Óróleiki í grænlenskum stjórnmálum

Sjö þing­menn græn­lenska þings­ins hafa kraf­ist þess að Kim Kielsen, for­maður Siumut flokks­ins og græn­lensku land­stjórn­ar­innar, segi af sér. Þeir segja Kielsen ekki hafa staðið við kosn­inga­lof­orð sín og lýsa yfir van­trausti sínu á honum.

Kim Kielsen
Kim Kielsen Mynd: EPA

Frá gær­morgni fram eftir degi var krísufundur á meðal flokks­með­lima Siumut, stærsta þing­flokks græn­lenska þings­ins og land­stjórnar Græn­lands. Fund­irnir komu í kjöl­far yfir­lýs­ingar sjö með­lima flokks­ins af tíu á mánu­dag um van­traust á Kim Kielsen, for­manni Siumut og for­manni græn­lensku land­stjórn­ar­innar. Þetta kemur fram á vef Sermitsiaq.

Óánægja með Kim Kielsen hefur kraumað í ein­hvern tíma og sendu þing­menn­irnir sjö frá sér sam­eig­in­lega frétta­til­kynn­ingu að þeir bæru ekki lengur traust til for­manns síns. Þing­menn­irnir hafa kraf­ist þess að Kielsen segi af sér sem for­maður Siumut og sem for­maður lands­stjórn­ar­innar.

Hinir sjö þing­menn eru Anders OIsen, Nikkulaat Jerim­i­as­sen, Henrik Fleischer, Erik Jensen, Laura Taunajik, Jens Dani­el­sen og Hermann Berthel­sen.

Segja Kielsen hafa svikið kosningaloforð

Þau skrifa í bréf­inu að Siumut hafi svikið kosn­inga­lof­orð sín, til að mynda hafi öllum auka­kvóta grá­lúðu verið deilt til Royal Greenland í stað þess að deila því til ungra sjó­manna sem vilja hefja eigin útgerð eða sjó­manna á fámennum stöðum Græn­lands.

For­mað­ur­inn hafi heldur ekki staðið við lof­orð um kvóta á veiðum náhvala. Það hafi verið kosn­inga­lof­orð að deila út auka kvóta til fleiri hval­veiði­manna, en Kielsen hafi ekki staðið við það.

Mun ekki segja af sér

Síðar í gær lýsti Kielsen því yfir að hann muni ekki segja af sér. „Við erum enn ósam­mála. En svona hefur þetta alltaf verið í Siumut flokknum, við erum góð í því. En við erum sam­mála um að bréf­inu skuli vera vísað til svæð­is­nefnda. Það gerum við til að fylgja reglu­gerð flokks­ins,“ sagði Kielsen í sam­tali við Sermitsiaq. Hann gat hins vegar ekki sagt hver næstu skref væru eftir að nefnd­irnar hefðu tekið bréfið fyrir.

„Siumut hefur á síð­ustu miss­erum starfað við afar erf­iðar aðstæður. For­mað­ur­inn hefur verið upp­vís að óvirð­ingu í hegðun sinni gagn­vart með­limum Inats­is­artut [græn­lenska þings­ins] og ekki síst gagn­vart kjós­endum sem hann hefur ekki vilja til að hlusta á,“ stendur í yfir­lýs­ing­unni. Þá stendur jafn­framt að ekki sé þörf á nýjum kosn­ingum nái þing­menn sam­hljómi um nýjan for­mann.

Í gær­kvöldi, eftir margra klukku­tíma fund þing­manna Siumut, kom í ljós að ekki yrði efnt til nýrra kosn­inga. Síðar í gær gaf Kielsen út að hann myndi ekki gefa kost á sér á ný sem for­maður flokks­ins á næsta lands­fundi.

Uppbygging flugvalla hluti af deilunni

Deil­urnar hafa staðið yfir í nokkra mán­uði en opin­ber­uð­ust síð­asta föstu­dag þegar for­maður fjár­laga­nefndar, Hermann Berthel­sen, tók undir kröfu stjórn­ar­and­stöð­unnar um að frestað skyldi und­ir­skrift verk­samn­inga um stækkun flug­valla. Flug­vell­irnir eru í Ilulissat og Nuuk, að því er kemur fram í frétt RÚV.

Málið hefur verið afar umdeilt í Græn­landi þar sem danska stjórnin og ríkið koma að stækkun flug­vall­anna, en Kielsen hefur ekki fall­ist á þær kröfur að fresta fram­kvæmd­unum. Sumir telja að aðkoma danska rík­is­ins að upp­bygg­ing­unni geti stefnt sjálf­stæði Græn­lands í tví­sýnu, að því er segir í frétt­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

3
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár