Breskir milljarðamæringar græddu metfjárhæðir í heimsfaraldri kórónuveiru

Auður rík­ustu íbúa Bret­lands hefur aldrei vaxið jafn hratt og í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Breskir millj­arða­mær­ingar, í pundum talið, eiga nú yfir hund­rað þús­und millj­arða króna. Einn Íslend­ingur er á list­anum.

Kórónuveirufaraldurinn tæmdi götur borga á borð við London og hafði neikvæð áhrif á líf milljóna manna í Bretlandi. Á sama tíma högnuðust sumir milljarðamæringar sem aldrei fyrr.
Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn tæmdi götur borga á borð við London og hafði nei­kvæð áhrif á líf millj­óna manna í Bret­landi. Á sama tíma högn­uð­ust sumir millj­arða­mær­ingar sem aldrei fyrr. Mynd: EPA

Árið 2020, þegar heims­far­aldur kór­ónu­veiru geis­aði í heim­inum með til­heyr­andi mann­falli og tak­mörk­unum á lífs­gæðum millj­arða manna, hefur leitt af sér meiri auð­söfnun hjá rík­asta hópi Breta en áður hefur mælst.

Samkvæmt árlegum lista Sunday Times um rík­ustu ein­stak­linga Bret­lands jókst auður þeirra íbúa rík­is­ins sem mæl­ast millj­arða­mær­ingar í breskum pundum talið um 21,6 pró­sent á síð­asta ári. Þeir eru nú 171 tals­ins, 24 fleiri en þegar list­inn var tek­inn saman í fyrra, og hóp­ur­inn á sam­an­lagt um 598 millj­arða punda, eða 103.215 millj­arða íslenskra króna. Auður þessa hóps jókst um 22.294 millj­arða íslenskra króna á einu ári, eða 61 millj­arð króna á dag að jafn­aði. Á sama tíma lét­ust nálægt 130 þús­und manns úr COVID-19 í Bret­landi, millj­ónir íbúa lands­ins fóru á hluta­bætur og hund­ruð þús­unda misstu vinn­una.

Einn Íslendingur á listanum

Sá sem situr í efsta sæti á lista Sunday Times, sem var birtur um helg­ina, er Leonard Bla­vatnik. Hann er fjár­festir sem hefur meðal ann­ars verið umsvifa­mik­ill í tón­listar- og afþrey­ing­ar­geir­anum og á öðrum sviðum fjöl­miðl­unar. Í fyrra seldi hann stóran hlut í Warner Music útgáfuris­anum en á einnig umtals­vert af bréfum í honum áfram, sem hafa hækkað um 50 pró­sent í verði. Þetta er í annað sinn sem hann nær að vera í því sæti á list­anum, en því náði hann einnig árið 2015.

[adspot]Auður Bla­vatnik óx um sjö millj­arða punda, 1.208 millj­arða íslenskra króna, á síð­asta ári. Til að setja þá tölu í sam­hengi má nefna að sam­kvæmt fjár­lögum árs­ins 2021 áttu öll útgjöld íslenska rík­is­ins að vera 1.036 millj­arðar króna í ár.

Í úttekt­inni kemur fram að stærstu sig­ur­veg­arar síð­asta árs, þegar árangur er mældur í aukn­ingu á auð, séu eig­endur fyr­ir­tækja á borð við Boohoo, The Hut Group, Asos og Farfetch, sem leggja áherslu á net­verslun. Á sama tíma og sam­keppn­is­að­ilar þeirra sem reka hefð­bundnar versl­anir þurftu að loka mán­uðum saman vegna far­ald­urs­ins, var for­dæma­laust upp­grip hjá þessum aðilum.

Einn Íslend­ingur er á list­anum yfir 250 rík­ustu ein­stak­linga Bret­lands, Björgólfur Thor Björg­ólfs­son. Hann situr í sæti númer 100 og fellur um átta sæti milli ára. Auður Björg­ólfs Thors er met­inn á 1,6 millj­arða punda, um 276 millj­arða íslenskra króna, og jókst um 37 millj­ónir punda á síð­asta ári, eða um 6,4 millj­arða króna.

Jim Ratcliffe, aðal­eig­andi efna­fram­leiðslu­stór­veld­isins Ineos Group sem hefur stundað umfangs­mikil upp­kaup á jörðum á Íslandi, fellur á list­anum á milli ára, úr 5. sæti í sæti númer 25. Ratcliffe var í fyrsta sæti list­ans árið 2018 og tal­inn rík­asti maður Bret­lands það árið. Auður hans dróst veru­lega saman á síð­asta ári og er nú tal­inn nema 6,3 millj­örðum punda, alls 1.087 millj­örðum íslenskra króna.

Kallað eftir risaskatti

Í umfjöllun Sunday Times er meðal ann­ars fjallað um að sú mikla aukn­ing á auði rík­ustu íbúa Bret­lands, á sama tíma og stór hluti ann­arra íbúa hefur þurft að ganga í gegnum mikla erf­ið­leika og þján­ingar, hafi aukið þrýst­ing á stjórn­völd um að skatt­leggja COVID-19 auð­söfn­un­ina með nýstár­legum og afger­andi hætti.

Talið er að um 700 þús­und manns í Bret­landi hafi færst fyrir neðan fátæktr­ar­mörk vegna far­ald­urs­ins og sú tala hefði orðið mun hærri ef ekki væri fyrir umfangs­miklar aðgerðir stjórn­valda þar í landi, sem hafa leitt af sér fjár­laga­halla upp á 303 millj­arða punda, 52.300 millj­arða króna. Það er mesti halli á rekstri breska rík­is­ins síðan í seinni heim­styrj­öld­inni.

John Caudwell, sem sjálfur situr í 103. sæti list­ans og hefur hagnað gríð­ar­lega á fjar­skipta­mark­aðnum, hefur til að mynda kallað eftir því að Rishi Sunak, fjár­mála­ráð­herra Bret­lands, setji á sér­stakan ein­skiptis skatt vegna hagn­aðar síð­ast­lið­ins árs. Hann beinir spjótum sínum aðal­lega að þeim sem hagn­ast hafa sér­stak­lega vegna tak­markanna sem aðrir hafa orðið fyrir.

Á sama stað kall­aði Caudwell skatta­snið­göngu sem lengi hefur tíðkast hjá hinum ofur­ríku, sem nær allir borga mun minna hlut­fall af árlegum ágóða sínum í skatta en þeir sem vinna hjá þeim, „sjúk­dóm“. Caudwell sagði að sér­staki skatt­ur­inn ætti að vera svip­aður að umfangi og hagn­aður við­kom­andi af því að tak­mark­anir voru settar á aðra fleti sam­fé­lags­ins til að berj­ast gegn kór­ónu­veiru­far­aldr­inum. Ein­faldasta leiðin væri að leggja á ein­skiptis 90 pró­sent skatt á allan hagnað sem rekja megi beint til far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár