Ráðuneytið afgreiddi upplýsingabeiðnir um Downey og Hjalta með ólíkum hætti

Dóms­mála­ráðu­neytið veitti Stund­inni umsvifa­laust aðgang að bréfi um upp­reist æru Roberts Downey þegar þess var óskað en hefur enn ekki afhent bréfið í máli Hjalta Hauks­sonar.

Dóms­mála­ráðu­neytið afhenti Stund­inni bréf vegna til­lögu fyrr­ver­andi inn­an­rík­is­ráð­herra um upp­reist æru kyn­ferð­is­brota­manns­ins Roberts Downey sama dag og Stundin óskaði eftir slíkum upp­lýs­ingum, þann 3. ágúst síð­ast­lið­inn.

Ráðu­neytið hefur hins vegar enn ekki afhent sams konar bréf um upp­reist æru Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar þótt meira en tvær vikur séu liðnar síðan þess var óskað. Stundin sendi upp­lýs­inga­beiðn­ina 28. ágúst, ítrekað beiðn­ina 31. ágúst og aftur í þess­ari viku en hefur ekki fengið bréfið afhent. 

Nú liggur fyrir að Hjalti Sigurjón fékk með­mæli frá Benedikt Sveins­syni, föður Bjarna Bene­dikts­sonar, þegar hann sótti um upp­reist æru í fyrra. 

Stundin sendi ráðu­neyt­inu eft­ir­far­andi fyr­ir­spurn þann 6. sept­em­ber eftir að blaðið fékk upp­lýs­ingar sem taldar voru trú­verð­ugar um að Hjalti hefði fengið með­mæli frá Benedikt:

1. Tengist einn af umsagn­ar­að­ilum Hjalta Sig­ur­jóns Hauks­sonar, vegna upp­reistar æru hans, for­sæt­is­ráð­herra nánum fjöl­skyldu­böndum? 

2.  a) Ef já, vissi dóms­mála­ráð­herra af fjöl­skyldu­tengsl­unum þegar ákveðið var að upp­lýsa ekki um nöfn umsagn­ar­að­ila þeirra sem fengið hafa upp­reist æru og að svara ekki fyr­ir­spurnum þolenda um málin?  b) Upplýsti for­sæt­is­ráð­herra aðra ráð­herra um tengsl sín við umsagn­ar­að­ila eins af umsækj­endum um upp­reist æru þegar málin voru afgreidd úr rík­is­stjórn á haust­mán­uðum 2016?

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár