Öll góð list sprettur úr þögn

Valbrá er yfir­skrift myndlistar­sýningar Huldu Vilhjálms­dóttur sem nú stendur yfir í Kling & Bang í Mars­hallhúsinu. Þar sýnir Hulda abstrakt­myndir sem hún segir túlka flæðið í nátt­úrunni og hreyfingar gróðurs undir vatni.

Talar í ljóðum
Talar í ljóðum Hulda er ekki aðeins með sýn­ingu undir nafn­inu Valbrá heldur er hún einnig að gefa út ljóða­bók með sama nafni, enda segja sumir vina hennar að hún tali í ljóðum. Kannski er það lista­mann­seðlið sem brýst þannig út. Mynd: Heiða Helgadóttir

Hulda gaf út ljóðabók með sama nafni, Valbrá, daginn sem sýningin var opnuð og nafnið er ekki valið út í bláinn heldur hefur sterka þýðingu fyrir hana persónu­lega.

„Ég er með valbrá – fæðingar­blett – á hand­leggnum og einn sumardag fyrir nokkrum árum fór ég upp úr þurru að setja saman ljóð sem henni tengjast. Valbráin er í senn eitthvað sem maður fæðist með og setur mark á mann og einhverjir óskiljanlegir duttlungar í nátt­úrunni sem við skiljum ekki. Það er það sem ég er að reyna að túlka.“

Eins og oft gerist hjá Huldu urðu ljóðin að myndum, myndirnar að ljóðum, en hún segist ekki gera sér grein fyrir því hvort komi á undan, fyrir henni sé mynd­listin ljóðræn og ljóð­listin myndræn og hún vinnur nánast jöfnum höndum með hvort tveggja.

„Ég er þó fyrst og fremst myndlistar­maður,“ segir hún þótt hún hafi meðfram mynd­listinni gefið …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár