Ferðaþjónusturisinn Thomas Cook gjaldþrota

Eftir margra mánaða dauða­stríð fór félag í gjaldþrota­meðferð. Breska ríkið mun þurfa að kosta til milljörðum til að koma viðskipta­vinum á leiðar­enda.

Hátt í 150 þúsund breskir ferðamenn eru stranda­glópar eftir að hið 178 ára gamla ferða­þjónustu­fyrirtæki, Thomas Cook, varð gjald­þrota í kvöld.

Samkvæmt breska ríkis­útvarpinu BBC er talið að ráðast þurfi í umfangsmestu fólks­flutninga frá seinni heim­styrjöldinni, en 94 flugvélar Thomas Cook hafa þegar verið kyrr­settar, og mun breska flugmála­stofnunin (BCAA) þurfa að sjá til þess að öllum verði flogið á leiðar­enda, í takt við áætlanir þar um þegar ferða­þjónustu­fyrirtæki verða gjald­þrota.

Alls tapast 9 þúsund störf við fall félagsins, auk þess sem óbein áhrif eru einnig mikil, og líklegt að tugþúsundir starfa geti tapast þegar öll kurl eru komin til grafar. Alls eru 600 þúsund ferðamenn í þeirri stöðu, að þurfa að breyta sinni ferða­áætlun vegna gjald­þrots Thomas Cook.

Í marga mánuði hefur verið reynt að rétta af rekstur félagsins og þurfti það að fá 200 milljónir punda inn í reksturinn, eða sem nemur um 31 milljarði króna, til að ná honum upp að ásættanlegu marki. Það tókst ekki og því fór félagið í gjaldþrot.

Grant Shapps, samgöngu­ráðherra Bretlands, segir í viðtali við BBC að það verði risavaxið verkefni að koma öllum á leiðar­enda, og biður ferðamenn sem verða fyrir óþægindum vegna gjald­þrotsins að sýna stillingu og vera samstarfsfús.

Breska ríkið mun leigja þotur til að koma öllum á leiðar­enda, og því er kostnaðurinn af fall félagsins umtalsverður fyrir breska skatt­greiðendur.

Stærsti hluthafi félagsins var kínverska félagsins Fosun, en samkvæmt BBC hefur félagið sent frá sér tilkynningu, þar sem fall félagsins er harmað. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár