Þingmaður Bjartrar framtíðar segir þögn um kynferðisbrot í Eyjum „algjört rugl“

Björt Ólafs­dóttir, þing­maður Bjartrar fram­tíðar, fjallar um bréf lög­reglu­stjór­ans í Vest­manna­eyjum þar sem hún fór fram á að við­bragðs­að­ilar á þjóð­há­tíð í Eyjum tjái sig ekki um kyn­ferð­is­brot við fjöl­miðla í stöðu­upp­færslu á Facebook, og kemst að þeirri nið­ur­stöðu að málið sé "algjört rugl".

Björt rekur málið, og rök­semdir fyrir því að upp­lýsa um tíðni kyn­ferð­is­brota, í löngu máli í færsl­unni. Í lok hennar spyr hún síðan: "Er betur hægt að rétt­læta þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum ef að fréttir af nauðg­unum eru þurk­aðar út svo allir góð­borg­ar­anir geti komið sér heim hressir eftir magn­aða helgi og halda áfram að lifa í lukk­unar vel­standi ófa­vit­andi hvað gekk á í næsta tjaldi?

Já nei, sorry. Allir nema þol­and­inn að kyn­ferð­is­of­beld­inu auð­vitað sem að lög­reglu­stjór­inn í Eyjum og fag­að­il­arnir allir, færa skömm­ina svo smekk­lega aftur á silf­ur­fati, einan og yfir­gefin til að bera."

// &lt;![CDATA[<br /> (function(d, s, id) { var js, fjs = d.get­El­em­ents­ByTagName(s)[0]; if (d.get­El­em­ent­ById(id)) return; js = d.createElement(s); js.id = id; js.src = "//connect.facebook.net/en_US/sdk.js#xfbml=1&#038;version=v2.3"; fjs.parent­N­ode.insert­Before(js, fjs);}(document, 'script', 'facebook-jssdk'));<br /> // ]]&gt;



Bréfið frá Páleyu Borg­þórs­dóttur lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum um þögn til fjöl­miðla vegna kyn­ferð­is­af­brota á þjóð­hátí...

Posted by Björt Ólafs­dóttir on Monday, August 3, 2015



Lögreglustjóri ásakaður um þöggun

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, sendi í

síð­ustu viku út bréf til allra við­bragðs­að­ila

sem tengj­ast þjóð­há­tíð í Eyjum og brýndi fyrir þeim að upp­lýsa fjöl­miðla ekki um kyn­ferð­is­brot sem upp koma á þjóð­há­tíð um helg­ina. Í bréf­inu, og í við­tölum eftir að það var sent, sagði Páley að þessar aðgerðir væru til að vernda þolendur kyn­ferð­is­brota fyrir umfjöllun.

Aðgerð­irnar hafa verið harð­lega gagn­rýndar, meðal ann­ars af Stíga­mótum, Blaða­manna­fé­lagi Íslands og Félagi frétta­manna. Gagn­rýn­is­radd­irnar snúa helst að því að með aðgerð­unum sé verið að stuðla að þöggun um kyn­ferð­is­brot sem sé alls ekki til þess að vernda þolendur, heldur láti þá sitja eina eftir með skömm­ina vegna kyn­ferð­is­brots þar sem þeir voru fórn­ar­lamb. Auk þess hafa ástæður aðgerð­anna verið dregnar í efa og gagn­rýn­is­raddir gefið í skyn að með þeim sé verið að vernda Þjóð­há­tíð í Eyjum, sem skapar miklar tekjur fyrir sam­fé­lagið í Vest­manna­eyjum, fyrir nei­kvæðri umfjöllun.

Páley hefur hins vegar hvergi kvikað frá upp­runa­legri afstöðu sinni og ekk­ert hefur verið upp­lýst um hvort kyn­ferð­is­brot hafi komið upp á Þjóð­há­tíð í ár. Hins vegar hafa fjöl­miðlar getað sagt fréttir af öðrum ofbeld­is­brotum, til dæmis lík­ams­árásum, sem átt hafi sér stað á hátíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár