Íslenskar mæður missa tekjur við barneignir en feður ekki

Íslensk rannsókn sýnir að tekju­missir kvenna við barn­eignir er 36,5% til skemmri tíma en 34,5% eftir tíu ár.

Móðir og barn
Móðir og barn Tekju­missir kvenna við barn­eignir er tölu­verður sam­kvæmt nýrri rann­sókn. Mynd: Shutterstock

Tekjur mæðra verða fyrir neikvæðum áhrifum af barn­eignum, bæði til skemmri og lengri tíma, en ekki tekjur feðra. Þetta kemur fram í rannsókn Unu Margrétar Lyngdal, meistara­nema í hagfræði, sem birt var í Vísbendingu fyrir helgi.

Rann­sóknina vann Una í samstarfi við fjármála- og efnahags­ráðuneytið og studdist við gögn úr álagningar­skrám ríkis­skattstjóra fyrir árin 2003-2023.

Sýnir hún að tekjur karla hækka áfram árlega eftir fæðingu fyrsta barns, þó að hækkanirnar séu heldur lægri en fyrir barneign. Barn­eignir virðast því hafa afar lítil áhrif á tekjur karla. Hins vegar er tekju­missir kvenna við barn­eignir í hlutfalli við karla um 36,5 prósent eftir fimm ár og eftir tíu ár 34,5 prósent.

„Inn í raun­tekjur teljast fæðingar­orlofs­greiðslur og því innihalda tekjur mæðra og feðra á fyrsta og jafnvel öðru ári barnsins fæðingar­orlofs­greiðslur,“ segir í greininni.

Niður­staða hennar sýnir að lægri tekjur mæðra eftir barn­eignir geti haft efnahagsleg áhrif …

Kjósa
22
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár