Útgönguspá í Svíþjóð sýnir þingmeirihluta til vinstri

Útlit er fyrir að hægt verði að mynda nýja ríkis­stjórn vinstra megin við miðju í Svíþjóð, undir forsæti Sósíal­demókrata, samkvæmt útgönguspá SVT sem birt var um leið og kjör­staðir lokuðu kl. 18 að íslenskum tíma.

Magdalena Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar.
Magda­lena And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Mynd: EPA

Kjör­stöðum hefur verið lokað í Svíþjóð, en þar fara fara fram þing­kosningar í dag. Útgönguspá sænska ríkis­sjón­varpsins SVT var birt um leið og kjör­stöðum var lokað og sýnir hún að flokkarnir fjórir sem tilheyra vinstri­blokkinni eru með þing­meirihluta, sem er rýmri en síðasta skoðana­könnun á vegum SVT sýndi, eða 176 þingsæti gegn 173.

Sósíal­demókratar eru stærstir samkvæmt útgöngu­spánni, með 29,3 prósent atkvæða og Svíþjóðar­demókratar eru með 20,5 prósent, samkvæmt spánni. Enginn af minni flokkunum á þingi virðist eiga í mikilli hættu á að falla undir fjögurra prósenta þröskuldinn svokallaða, ef það mun gerast myndi það gjör­breyta stöðunni. Frjáls­lyndi flokkurinn (Liberalarna) er sá flokkur sem er næst því að falla undir þröskuldinn, en flokkurinn mælist með 4,7 prósenta fylgi samkvæmt útgöngu­spánni.

Afar mjótt er á munum, en samanlagt fylgi rauðgrænu blokkarinnar er 49,8 prósent gegn 49,2 prósent fylgi flokkanna hægra megin við miðju.

Útgönguspá SVT árið þing­kosningarnar 2018 var ekkert sérlega langt frá því að spá fyrir um úrslit kosninganna hjá flestum flokkum, þó með þeim undan­tekningum að Svíþjóðar­demókratar mældust um hátt í tveimur prósentu­stigum undir raun­verulegu kjörfylgi í útgöngu­spánni og Sósíal­demókratar og Hægri­flokkurinn (Moderatarna) voru mældir stærri í útgöngu­spánni en raunin varð, þegar atkvæði höfðu verið talin.

Allt verið innan skekkjumarka samkvæmt könnunum

Undan­farnar vikur hefur verið útlit fyrir að kosningar dagsins yrðu afar spennandi. Síðustu skoðana­kannanir í aðdrag­anda kosninganna sýndu að svo virtist sem meirihluti vinstri blokkarinnar á þingi gæti haldið, en að það yrði þá líklega með miklum naumindum. Sú er staðan samkvæmt útgöngu­spánni.

Samkvæmt síðustu skoðana­könnun rannsókna­fyrir­tækisins Novus fyrir SVT, sem birt var á föstudag, mældist rauðgræna blokkin vinstramegin við miðju, Sósíal­demókratar, Vinstri­flokkurinn, Græningjar og Miðflokkurinn, með 49,7 prósent fylgi. Borgara­legu öflin á hægri vængnum, auk Svíþjóðar­demókrata, mældust á sama tíma með 49,4 prósent fylgi samanlagt.

Þau úrslit hefðu samkvæmt útreikningum SVT skilað vinstri­blokkinni 175 þingsætum gegn 174 þingsætum borgara­legu aflanna og Svíþjóðar­demókrata, sem eygja eftir þessar kosningar í fyrsta sinn möguleika til áhrifa eftir að hafa áður verið úti í kuldanum í sænskum stjórn­málum, en á undan­förnum misserum hafa flokkar á hægri væng sænskra stjórn­mála opnað á samstarf við flokkinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár