Clinton og Trump sigruðu á ofur-þriðjudeginum

Hillary Clinton og Donald Trump voru sigurveg­arar hins svokallaða ofur-þriðjudags í forvali stærstu stjórn­málaflokka Banda­ríkjanna, Demókrata­flokksins og Repúblikana­flokksins, í gærkvöldi og nótt. Ofur-þriðjudagurinn, er óformlegt nafn á þeim degi þar sem flest ríki í Banda­ríkjunum halda forvöl fyrir forseta­kosningarnar.

Clinton sigraði í forvali demókrata í sjö af þeim ellefu ríkjum sem kosið var í í gær en keppinautur hennar um útnefninguna, Bernie Sanders, sigraði í fjórum. Staða Clinton í barátt­unni um að hljóta útnefningu demókrata fyrir forseta­kosningarnar í haust styrktist því mjög.Cl­int­on fékk flest at­kvæði í Ala­bama, Ark­ans­as, Georgia, Massachusetts,Tenn­essee, Texas og Virg­in­íu. Sand­ers sigraði hins vegar í Col­orado, Minnesota, Okla­homa og Vermont.

Hér að neðan má sjá sigurræðu hennar.

Hin óvænta sigur­ganga Donald Trump í barátt­unni fyrir að hljóta útnefningu repúblikana hélt áfram í gærkvöldi og nótt. Hann sigraði í alls sjö af þeim tíu ríkjum sem úrslit liggja þegar fyrir í. Ted Cruz sigraði í tveimur ríkjum, þar á meðal heimaríki sínu Texas. Hann sigraði einnig í Oklahoma, Marco Rubio varð hlut­skarpastur í einu ríki , Minnesota. Trump fékk flesta kjör­menn kjörna í Ala­bama, Ark­ans­as, Georgíu, Massachusetts, Tenn­essee, Vermont og Virg­in­íu. Trump hefur nú þegar tryggt sér 251kjörmann og þeim gæti fjölgað þegar líður á daginn í dag þegar talningu lýkur í fleiri ríkjum sem kosið var í. Alls þarf 1.237 kjörmenn til að tryggja sér útnefningu repúblikana og virðist fátt geta komið í veg fyrir að Trump hljóti hana.

Trump hélt ekki eiginlega sigurræðu heldur langan blaðamanna­fund. Hann má sá hér að neðan.

Kjarninn hefur fjallað ítarlega um bandarísku forseta­kosningarnar að undan­förnu. Hér má lesa tíu stað­reyndir um ofur-þriðjudaginn og hér má lesa frétta­skýringu Bryndísar Ísfoldar Hlöðvers­dóttur af vettvangi þeirra sem birtist um liðna helgi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár