„Partýið búið“ á norskum húsnæðismarkaði eftir vaxtahækkanir

Eftir mikinn hita á húsnæðis­markaði í Noregi frá byrjun heims­faraldursins eru nú komin upp merki um að toppnum hafi verið náð í verð­hækkunum eftir að stýri­vextir voru hækkaðir þar í landi í haust.

Yfirhagfræðingur Nordea-bankans sér fram á rólegri tíma á norska húsnæðismarkaðnum.
Yfir­hag­fræð­ingur Nordea-bank­ans sér fram á rólegri tíma á norska hús­næð­is­mark­aðnum. Mynd: Nordea

Fasteigna­verð í Noregi lækkaði á milli mánaða, samkvæmt nýútgefnum tölum frá lands­samtökum fasteigna­sala þar í landi, Eiendom Norge. Að mati aðal­hagfræðings Nordea-bankans er „partýið búið“ á íbúða­markaði í Noregi og segir hann að búast megi við mun „skynsamlegri“ húsnæðis­markaði samhliða væntum stýri­vaxta­hækkunum.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um hefur verð­þróunin á íbúða­markaði hérlendis verið í takti við það sem er að gerast í nágranna­löndunum. Í Noregi var húsnæðis­verð búið að hækka um 10 prósent umfram verðbólgu á milli vormánaða árin 2020 og 2021, en til saman­burðar nam hækkunin hérlendis um átta prósentum á sama tíma.

Á síðustu tveimur mánuðum hefur íbúða­verðs­vísitalan í Noregi hins vegar staðið í stað, ef tekið er tillit til árstíða­breytinga. Í höfuðborg landsins, Ósló, lækkaði íbúða­verðið um 0,1 prósent ef árstíða­sveiflur eru teknar með í reikninginn.

Kjetil Olsen, aðal­hagfræðingur Nordea-bankans segir í viðtali við norska blaðið Dagens Næringsliv (DN) að verð­hækkanirnar hafi orðið mun hóflegri á síðustu sex mánuðum en þær voru.

Hóflegar verðhækkanir með vaxtahækkunum

„Þróunin er í takti við það sem við höfum sagt ansi lengi,“ sagði Olsen við DN. „Partýið er búið á fasteigna­markaðnum. Kröftugi vöxturinn sem er að baki var aðallega vegna vaxta­lækkana seðla­banka Noregs. Nú eru vextirnir á leið upp, sem mun leiða til „skynsamlegri“ markaðs.“

Seðla­banki Noregs ákvað að hækka stýri­vextina sína úr 0 prósentum upp í 0,25 prósent í september. Þetta var fyrsta stýri­vaxtahækkun bankans frá upphafi faraldursins, en vextirnir lækkuðu úr 1,5 prósenti niður í núll prósent í tveimur skrefum á tímum fyrstu bylgjunnar í fyrravor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár