Munu Sósíaldemókratar halda völdum með „rauðgrænum“ stuðningi?

Viðbrögð Magda­lenu And­ers­son for­sæt­is­ráð­herra við inn­rás Rússa í Úkraínu hafa styrkt stöðu við­kvæmrar minni­hluta­stjórnar Sós­í­alde­mókrata. Þó virð­ist áfram­hald­andi for­ysta þeirra eftir kosn­ingar velta á sam­starfi við tvo mjög ólíka flokka.

Magdalena Andresson, forsætisráðherra Svíþjóðar, í gleðigöngu í Stokkhólmi sem fór fram í byrjun þessa mánaðar.
Magda­lena Andresson, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar, í gleði­göngu í Stokk­hólmi sem fór fram í byrjun þessa mán­aðar. Mynd: EPA

Núna í sept­em­ber verða haldnar þing­kosn­ingar í Svíþjóð þar sem rúm­lega 7,5 millj­ónir Svía geta nýtt kosn­inga­rétt sinn en einnig er kosið í sveit­ar­stjórnir. Helstu átaka­línur kosn­ing­anna hafa verið að mynd­ast und­an­farið og virð­ast þrenn mál­efni ætla að verða þau helstu sem tek­ist verður á um: staða heil­brigðis- og mennta­kerfis, hækk­andi glæpa­tíðni og síð­ast en ekki síst þjóðar­ör­ygg­is­mál í ljósi hegð­unar Rússa í Evrópu.

Í fyrstu grein var farið yfir sögu sænskra stjórn­mála á seinni hluta síð­ustu aldar með áherslu á breyt­ingar í rekstri á vel­ferð­ar­kerf­inu. Í annarri grein var sjónum beint að póli­tísku lands­lagi síð­ustu ára og hvernig flokkar hins mögu­lega „blá­brúna“ banda­lags standa nú rétt fyrir kosn­ingar. Í þess­ari síð­ustu grein verður síðan rýnt í rík­is­stjórn Magda­lenu And­ers­son, hið mögu­lega „rauð­græna“ banda­lag og hvaða sviðs­myndir við gætum séð eftir kosn­ingar.

Núverandi kjörtímabil

Síðan í lok nóv­em­ber á síð­asta ári hefur eins­flokks minni­hluta­rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata (s. Socialdemokraterna) verið við völd, en hún stýrir land­inu með 28,65% meiri­hluta, þeim minnsta síðan 1979, með óvirkum stuðn­ingi Mið­flokks­ins (s. Centerpartiet), Vinstri­flokks­ins (s. Vän­ster­partiet) og Græn­ingja (s. Milj­ö­partiet). Það má segja að sú rík­is­stjórn sem nú er við völd sé eins konar síð­asti lif­andi afkom­andi fyrstu rík­is­stjórnar Stefan Löfven sem fyrst tók við völdum 2014. Síðan þá hefur ýmis­legt gerst.

Stjórn­ar­tíð Stefans Löfven (2014–2021) ein­kennd­ist einkum af brota­kenndum póli­tískum sjó þegar kom að þeim áskor­unum og verk­efnum sem fyrir lágu. Þá var það hans rík­is­stjórn sem tók við þeim mikla straumi af flótta­fólki árið 2015 og árið þar á eftir. Þar að auki var fyrsta hryðju­verka­árás á sænskri grundu framin í hans stjórn­ar­tíð vorið 2017. Viðbrögð stjórn­valda við þessum áskor­unum virð­ast þó hafa fallið ágæt­lega í kramið á kjós­endum þar sem hún hélt að mörgu leyti enn velli eftir útkomu kosn­ing­anna 2018. Stefna sænskra stjórn­valda í sótt­varna­málum hefur þó tölu­vert verið gagn­rýnd, bæði heima fyrir og að utan, þó svo að sænskur almenn­ingur virð­ist almennt hafa stutt þær.

[adspot]Í dag leiðir Magda­lena And­ers­son rík­is­stjórn Sós­í­alde­mókrata en hún er jafn­framt fyrsti kven­kyns for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar. Það má eflaust velta fyrir sér hvers vegna það hafi tekið land líkt og Svíþjóð, sem lengi hefur legið fram­ar­lega þegar kemur að félags­legu jafn­rétti, svo langan tíma að velja sér sinn fyrsta kven­kyns for­sæt­is­ráð­herra. Einnig er rétt að greina frá því að hún tók við af Stefan Löfven á tals­vert storma­saman hátt þar sem hún var fyrst kjörin for­sæt­is­ráð­herra en sat aðeins í nokkrar klukku­stundir vegna óákveð­inna sam­starfs­flokka. Stuttu seinna tókst henni þó að tryggja emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra til lengri tíma, eða fram að næstu kosn­ingum er virð­ist.

Á þeim tíma­punkti virt­ist fram­tíð Sós­í­alde­mókrata sem leið­andi afl í rík­is­stjórn lands­ins heldur dökk og aðeins tíma­spurs­mál hvenær ný öfl tækju við. En síðan þá hefur fylgi flokks­ins þvert á móti auk­ist og virð­ast störf And­ers­son falla vel í kramið hjá mörgum lands­mönnum. Þegar And­ers­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra í lok nóv­em­ber síð­ast­liðnum var flokk­ur­inn að mæl­ast í sögu­legu lág­marki, eða með rúm­lega 25% fylgi. Í skoð­ana­könn­unum síðan þá hefur hann þó verið að mæl­ast með rúm­lega 31% fylgi en nú í ágúst mæld­ist flokk­ur­inn þó með 28,5% fylgi.

Þó eru mörg mál sem brenna á lands­mönnum og virð­ist vera tals­verður póli­tískur brot­sjór fyri stafni, rétt eins og hefur verið síð­ustu ár. En segja má að ákvörðun And­ers­son og Sós­í­alde­mókrata að styðja inn­göngu Svía í Norður-Atl­ants­hafs­banda­lagið (NATO) hafi skilað þeim auknu fylgi ásamt áherslum og fram­göngu nýs for­manns.

Framtíð Græningja

Áður en Magda­lena And­ers­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra og mynd­aði sína eins flokks rík­is­stjórn höfðu Græn­ingjar setið í rík­is­stjórn tals­vert lengi. Í takt við þetta hefur fylgi flokks­ins dalað tals­vert síð­ustu ár vegna erf­iðra mála­miðl­ana sem flokk­ur­inn hefur þurft að gera í inn­leið­ingu á grunn­stefnu­málum sínum er snerta lofts­lag og umhverfi.

Núna á síð­ustu mán­uðum hafa Græn­ingjar verið að mæl­ast undir þing­þrösk­uld­inum (4%) með rúm­lega 3,5% fylgi. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ist þó flokk­ur­inn með 4,5% fylgi. Áhuga­vert verður að sjá hvort leið­toga flokks­ins, Per Bolund, tak­ist að halda slíku fylgi en kosn­ing­arnar í sept­em­ber koma til með að verða mikil þrekraun. Á síð­ustu vikum hefur flokk­ur­inn einna helst reynt að minna kjós­endur á að það sé í raun bara einn flokkur sem setur lofts­lags­að­gerðir fremst í stefnu­mál sín.

Prinsipp Vinstriflokksins

Síðustu ár hefur Vinstri­flokk­ur­inn helst verið áber­andi fyrir hlut­verk sitt í þeim rík­is­stjórnum sem mynd­aðar hafa verið eftir síð­ustu kosn­ingar og hvernig fyrir þeim fór á end­anum. Fylgi flokks­ins hefur verið nokkuð stöðugt síðan þá en hann hefur staðið fast við sín bar­áttu­mál og ekki að kostn­að­ar­lausu. Það má nefni­lega rekja rík­is­stjórn­ar­krís­una sem skall á sum­arið 2021 til harðrar and­stöðu Vinstri­flokks­ins við upp­töku mark­aðs­stýrðrar leigu í stað hins almenna eft­ir­lits með húsa­leigu í nýbyggðum íbúðum. Þessi stefnu­breyt­ing var eitt af mörgum atriðum Jan­ú­ar­sam­komu­lags­ins svo­kall­aða sem var ígildi stjórn­ar­sátt­mála Sós­í­alde­mókra­ta­flokks­ins og Græn­ingja. Þetta sam­komu­lag var síðan stutt beint af Mið­flokknum og Frjáls­lynda flokknum (s. Liberal­erna), en þessir tveir síð­ast­nefndu flokkar voru þeir sem kröfð­ust þess að það yrði með.

En þó svo að Vinstri­flokk­ur­inn hafi ekki verið með í þessu rík­is­stjórn­ar­sam­komu­lagi reiddi það sig samt sem áður á stuðn­ing flokks­ins en þó hafði þáver­andi for­maður flokks­ins Jonas Sjöstedt gefið að út að flokk­ur­inn myndi bera fram van­traust­s­til­lögu á rík­is­stjórn Stefan Löfvens. Í byrjun júní árið 2021 lagði svo rík­is­stjórnin fram til­lögu fyrir þingið að fjar­lægja leigu­eft­ir­lit í nýjum íbúa­bygg­ingum og til­kynnti núver­andi for­maður Vinstri­flokks­ins, Nooshi Dagostar, að flokk­ur­inn bæri ekki lengur traust til rík­is­stjórn­ar­innar.

Vantrauststillaga samþykkt

Þann 21. júní 2021 var á end­anum van­traust­s­til­laga borin upp á hendur Stefan Löfven sem var sam­þykkt í sögu­legri atkvæða­greiðslu með stuðn­ingi Sví­þjóð­ar­demókrata (s. Sverig­edemokra­terna), Hægri­flokks­ins (s. Modera­terna) og Krist­inna demókrata (s. Krist­demokra­terna) – sem sáu sér leik á borði. Aldrei í sögu sænskra stjórn­mála hafði sitj­andi for­sæt­is­ráð­herra verið velt úr stóli með slíkum hætti. Einnig er vert að taka fram að það var ekki Vinstri­flokk­ur­inn sem kall­aði eftir sjálfri atkvæða­greiðsl­unni heldur voru það Sví­þjóð­ar­demókratar sem voru ekki lengi að bregð­ast við stöð­unni.

Eftir að nið­ur­staðan varð ljós fékk Ulf Kristers­son for­maður Hægri­flokks­ins umboð til að mynda nýja rík­is­stjórn, sem hann reyndi að gera með Kristnum demókrötum, Sví­þjóð­ar­demókrötum og Frjáls­lynda flokknum. Það tókst þó ekki en ein­ungis það að Frjáls­lyndi flokk­ur­inn hafi verið reiðu­bú­inn að styðja rík­is­stjórn sem væri að ein­hverju leyti mynduð af Sví­þjóð­ar­demókrötum sýndi hversu langt þessi síð­ar­nefndi flokkur var kom­inn inn í meg­in­straum stjórn­mál­anna. Töldu sumir að nú væri fokið í flest skjól. Stefan Löfven var svo aftur kos­inn for­sæt­is­ráð­herra þegar sjór­inn hafði róast en til­kynnti jafn­framt að hann myndi víkja úr stóli áður en árið væri úti. Þegar atvikið í sjón­varps­salnum sem nefnt var hér á undan átti sér stað síð­asta haust var Per Bolund umhverf­is­ráð­herra í við­kvæmri rík­is­stjórn Stefans Löfven sem þá hafði tekið við. Síðan þá hafa Græn­ingjar með Per Bolund í far­ar­broddi vikið úr rík­is­stjórn­inni en þar áður hafði Vinstri­flokk­ur­inn með Nooshi Dagostar í far­ar­broddi gert slíkt hið sama.

[adspot]Ljóst er að flokkar sem ætli sér að mynda rík­is­stjórn eftir kom­andi kosn­ingar þurfi að hugsa sig var­lega um áður en haldið er í sam­starf með Vinstri­flokknum ef grunnósætti er til staðar frá byrjun. Jafn­framt hefur flokk­ur­inn kynnt stór stefnu­mál sem fel­ast meðal ann­ars í því að bola einka­fram­taki úr skólum og stöðva allar arð­greiðslur úr mennta­kerfi lands­ins. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ist Vinstri­flokk­ur­inn með 9,7% fylgi.

Þó er vert að taka það fram að Mið­flokk­ur­inn féll á end­anum frá því að inn­leiða þessa breyt­ingu á leigu­mark­aðnum og ákvað Frjáls­lyndi flokk­ur­inn að lokum að falla frá frek­ari við­ræðum við Mið­flokk­inn varð­andi áfram­hald­andi sam­starf.

Annie Lööf og hennar breiða miðja

Annie Lööf hefur leitt Mið­flokk­inn í meira en ára­tug en þegar hún tók við stjórn­ar­taumum flokks­ins varð hún yngsti for­maður hans í sög­unni, aðeins 29 ára gömul. Eftir kosn­ing­arnar 2018 var það raun­hæfur mögu­leiki að Lööf myndi mynda sam­steypu­rík­is­stjórn út frá miðju og jafn­framt leiða hana en þær til­raunir gengu þó ekki á end­anum. Stuðn­ingur flokks­ins við síð­ustu rík­is­stjórn sem mynduð var með Jan­ú­ar­sam­komu­lag­inu braut jafn­framt upp blokk­arpóli­tík lands­ins þar sem hann hafði nær ætíð leitað til hægri í rík­is­stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum.

Frá síð­ustu kosn­ingum hefur Mið­flokk­ur­inn verið að mæl­ast með rúm­lega 7–9% fylgi en nú í vor virt­ust aðeins rúm­lega 5% kjós­enda ætla að gefa honum atkvæði sitt. Líklega hafði flokk­ur­inn þá verið að missa fylgi til Sós­í­alde­mókrata undir nýrri for­ystu And­ers­son. En eins þver­stæðu­kennt og það kann að vera að þá er það Sós­íal­emókrötum í hag að Mið­flokk­ur­inn hafi hraust­legt fylgi þannig að rétt­læt­an­legt sé að mynda rík­is­stjórn með þeim. Í síð­ustu skoð­ana­könnun mæld­ist flokk­ur­inn með 6% fylgi. Und­an­farið hefur flokk­ur­inn sett hvað mesta áherslu á lofts­lags­mál og reynir að koma fram sem tölu­vert grænni flokkur en fólki hefur þótt hann verið.

Nýir vindar innan raða Sósíaldemókrata

Í dag standa hinir ráð­andi flokkar síð­ustu ára­tuga – helst Sós­í­alde­mókratar og Hægri­flokk­ur­inn – frammi fyrir vax­andi óánægju meðal almenn­ings vegna stöðu mála þegar kemur að vax­andi glæpa­tíðni og stöðu vel­ferð­ar­kerf­is­ins. Segja má að Sví­þjóð­ar­demókratar séu ákveðin birt­ing­ar­mynd þeirrar óánægju. Þó er Svíþjóð í dag enn leið­togi á sviði jafn­rétt­is­mála á alþjóð­legum skala og virð­ist það vera almennt svo að almenn­ingur er hlynntur jafn­rétt­is­á­herslum. Ákveðin þver­sögn fylgir þessu samt sem áður þar sem tekju­ó­jöfn­uður, fátækt og heim­il­is­leysi hefur haldið áfram að aukast í land­inu á und­an­förnum árum.

Í takt við breytt efna­hags­legt lands­lag sem mynd­ast hefur í gegnum árin hefur flokkur Sós­í­alde­mókrata færst tölu­vert nær miðju þegar liðið hefur á tutt­ug­ustu og fyrstu öld, líkt og margir svip­aðir flokkar í Evrópu hafa gert. Myndu sumir jafn­vel segja að Vinstri­flokk­ur­inn í dag standi fyrir því sem Sós­í­alde­mókratar stóðu eitt sinn fyrir. Flokk­ur­inn er þannig orð­inn mark­aðsvænni en einnig hefur hann þurft að aðlaga sig að mála­miðl­unum úr ýmsum áttum, miklu meira en aðrir flokkar á síð­ustu árum. Jafn­framt er flokk­ur­inn sá rík­asti í Svíþjóð og með lang burð­ar­mesta bak­landið.

Stríðið hefur áhrif

Innrás Rúss­lands í Úkraínu hefur breytt örygg­is­á­standi flestra landa í Evrópu til muna. Jafn­framt hefur það ber­sýni­lega haft áhrif á núver­andi stuðn­ing við stjórn­mála­flokka í land­inu, en þó hafa þau áhrif einna helst verið jákvæð fyrir einn flokk. Svo virð­ist sem allir flokkar hafi verið að tapa fylgi síðan stríðið hófst nema Sós­í­alde­mókratar, sem hafa aukið hressi­lega við sig í síð­ustu skoð­ana­könn­unum. Jafn­framt hefur ákvörðun flokks­ins um að hefja aðild­ar­við­ræður við NATO einnig haft jákvæð áhrif á fylgið sem og traust­vekj­andi nýr for­maður.

Eftir að Rússar réð­ust inn í Úkraínu í febr­úar á þessu ári hafa stjórn­ar­menn í Kreml hótað tölu­vert mörgum löndum sem dirfast myndu að blanda sér í aðgerðir þeirra. Þær hót­anir sem bár­ust til Sví­þjóðar og Finn­lands báru sér­stakan ugg með sér þar sem hvor­ugt þess­ara landa eru hluti af NATO. Frá lokum síð­ari heims­styrj­aldar hafa Rússar varað Svía og Finna við því að ganga í NATO og annað varn­ar­sam­starf til vest­urs. En það má segja að þegar hátt­semi og grimmd Rússa birt­ist heims­augum virt­ist „Rússa­grýlan“ loks­ins vera komin að dyra­gætt þess­ara tveggja landa og fór umræðan um ágæti NATO-aðildar af stað. Þar að auki hefur Pútín og gengi hans í Kreml verið að van­virða bæði land- og loft­helgi Sví­þjóðar, meðal ann­ars með því að fljúga kjarn­orku­vopnum aðeins í þeim til­gangi að hræða.

Innganga í NATO

Eftir að stjórn­völd bæði Sví­þjóðar og Finn­lands lýstu því form­lega yfir að þau hyggjust leit­ast eftir inn­göngu í NATO beið þeirra þó þungt grjót í vegi í formi and­stöðu Recep Tayyip Erdoğans Tyrk­lands­for­seta. Hún byggð­ist þó einna helst á frek­ari áætl­unum hans að berja á Kúrdum en hann vildi meina að Svíar hefðu stutt óbeint við Verka­lýðs­flokk Kúrda (PKK) sem Tyrk­lands­for­seti hafði bann­fært og stimplað sem hryðju­verka­sam­tök. Þannig hefðu Svíar stutt flokk­inn með því að veita með­limum hans hæli í gegnum tíð­ina.

Eftir nokkra fundi milli full­trúa Sví­þjóðar, Finn­lands og Tyrk­lands sam­þykkti Erdogan loks­ins að hleypa þessum ríkjum inn í banda­lagið. Ekki er alveg víst hvað sænsk stjórn­völd gáfu í stað­inn en ein­hverjir vildu meina að fjöldi kúr­danskra Svía með teng­ingu við PKK yrðu fram­seldir í klær Erdogans en slíkt verður þó að telj­ast ólík­legt enn sem komið er. Jafn­framt virð­ist and­stöðu Tyrk­lands við aðild Svía að NATO ekki alveg vera lokið og verður áhuga­vert að sjá hvernig þessi mál munu þró­ast þegar mynda á nýja rík­is­stjórn.

Áhugaverðir kjósendahópar

Þegar rýnt er í kom­andi kosn­ingar er áhuga­vert að skoða hverjir það eru sem kjósa. Sænski stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Henrik Ekengren Oscarsson telur upp fimm kjós­enda­hópa sem gætu ráðið úrslit­unum í kosn­ing­unum:

Í fyrsta lagi er það milli­stétt í og í kringum borgir sem til­heyra bæði miðj­unni þegar kemur að tekjum og þegar kemur að hinum póli­tíska skala.

Í öðru lagi er litið til ann­arrar kyn­slóðar inn­flytj­enda sem ef til vill kjósa öðru­vísi en for­eldrar þeirra hafa gert í gegnum tíð­ina. Sós­í­alde­mókratar hafa alltaf verið með mik­inn stuðn­ing meðal inn­flytj­enda og í hverfum eins og Ros­engård í Malmö og í ákveðnum hverfum við Jär­vafäl­tet í Stokk­hólmi þar sem yfir­gnæf­andi meiri­hluti íbúa eru inn­flytj­endur eða með inn­flytj­enda­bak­grunn. Þar mælist stuðn­ingur við Sós­í­alde­mókrata yfir 75%. Þó er vert að taka það fram að þótt það komi kannski mörgum á óvart miðað við stefnu þeirra að þá hafa Sví­þjóð­ar­demókratar einnig verið að sækja fylgi til inn­flytj­enda, sér­stak­lega ann­arrar kyn­slóða inn­flytj­enda á ýmsum stöðum.

Í þriðja lagi eru það fyr­ir­tækja­eig­endur sem nán­ast allir kjósa Hægri­flokk­inn en und­an­farið hefur þessi kjós­enda­hópur verið opn­ari fyrir lausnum Sví­þjóð­ar­demókrata sem hafa tekið upp breytta stefnu til að veiða fleiri atkvæði úr þessum hópi.

[adspot]Í fjórða lagi eru það stúd­entar sem eru rúm­lega 5-10% af þeim sem atkvæð­is­rétt hafa og virð­ast ætla að leggja meg­in­á­herslu á lofts­lags­mál í vali sínu.

Í fimmta og síð­asta lagi eru það lands­byggðar­í­búar sem virð­ist vera heldur óræður hópur sem getur jafn­framt haft mikil áhrif á nið­ur­stöður.

Mögulegar sviðsmyndir að loknum kosningum

Eins og staðan er núna virð­ast tvær sviðs­myndir lík­leg­astar að kosn­ingum loknum: ann­ars vegar gætu kosn­ing­arnar í sept­em­ber markað tíma­mót í sænskri stjórn­mála­sögu ef Sví­þjóð­ar­demókratar kom­ast til valda í sam­starfi við, eða með beinum stuðn­ingi við, Hægri­flokk­inn, Kristna demókrata og Frjáls­lynda flokk­inn. Miðað við nýj­ustu skoð­ana­kann­anir myndi slík rík­is­stjórn ná meiri­hluta en þessir þrír síð­ast­nefndu flokkar myndu helst aðeins vilja stuðn­ing Sví­þjóð­ar­demókrata við stjórn sína. Þó hefur Jimmie Åkesson, for­maður Sví­þjóð­ar­demókrata gefið það út að hann sæk­ist eftir því að verða for­sæt­is­ráð­herra og þannig leiða nýja rík­is­stjórn. Þó verður það að telj­ast ólík­legt eins og er. En víst er að ef Sví­þjóð­ar­demókratar setj­ast í rík­is­stjórn, eða veita henni stuðn­ing sinn, kemur flokk­ur­inn til með að þurfa gera mála­miðl­anir, eitt­hvað sem hann hefur aldrei þurft að gera áður. Þess vegna yrði áhuga­vert að sjá hvaða áhrif sam­eig­in­legt fjár­mála­frum­varp slíkrar rík­is­stjórnar myndi hafa á fylgi flokks­ins.

[links]Hins vegar gætu Sós­í­alde­mókratar haldið í völdin ásamt Mið­flokknum og með stuðn­ingi frá Vinstri­flokknum, ef Græn­ingjar ná ekki að halda sér inni á þingi. Þetta veltur mikið á því hvort Annie Lööf og Mið­flokk­ur­inn sé reiðu­bú­inn að starfa á ein­hvern hátt með Vinstri­flokknum eftir það sem gerð­ist síð­asta sumar. Hér verður einnig þörf á mála­miðl­unum ef þessi sam­setn­ing á að ganga. Annie Lööf hefur þegar sagt að hún og flokkur hennar treysti sér ekki í að mynda fjár­mála­á­ætlun þar sem Vinstri­flokk­ur­inn er ein­hvers staðar með í ráðum. Þó hefur Nooshi Dagostar nýlega nefnt að hún og flokkur hennar muni ekki „draga rauðar línur“ þegar kemur að mögu­legu sam­starfi við aðra flokka. Virðist þá flokk­ur­inn nú vilja hafa meiri áhrif og er þá mögu­lega opinn fyrir mála­miðl­unum.

Það eru þess vegna tveir kostir sem virð­ast lík­leg­astir núna en svo er aldrei að vita hvernig málin þró­ast þegar nið­ur­stöður kosn­ing­anna liggja fyrir. Enn getur ýmis­legt gerst fram að kosn­ingum og einnig geta orðið ófyr­ir­séðar vend­ingar að þeim lokum sem gætu breytt heil­miklu. Annie Lööf hefur til dæmis ýjað að því að hún vilji leiða stóra stjórn frá miðju til bæði hægri og vinstri – sá mögu­leiki er þó tals­vert ólík­legur eins og staðan er núna.

Jafn­framt hafa und­an­farið verið að mynd­ast ákveðin við­vör­un­ar­merki um að efna­hag­skreppa muni bíta sænskt hag­kerfi innan skamms. Nú í ágúst var slegið met í verði á raf­magni í land­inu, eins og víða ann­ars staðar í Evrópu, og mun mat­væla­verð lík­lega halda áfram að hækka. Með hækk­andi verð­bólgu og vöxtum virð­ast tölu­vert svartar blikur vera á lofti. Hag­fræði­stofnun Sví­þjóðar telur að efna­hag­skreppa muni lík­lega gera vart við sig snemma á næsta ári og verður sá ólgu­sjór eitt­hvað sem ný rík­is­stjórn mun þurfa að glíma við.

Að lokum er einnig mik­il­vægt að hugsa til þess að þótt erfitt virð­ist að ná sömu sam­fé­lags­legu sátt sem áður ríkti innan sænskra stjórn­mála vegna þeirra breyt­inga sem hafa átt sér stað í sænsku sam­fé­lagi er almenn vel­ferð eitt­hvað sem allir eiga að geta sam­mælst um að séu grunn­rétt­indi ein­stak­lings­ins (hvaðan svo sem hann kemur). Þess vegna ætti að vera hægt að mynda nýja sátt um þau grunn félags­hyggju­gildi sem eitt sinn byggðu þær sterku und­ir­stöður sem ein­kenndu Svíþjóð, og alla íbúa þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár