendi fyrir­spurnir á þáverandi talsmanns hans á árunum 2018 og 2019 og spurði um orðróm þess efnis að Björgólfur Thor fjár­magnaði DV og tengda miðla, en þeim orðrómi var ítrekað neitað.

Fjöl­miðla­nefnd kallaði líka eftir upp­lýs­ingum um það til að meta raun­veru­leg yfir­ráð yfir einu stærsta fjöl­miðla­fyr­ir­tæki á Íslandi en þær fyrir­spurnir voru einfald­lega hunsaðar.

Hluti af gömlum erjum

Kjarninn fjallaði ítarlega um málið í frétta­skýringu í maí í fyrra. Þar var meðal annars greint frá því að haustið 2017 hafi verið mikil dramatík á íslenskum fjölmiðla­markaði.

Mest var hún í kringum Pressu­sam­stæðu Björns Inga Hrafns­son­ar, sem hafði árin á undan farið mik­inn og sankað að sér allskyns fjöl­miðlum oft með skuld­settum yfir­tök­um.

Í apríl 2017 var til­kynnt um að hlutafé Pressunnar yrði aukið um 300 millj­ónir króna og að sam­hliða myndi Björn Ingi stíga til hlið­ar. Sá aðili sem ætl­aði að koma með mest fé inn í rekst­ur­inn var Fjár­fest­inga­fé­lagið Dal­ur­inn, félag í eigu Róberts Wessman, Árna Harð­ar­sonar og þriggja ann­arra manna, sem höfðu áður lánað Birni Inga. Með þeim var hópur ann­arra fjár­festa og svo virt­ist sem Pressu­sam­stæð­unni væri borg­ið.

Þessi hópur hefur eldað grátt silfur saman við Björgólf Thor Björg­ólfs­son árum sam­an, eða frá því að Róbert og Árni störf­uðu hjá Actavis þegar Björgólfur Thor átti það félag að mestu.

Í byrjun september 2017 var til­kynnt að Sig­­­urður G. Guð­jóns­­­son hæsta­rétt­­­ar­lög­­maður hef­ði ásamt hópi fjár­­­­­festa keypt flesta lyk­ilmiðla Pressu­sam­stæð­unnar með hluta­fjár­aukn­ingu. Um var að ræða DV, DV.is, Press­una, Eyj­una, Bleikt, ÍNN og tengda vefi. Eftir í gamla eign­ar­halds­fé­lag­inu voru skildir hér­aðs­frétta­miðl­ar. For­svars­menn Dals­ins sögðu að þeir hefðu ekki vitað um þennan gjörn­ing fyrr en hann var afstað­inn. Verið væri að selja undan þeim eignir sem þeir ættu með réttu.

til að nudda salti í sárin nefndi Sigurður G. yfirtöku­félagið, sem hirti eignirnar af Dalnum, Dalsdal ehf.

Rúmum tveimur árum síðar var ævintýrið úti og fjöl­miðlunum var rennt inn í Torg. Þá hafði útgáfu­félag DV og tengdra miðla tapað mörg hundruð milljónum króna.

Engar eiginlegar eignir eftir

Eina eign Dalsdals er útgáfu­félagið Frjáls fjöl­miðlun, sem hefur selt allar eignir sínar til Torgs. Því eru engar eiginlegar eignir eftir inni í Dalsdal til að greiða skuldir félagsins við Novator, sem stóðu í rúmlega einum milljarði króna í lok árs í fyrra.

Í frétt Stundarinnar um málið sem birt var fyrr í dag er haft eftir Sigurði G. að unnið sé að því að gera Dalsdal upp. Hann muni ekki hvað kaup­verðið á DV og tengdum miðlum hafi verið en að sölu­verðið til Torgs hafi verið ágætt.

Alls lánaði Novator Dalsdal 80 milljónir króna á árinu 2020 þrátt fyrir að búið væri að selja fjölmiðla félagsins til Torgs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár