Húsnæðismarkaði gjörbylt með dönsku leiðinni

Miklar og róttækar breytingar verða gerðar á íslenskum húsnæðis­markaði ef tillögur verk­efna­stjórnar um framtíðar­skipan húsnæðis­mála verða að frumvarpi og síðar lögum. Tillögurnar verða kynntar í dag. Á meðal þess sem þar er lagt til er að Íbúða­lánasjóður verði lagður niður í núverandi mynd og að hann hætti að lána, en lánasafn hans og skulda­bréf verði látin „vinda“ sig niður yfir líftíma skulda­bréfanna. Enn sem komið er mun vera ekki fyrir­hugað að fara í einhverskonar skilmála­breytingu á skulda­bréfunum sem myndi gera Íbúða­lánasjóði kleift að greiða þau upp fyrr en áður. Tillögur starfs­hópsins voru ræddar í ríkis­stjórn í morgun. Eygló Harðar­dóttir velferðar­ráðherra ber ábyrgð á vinnunni.

Í stað þessa kerfis verður farið svokölluð „dönsk-leið“ og sett upp nýtt húsnæðis­lánakerfi. Þar munu sérstök húsnæðis­lána­félög annast lánveitningarnar. Félögin munu gefa út sértryggða skuldabréfa­flokka og afrakstur af sölu þeirra mun notast til húsnæðis­lána. Eigendur þessarra félaga verða íslensk fjármála­fyrirtæki en auk þess verður sett upp nýtt opinbert húsnæðis­lána­félag. Munurinn á því og Íbúða­lánasjóði er að enginn ríkis­ábyrgð verður á starfsemi þess. Ríkið er því ekki alveg horfið af íbúða­lánamarkaði.

Húsnæðis­bætur og stofn­styrkir

Þá er stefnt að því að bregðast við kröfum um aukna niður­greiðslu á húsnæðis­kostnaði með sérstökum húsnæðis­bótum. Vaxta­bætur og húsaleigu­bætur verða sameinaðar undir því nafni. Þetta er hugmynd sem síðasta ríkis­stjórn vann líka mikið með en heimildir Kjarnans herma að myndarlegri fjárhæð verði varið í að hækka þessar bætur til handa húsnæðis­eigendum og leigjendum.

Tillögurnar munu líka miða að því að taka á því neyðar­ástandi sem ríkir á húsnæðis­markaði vegna skorts á minni íbúðum og gríðar­lega háum leigu­verði. Lagt verður til að leigu­félög sem verða ekki rekin með hagnaðar­sjónarmiðum muni fá sérstaka stofn­styrki frá hinu opinbera. Með þessu á að hvetja til byggingar á þessum eignum sem mest vöntun er á sem fyrst. Auk þess verða ýmsir hvatar sem eiga að auka framboð á leigu­íbúðum kynntir.

Ítarlega verður fjallað um málið og afleiðingar þess í Kjarnanum á fimmtudags­morgun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár