Olíubann Frakka setur ný viðmið

Lög hafa verið samþykkt í Frakk­landi sem banna olíu­framleiðslu og olíuleit frá og með 2040 á frönsku yfirráða­svæði.

Frakk­landsþing hefur samþykkt lög sem banna olíu- og jarð­gasframleiðslu, auk olíu­leitar, á frönsku yfirráða­svæði frá og með 2040.

Emmanuel Macron, forseti Frakk­lands, fagnaði þessu sérstak­lega fyrir viku síðan, þegar löggjöfin var samþykkt.

Stjórn­völd í Frakk­landi hafa einnig kynnt áform um að banna bíla sem ganga fyrir olíu frá og með 2040. Fram að þeim tíma verði markvisst unnið að því að minnka olíu­notkun á öllum sviðum franska efnahags­lífsins.

Frakkar eru þó ekki mikil olíu­framleiðslu­þjóð. Um 99 prósent af olíu sem notuð er í Frakk­landi er innflutt, en um 1 prósent er framleitt á frönsku yfirráða­svæði. Að þessu leyti til er bannið fyrst og síðast táknrænt.

Macron lét hafa eftir sér þegar lögin voru samþykkt að Frakkland vildi verða leiðandi í því að uppfylla markmið Parísar­samkomu­lagsins og þannig vinna gegn hlýnun jarðar vegna mengunar af manna­völdum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár