Kópavogur ræður ekki yfir háloftunum og Reykjavík löngu búin að semja við ríkið

Mál sem varða ónæði og jafnve meinta áþján íbúa, vegna einka- og þyrlu­flugs á Reykja­víkur­flugvelli, voru til umræðu í bæjarráði Kópavogs og borgar­ráði Reykja­víkur í vikunni.

Andri Steinn Hilmarsson bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks í Kópavogi og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi Vinstri grænna.
Andri Steinn Hilm­ars­son bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks í Kópavogi og Stefán Pálsson vara­borg­ar­full­trúi Vinstri grænna. Mynd: Samsett

Kópa­vogsbær hefur ekki lögsögu í loft­helginni yfir sveitar­félaginu, samkvæmt minnis­blaði sem bæjar­lögmaður Kópa­vogsbæjar lagði fyrir fund bæjarráðs í vikunni. Bæjar­fulltrúi Sjálfstæðis­flokksins, Andri Steinn Hilmarsson, hafði lagt fram fyrir­spurn til bæjar­lögmanns um heimildir bæjarins til þess að stýra loft­helginni yfir bænum. Þær eru ekki til staðar.

Ástæðan fyrir því að Andri Steinn lagði fram fyrir­spurnina er sú að flug­umferð frá Reykja­víkur­flugvelli hefur valdið íbúum á Kárnesi óþægindum, ekki síst sú mikla þyrlu­umferð sem var með ferðamenn frá Reykja­víkur­flugvelli að eldstöðvunum við Fagradals­fjall.

Andri Steinn lagði til á bæjar­stjórnar­fundi síðla í október að bæjar­yfirvöld beittu sér fyrir því að þyrlu­flugi, og raunar umferð einkaþota einnig, yrði komið fyrir annars staðar en á Reykja­víkur­flugvelli. Í máli Andra kom fram að Reykja­víkur­flugvöllur gegndi mikilvægu hlutverki í sjúkra­flugi, en að þyrluflug og flug­umferð einkaþota ætti ekki heima nærri íbúabyggð.

Í minnis­blaði bæjar­lögmanns er vísað til þess að samkvæmt lögum um lofthelgi fari ráðherra með yfir­stjórn flugmála á íslensku yfirráða­svæði, innviða­ráðuneytið fari um þessar mundir með málefni samgangna í lofti og Samgöngu­stofu sé í lögum um loft­ferðir falin umsjón og eftirlit með loftförum, flug­rekstrar­aðilum og flug­völlum, auk annars. Af þessu megi ráða að sveitar­félagið hafi ekki lögsögu yfir loft­helginni yfir sveitar­félaginu.

Of fá flug á Reykjavíkurflugvöll til að hávaðareglugerð gildi

Í svari bæjar­lögmannsins er einnig vakin athygli á því að samkvæmt lögum um lofthelgi hafi ráðherra heimild til þess að kveða á um sérstakar ráðstafanir til að draga úr hávaða á flug­völlum. Reglugerð frá 2015 sem fjalli um rekstrar­takmarkanir á flug­völlum vegna hávaða gildi hins vegar einungis um flugvelli þar sem flug­hreyfingar, eða komur og brott­farir, séu fleiri en 50 þúsund á almanaksári, að teknu tilliti til meðaltals síðustu þriggja almannaksára.

„Samkvæmt Isavia voru lendingar og brott­farir á Reykja­víkur­flugvelli árið 2021, 49.012 talsins, 20% fleiri en árið áður. Í október 2022 stóð talan í 37.225. Reykja­víkur­flugvöllur uppfyllir því ekki skilyrði um fjölda flug­hreyfinga til að ákvæði reglu­gerðarinnar séu virkjuð,“ segir í minnis­blaði bæjar­lögmanns.

Vinstri græn telja róttækar aðgerðir tímabærar

Reykja­víkur­flugvöllur var kjörnum fulltrúum í fleiri sveitar­félögum ofarlega í huga í vikunni. Á fundi borgar­ráðs Reykja­víkurborgar í gær, fimmtudag, var tekin fyrir tillaga Vinstri grænna um að borgar­stjóri beitti sér fyrir takmörkun umferðar einka­þotna og þyrla um Reykja­víkur­flugvöll. Tillagan var felld með sex atkvæðum fulltrúa meirihlutans og Sjálfstæðis­flokks, gegn einu atkvæði borgar­ráðs­fulltrúa Sósíalista­flokksins.

Í umsögn skrif­stofu borgar­stjóra og borgar­ritara um málið var bent á að samið var um það á milli ríkis og borgar árið 2013 að innan­ríkis­ráðuneytið, sem þá var, og Isavia, myndu hafa forgöngu um að finna kennslu- og einka­flugi annan stað í nágrenni Reykja­víkur.

„Þar sem umrædd samnings­skylda sem hvílir á herðum íslenska ríkisins er enn í fullu gildi og óumdeild meðal aðila samkomu­lagsins, er ekki talin ástæða til að Reykja­víkurborg hlutist til um að gera annað samkomulag við íslenska ríkið um sama atriði. Allt að einu er mikilvægt að Reykja­víkurborg haldi áfram umræddri samnings­skuld­bindingu á lofti gagnvart íslenska ríkinu með formlegum hætti,“ sagði í umsögn sem borgar­ritari skrifaði undir.

Stefán Pálsson, áheyrnar­fulltrúi Vinstri grænna í borgar­ráði, áréttaði í bókun mikilvægi tillögu flokksins um að „fela borgar­stjóra þegar að ganga til samninga við ríkis­valdið um að losa Reykja­víkur­flugvöll og þar með borgarbúa undan þeirri áþján sem hlýst af einkaþotu- og þyrlu­flugi á vellinum“.

„Í umsögn borgar­ritara um málið er vísað til níu ára gamals samkomu­lags ríkis og borgar um að færa einka- og kennslu­flug á annan stað. Sú staðreynd ein og sér að lítið hefur gerst í málinu í tæpan áratug ætti að staðfesta mikilvægi þess að hreyfa við því að nýju með róttækum hætti. Þá hafa forsendur breyst mikið á þeim tíma sem liðinn er, ekki síst varðandi stórkost­lega aukna þyrlu­umferð sem mörg telja enn meira truflandi en umferð flugvéla. Líklegt má telja að leysa mætti þyrlu­málin sérstak­lega án þess að tengja það ákvörðunum um framtíðar­miðstöð innan­lands­flugsins,“ sagði í bókun Stefáns Pálssonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár