Bain Capital orðinn stærsti hluthafi Icelandair

Hluthafa­fundur Icelandair Group samþykkti í dag hlutafjár­aukningu félagsins vegna sölu á nýju hlutafé til bandarísks fjár­festinga­sjóðs, Bain Capital, sem verður með þessu stærsti hluthafi Icelandair Group.

Icelandair Group sækir sér rúma 8 milljarða króna með sölu á nýju hlutafé til bandaríska sjóðsins.
Icelandair Group sækir sér rúma 8 millj­arða króna með sölu á nýju hlutafé til banda­ríska sjóðs­ins. Mynd: Af vef Icelandair

Samþykkt var á hluthafa­fundi Icelandair Group síðdegis í dag að auka hlutafé í félaginu og gefa út áskriftar­réttindi í tengslum við samkomulag sem félagið gerði nýverið við bandaríska fjár­festinga­sjóðinn Bain Capital um að kaupa nýja hluti í félaginu fyrir um 8,1 milljarð króna.

Með þessari samþykkt er það staðfest að Bain Capital verður stærsti eigandi Icelandair Group, með 16,6 prósent hlut. Matthew Evans kemur inn í stjórn Icelandair Group fyrir hönd sjóðsins, en Úlfar Steindórsson víkur úr stjórninni eins og hann hafði sagst ætla að gera, yrði fallist á tillögurnar.

Guðmundur Hafsteinsson verður stjórnar­formaður og Nina Jonsson verður vara­formaður stjórnar Icelandair Group, samkvæmt tilkynningu frá félaginu.

Bain Capital, sem var meðal annars stofnað af fyrr­verandi forseta­fram­bjóðandanum og núverandi öldundardeildarþingmanninum Mitt Romney, fær áskriftar­réttindi fyrir hlutum sem samsvara 25 prósent af heildar­fjölda þeirra nýju hluta sem gefnir verða út. Bain Capital á eignar­safn sem er metið á um 130 milljarða Bandaríkja­dala.

Þessi heimild gildir í tíu daga frá og með birtingu uppgjörs Icelandair Group fyrir annan ársfjórðung, sem birt var á fimmtudag. „Áskriftar­réttindin veita Bain heimild, en ekki skyldu, til kaupa á nýjum almennum hlutum í félaginu á sama gengi á hvern hlut að viðbættum 15 prósent ársvöxtum,“ sagði í tilkynningu félagsins til Kaup­hallar Íslands fyrir um mánuði síðan.

Sóttu síðast nýtt hlutafé í september í fyrra

Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem Icelandair Group fer í hlutafjár­aukningu. Félagið safnaði alls 23 milljörðum króna í útboði sem fór fram í september í fyrra, en það hefur átt í miklum rekstrar­vanda um árabil sem jókst verulega þegar kórónu­veiru­faraldurinn skall á í fyrravor. Fjöldi hluthafa fór yfir ellefu þúsund eftir útboðið og því ljóst að fjölmargir einstaklingar keyptu fyrir litlar fjárhæðir í því.

Alls nam tap Icelandair Group um 45 millj­örðum króna á fyrri hluta árs­ins 2020. Stærstan hluta þess taps, sem nemur 245 millj­ónum króna á dag, má rekja beint til kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins.

Fyrir lá að félagið átti ekki nægt laust fé til að lifa mikið lengur við óbreyttar aðstæður. Tap Icelandair á árinu 2020 í heild var 51 milljarður króna og á fyrri helmingi ársins 2021 tapaði félagið tæpum 10,9 milljörðum króna.

Flug­félagið sækir sér nú meira hlutafé og hefur væntingar um að flug­áætlun félagsins árið 2022 verði um 80 prósent af því sem hún var árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár