Tíu staðreyndir um ofur-þriðjudaginn

  1. Super Tuesday, eða ofur-þriðju­dag­ur­inn, er óform­legt nafn á þeim degi þar sem flest ríki í Banda­ríkj­unum halda for­völ fyrir for­seta­kosn­ing­arnar. Þessi þriðju­dagur er ýmist í febr­úar eða mars það ár sem gengið er til for­seta­kosn­inga. 2016 er hann 1. mars. 

  2. Ríkin sem taka þátt í ofur-þriðju­deg­inum eru ekki alltaf þau sömu. Ástæðan er sú að hvert ríki um sig ákveður ferlið þar. Sums staðar eru haldnir kjör­fundir, ann­ars staðar eru for­kosn­ingar eða for­val. Forval er iðu­lega ákveðið af rík­inu sjálfu á meðan kjör­fundir eru yfir­leitt skipu­lagðir af flokk­unum í hverju ríki. 

  3. Í ár fer for­val fram hjá báðum flokkum í Alabama, Arkansas, Georgíu, Massachusetts, Minnesota, Oklahoma, Tennessee, Texas, Vermont og Virginíu. Repúblikanar halda að auki kjör­fund í Alaska og demókratar í Colorado, auk þess sem demókratar í Banda­ríska Samóa, sem er eyja­klasi í Kyrra­hafi undir banda­rískri stjórn, halda sitt for­val. 
    [adspot]
  4. Fleiri kjör­menn er hægt að vinna á ofur-þriðju­degi en nokkurn annan dag í þessu langa for­vali hjá Banda­ríkja­mönnum. Hjá repúblikönum eru 595 kjör­menn í boði, af 1.237 alls, á meðan demókratar berj­ast um 865 af 2.383. 

  5. Ofur-þriðju­dag­ur­inn er ákveðið mót­vægi við Iowa, þar sem fyrsta for­valið fer fram, en ríkið er ekki mjög dæmi­gert. Það er lítið ríki þar sem fram­bjóð­endur hafa oft varið miklum tíma. Ofur-þriðju­dag­ur­inn er þannig fyrsta prófið á lands­vísu fyrir fram­bjóð­endur, og iðu­lega er það svo að sá fram­bjóð­andi sem nær mestum árangri þennan dag endar sem for­seta­fram­bjóð­andi síns flokks. 

  6. Texas er stærsta ríkið og jafn­framt það sem hefur flesta kjör­menn hjá báðum flokkum. Þess vegna hafa fram­bjóð­endur varið miklum tíma og kröftum þar. 

  7. Samkvæmt nýrri könnun á lands­vísu er Donald Trump með mikið for­skot og fengi 49% atkvæða. Hillary Clinton mælist líka með mikið for­skot á Bernie Sanders, með 55% á móti 38% Sanders. Í ein­staka ríkjum eru þó ann­arra nið­ur­staða vænst. Hjá repúblikönum gæti orðið mjög stutt á milli Trump og Ted Cruz í Texas. Demókrata­megin er Sanders með mikið for­skot í heima­rík­inu Vermont, auk þess sem hann mælist með örlítið for­skot í Massachusetts og Oklahoma. 

  8. Repúblikanar hafa sett reglur um að í þeim ríkjum sem halda for­völ sín fyrir 15. mars verði að útdeila kjör­mönnum hlut­falls­lega, þannig að það sé ekki þannig að sig­ur­veg­ar­inn á hverjum stað fái alla kjör­menn­ina. Þetta breyt­ist hins vegar eftir 15. mars og þá koma inn nokkur stór ríki þar sem sig­ur­veg­ar­inn fær alla kjör­menn. 

  9. Hjá demókrötum er kjör­mönnum alls staðar deilt hlut­falls­lega, ef ofur­kjör­menn­irnir eru teknir út fyrir sviga.

  10. Búist er við því að úrslitin á morgun muni geta haft áhrif á áfram­haldið hjá ein­hverjum fram­bjóð­endum, að minnsta kosti hjá repúblikönum. Ben Carson er tal­inn lík­legur til að geta látið gott heita ef honum gengur áfram illa.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár