Spennan magnast og staðan breytist

Freku körlunum fjölgar fyrir Súper Þriðju­dag hjá repúblikönum á meðan Hillary tekur for­yst­una hjá demókrötum.

,Hann er lyg­ari og hann er fáviti” sagði Trump og benti á mót­fram­bjóð­endur sína sitt hvoru megin við sig. Það var í þessum stíl sem kapp­ræður repúblik­ana á fimmtu­dags­kvöld í Texas fóru fram og má með sanni segja að heit­ustu umræður á Alþingi blikn­uðu í sam­an­burði. Á þriðju­dag verður kosið í þrettán ríkjum í for­vali flokk­anna fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í Banda­ríkj­unum. Tveir fram­bjóð­endur repúblik­ana hellt­ust úr lest­inni í síð­ustu viku og nú eru fimm fram­bjóð­endur eftir repúblik­ana megin en Bernie Sanders og Hillary Clinton bít­ast um útnefn­ing­una hjá demókrötum. Aðeins hefur verið kosið í fjórum ríkjum enn sem komið er og því enn nokkuð óljóst hverjir munu leiða flokk­ana tvo í for­seta­kosn­ing­unum sem haldnar verða í nóv­em­ber á þessu ári.

Na,na,na,na,na,na..

Í Houston á fimmtu­dag mátti Trump þola að vera gagn­rýndur af mik­illi hörku af Marco Rubio, sem hann sjálfur hafði hjólað í af miklu offorsi í fyrri kapp­ræðum. Trump hafði upp­nefnt Rubio og kall­aði hann ,,Robot” við mik­inn fögnuð stuðn­ings­manna sinna, af því að honum þótti Rubio end­ur­taka sömu setn­ing­arnar aftur og aftur. Þetta virð­ist hafa komið illa við Rubio því í Houston náði hann fram hefndum þegar hann dró fram hverja gömlu synd Trumps af fætur annarri og slengdi þeim fram með drengs­legum til­burðum: ,,Þú varst dæmdur fyrir að borga ólög­legum inn­flytj­endum frá Póllandi laun þegar þú varst að byggja þessa Trump turna þína” lét Rubio hafa eftir sér og Trump var fljótur að svara ,,lygi”.

Eftir allar kapp­ræður hjá flokk­unum fara sjón­varp­stöðv­arnar gaum­gæfu­lega yfir það sem fram­bjóð­endur halda fram, til að kanna sann­leiks­gildi þess. Að þessu sinni kom í ljós að Rubio hafði rétti­lega verið að vitna í dóm sem féll um und­ir­verk­taka, sem höfðu unnið fyrir fyr­ir­tæki Trumps og var hann dæmdur til sekta vegna þessa. Og áfram hélt Rubio: ,,Ég skil ekki Trump, þetta við­skipta­stríð þitt við önnur lönd, þú fram­leiðir sjálfur bindi og boli í Kína, -hvernig ætlarðu að gera það þegar þú hefur farið í við­skipta­stríð við þá, af hverju fram­leiðir þú þetta ekki til í Ameríku?” Svar Trump var fremur aumt, ,,Þú veist ekk­ert um við­skipti” sagði hann og rambaði svo eitt­hvað óskýrt um kostnað við gjald­eyri. Rubio svar­aði sigri hrós­andi; ,,Nei ég veit ekk­ert um að fara á haus­inn fjórum sinnum”. ,,Þú ætlar svo auð­vitað að nota ólög­legt vinnu­afl frá Mexíkó til að byggja upp múr­inn þinn á landa­mærum Mexíkó” hélt Rubio áfram og hló dig­ur­barka­lega, loks búinn að ná sér niður á ,,freka karl­inum” með því að breyt­ast í hann.

Án efa sukku sumir kjós­endur djúpt í sóf­unum sínum yfir sjón­varp­inu af skömm á meðan aðrir færðu sig fram á sófa­brún­ina og klöpp­uðu. Þessari orða­hr­inu lauk svo þegar Rubio benti á að Trump hefði aldrei tek­ist að byggja upp veldið sitt ef hann hefði ekki fengið 200 millj­ónir Banda­ríkja­dala í for­gjöf sem hann erfði frá föður sínum, og ef þess hefði ekki notið við væri hann örugg­lega að selja gullúr á götu­hornum á Man­hattan. Sann­leiks­grein­inga­deild CNN kvitt­aði upp á flestar ásak­anir Rubio en lagði þó ekki í að spá fyrir um hvort millj­ón­irnar sem Trump erfði hefðu bjargað honum frá úra­söl­unni.

Rubio sést í mynd­band­inu knúa fram svör frá Trump um plön hans um heil­brigð­is­kerfið.

Segja má að Trump hafi fengið skerf af sínum eigin ein­elt­istil­burðum, sem hann hefur sjálfur ekki hikað við að beita. Þegar kapp­ræð­unum lauk tók Trump að verja sig á Twitter en tókst ekki betur en svo að honum tókst að hafa staf­setn­ing­ar­villur í öllum tweetunum.

Sem Rubio nýtti sér til að gera enn frek­ari grín af honum morg­un­inn eftir.

Enn er óljóst hvort þetta muni hafa áhrif á vin­sældir Trumps en það er hins vegar deg­inum ljós­ara að hann á úr háum söðli að detta.

Upplausnin og óánægja býr til rými fyrir nýtt afl

Hér er nú ekki ólík­legt að fólk spyrji sig hvað í ósköp­unum hafi orðið til þess að þessir menn séu það úrval sem kjós­endum repúblik­ana býðst til að velja úr til að verða næsta for­seti valda­mesta lands heims. Grein­ar­höf­undur spyr sig ítrekað að því sama. En kenn­ingar í stjórn­mála­fræði hafa sýnt það að þegar það verður upp­lausn í sam­fé­lagi þá gefst færi til þess að stokka upp í fast­mót­uðum valda­kerfum, eins og við þekkjum eftir hrunið á Íslandi þegar fjór­flokk­arnir hættu að vera einu flokk­arnir sem fólk treysti upp til hópa að vera við völd.

Þó er alls engin upp­lausn ríki í Banda­ríkj­unum, efna­hag­ur­inn er góður og atvinnu­leysi fremur lágt, en það má þó með sanni segja að síð­asti ára­tugur hefur reynst repúblikönum erf­iður. Eftir að hin gíf­ur­lega óvin­sæla stjórn G.W. Bush lét af völdum og upp­gangur Teboðs­ins tók yfir hluta flokks­ins hefur flokk­ur­inn verið sund­ur­leitur og ósam­stíga. Sú til­hneigð að vilja sjá alveg óhefð­bund­inn leið­toga eða ein­hvern sem kemur úr allt ann­ari átt taka við eftir allt sem á undan hefur gengið virð­ist því sam­eina marga hópa innan repúblik­ana.

Hinir hóf­sömu standa þó utan þessa hóps, sem og elíta flokks­ins.

Það sem vekur furðu í for­val­inu fyrir for­seta­kosn­ing­arnar er að fram­boð Bernie Sanders sem hefur boðað algjöra póli­tíska bylt­ingu hefur þó ekki náð meiri skrið­þunga en svo að kjör­sóknin í þeim ríkjum sem nú þegar hafa kosið hefur verið mun lægri en í tveim síð­ustu for­seta­for­völum demókrata. Sem dæmi voru 31% færri sem kusu hjá demókrötum í þetta sinn en síð­ast í Nevada en þar vann Hillary með tæpum fimm pró­sentu­stiga mun. Aftur á móti hefur fram­boð Donald Trumps ítrekað slegið kjör­sókn­ar­met í þeim ríkjum sem hafa kosið, en um hann er almennt sagt að hann muni aldrei fá meiri­hluta banda­rísku þjóð­ar­innar til að kjósa hann, en Trump sigr­aði Nevada með ríf­lega tutt­ugu pró­sentu­stiga mun á næsta manni. Nú velta menn og konur fyrir sér hvort þetta gæti verið rangt.

Hvernig fólk er líklegt til að kjósa Trump?

Mikill tími fer hér vestra í að rýna í hvers vegna fólki þykir fýsi­legt að kjósa mann eins og Trump. Við hefð­bundna skoðun á kyni, aldri, tekjum, menntun og búsetu, er erfitt að benda á eitt­hvað eitt, en hann er þó lík­legri til að ná til þeirra sem hafa litla menntun, lægri tekjur og er vin­sælli hjá körlum en konum. En eng­inn af þessum hópum er ein­göngu að kjósa Trump, né nægi­lega stór hluti svo hægt sé að tala um sterk ein­kenni kjós­enda­hóps hans.

Fleiri kenn­ingar hafa verið nefndar til að útskýra kjós­enda­hóp­inn, sem hefur eða ætlar að kjósa Trump.

Ein þeirra er að kjós­enda­hóp­ur­inn ein­kenn­ist af því að velja fram­bjóð­enda sem boðar aukið alræði (e. aut­horit­ari­an­ism) um fram aðra. Mælingar sýna að það sé mæl­an­legur munur á þeim sem eru lík­legri til að kjósa Trump og þeirra sem segj­ast vilja reisa miklar varnir til að tryggja röð og reglu og þá menn­ingu sem ríkir. Þetta styður könnun þriggja stjórn­mála­fræð­inga sem mælt hafa þessar kenndir kjós­enda í nokkra ára­tugi og rímar mjög vel það sem Trump hefur boðað, t.d. með þeim mikla múr, sem hann ætlar að byggja við landa­mæri Mexikó til að draga úr straumi ólög­legra inn­flytj­enda. Þessi hópur ein­kenn­ist af því að vera til­bún­ari en aðrir að fylgja sterkum leið­toga og þau sjá heims­mynd­ina í sterk­ari litum en aðrir, og ótt­ast mjög allar breyt­ingar. Óttinn við hryðju­verk er mik­ill og því áhersla á sterkar varnir mik­il­vægar þessum hóp.

Þó svo fram­boð Sanders veki upp vænt­ingar hjá mörgum kjós­endum að nú sé loks kom­inn tími til að færa sam­fé­lagið til auk­ins jöfn­uðar með rót­tækum aðgerðum, virð­ist að óánægjan með inn­herja frá Washington, ekki meiri en svo að Hillary Clinton virð­ist enn hafa yfir­burði sam­kvæmt könn­unum. Verulega hefur þó dregið úr for­skoti hennar upp á síðkastið. Spek­úlantar hér Vestra liggja nú yfir þessu flókna kerfi og reikna fram og til baka hvað þarf að gerst til að hver og einn kandi­dat geti unnið. Þessi vin­sæla leik­fimi sýnir manni að það er alls ekki frá­leitt að Sanders geti unnið Hillary þó sam­bland af heppni og góðri kjör­sókn er lík­lega sterkasta vopnið hans. Nate Silver töl­fræði­spek­úlant hefur reiknað út hvaða ríki Sanders þarf til að sigra for­valið en eins og staðan lítur út núna er ólík­legt að honum tak­ist að sigra.

Utanríkismálin

Í flestum ríkjum heims eru það sjaldn­ast skoð­anir stjórn­mála­manna um utan­rík­is­stjórn­mál sem ráða úrslitum í kosn­ingum, þar vega inn­an­rík­is­mál oft­ast nær meira máli. Hins vegar hefur hern­að­ar­brölt Banda­ríkj­anna og sá gíf­ur­legi fjöldi her­manna sem látið hefur lífið síðusta ára­tug í Írak setið í fólki, sem og ótt­inn við að átökin í Sýrlandi verði til þess að banda­rískir her­menn verið sendir í átökin af meira mæli en nú er.

Vefurinn The Amerian Conservative, sem eins og nafnið gefur til kynna til­heyrir íhalds­sam­ari gildum, hefur tekið saman afstöðu fram­bjóð­end­anna og gefið þeim ein­kunn. Það er áhuga­vert að skoða hvernig þessi hópur sér fram­bjóð­end­urnar því nið­ur­stöð­urnar eru fremur óvæntar. Góð ein­kunn þýðir að við­kom­andi fram­bjóð­andi mun sýna still­ingu (e. restra­int) en léleg ein­kunn táknar líkur á að vilja ráð­ast ein­hver­staðar inn eða blanda sér í átök af meiri mæli (e. interventionism) . Gefin er ein­kunn í sex flokkum, fjár­mögnun til hers­ins og svo afstaða til Rúss­lands, Íraks­stríðs­ins, Líbíu, Sýrlands og Íran samn­ings­ins. Af öllum fram­bjóð­endum fær Bernie Sanders hæstu ein­kunn vefs­ins eða B fyrir að vera lík­leg­astur til að halda að sér höndum og nota diplómat­íska leiðir til að leysa ágrein­ings­mál. Það að Sanders hafi kosið gegn Írak stríð­inu eykur enn á trú hans hjá kjós­endum sem hafa fengið sig full sadda af hern­að­ar­brölt­inu um heim all­ann.

Næst á eftir koma svo þeir Trump og Kasich með C í ein­kunn.

Helst er Trump ekki tal­inn lík­legur til að halda úti hern­aði í löndum eins og Sýrlandi þar sem ólík­legt er að lausn sé í sjón­máli, og er þannig lík­legri til að draga úr hern­aði en að auka hann.

Það sem vekur eft­ir­tekt er að Hillary fær lægri ein­kunn en Trump eða D í loka­ein­kunn. Vefurinn tekur þó fram að hún styðji helst hern­að­ar­í­tök í mann­úð­legum til­gangi en það er auð­vitað mjög umdeil­an­legt hvort auk­inn hern­aður slíkum til­fellum bæti afdrif fólks t.d. í Sýrlandi eða ekki. Verk hennar sem utan­rík­is­ráð­herra í stjórn Obama hefur einna mest áhrif á ein­kunn­ina. Cruz fær sömu ein­kunn og Hillary og er það sér í lagi er afstaða hans að ætla ,,teppa­leggja” Sýrland með sprengjum ef hann yrði kjör­inn sem hefur mestu áhrif á ein­kunn­ina hans. Hann er einnig fylgj­andi því að styrkja her­inn veru­lega fjár­hags­lega sem og vopna úkra­ínu­her til að standa í hár­inu á Rússum.

Þeir Rubio og Carson reka svo lest­ina og þykja þeir einna lík­leg­astir til að ausa auknu fé í her­inn og auka hern­að­ar­í­hlutun Banda­ríkja­manna veru­lega á öllum mögu­legum víg­stöðum. Allir fram­bjóð­endur repúblik­ana nema Kasich, vilja láta rifta nýund­ir­rit­uðum samn­ingi við Írana um tak­mörkun kjarna­vopna.

Línur skýrast á Súper – Þriðjudag

Hverjir verða svo fram­bjóð­endur flokk­anna að lokum kann að skýr­ast að ein­hverju leiti næsta þriðju­dag þegar verður kosið í for­vali flokk­anna í þrettán ríkjum. Þar á meðal í stórum ríkjum eins og Texas sem telja mikið í sam­keppn­ina um flest atkvæði eða kjör­menn eins og kerfið hér byggir upp á. Til að vinna útnefn­ingu demókrata þarf fram­bjóð­andi að fá 2,382 kjör­menn af þeim 4,763 sem eru í pott­inum. Eins og staðan er í dag eru þau nán­ast með jafna tölu kjör­manna en það er fyrir utan svo kall­aða súper kjör­menn sem til­heyra elítu flokks­ins og hafa flest allir lofað stuðn­ingi sínum við Hillary. Þetta þýðir að Sanders þarf í raun að vinna meira en helm­ing atkvæða til að yfir­stíga þetta for­skot Hillary, nú eða sann­færa elít­una að skipta um skoðun rétt fyrir lands­fund flokks­ins þar sem öll atkvæði kjör­mann­ana eru talin.

Þetta skrítna og flókna kerfi gerir það að verkum að svona for­völ geta orðið æsispenn­andi fram eftir vori, sér­stak­lega þegar mjótt er á munum. En málin skýr­ast þó betur og betur sér­stak­lega þegar stór ríki kjósa, sem hafa kjör­menn í sam­ræmi við stærð sína. Hins vegar getur hasar­inn orðið mjög mik­ill í síð­ustu ríkj­unum ef enn er mjótt á munum þegar kosið er í þeim í byrjun sum­ars. En oft er því nið­ur­staðan orðin ansi skýr eftir súper þriðju­dag­inn, þegar verður kosið í þrettán ríkjum og kjósa báðir flokkar í Alabama, Arkansas, Georgíu, Massachusetts, Oklahoma, Tennessee, Texas, Vermont og Virginíu.

Í Colorado og Minnesota halda báðir flokkar svo kjör­fundi (e. Caucus) en til við­bótar halda repúblikanar kjör­fundi í Alaska og Wyoming og demókratar í American Samóa.

Staðan í könn­unum fyrir þriðju­dag­inn mikla

Meðaltal nýj­ustu kann­anna mik­il­væg­ustu kosn­ing­unum á þriðju­dag af vefnum FiveT­hir­tyEight http://projects.fivethirtyeight.com/election-2016/primary-forecast/virginia-republican/

Repúblikanar

Alabama: Trump 35,5%, Rubio 18,8% Cruz 8,1%, Carson 8,1%, Kasich 6,8%

Georgía: Trump 38,2%, Rubio 19,8%, Cruz 17,3%, Carson 7,9% og Kasich 7%

Massachusetts: Trump 43,6%, Rubio 18,5%, Kasich 16,8%, Cruzz 10,2% Carson 3,6%

Oklahoma: Trump 30,1%, Rubio 21%, Cruz 20,7%, Carson 6,1% og Kasich 4,6%

Texas: Cruz 34,5%, Trump 25,6%, Rubio 17,8%, Kasich 6,1%, Carson 5,3%

Virginia: Trump 40,1%, Rubio 23,7%, Cruz 14,1%, Carson 6,8% og Kasich 6,7%

Demókratar

Arkansas: Hillary 56,9%, Sanders 32,4%

Georgía: Hillary 64,7%, Sanders 25,4%

Massachusetts: Hillary 47,7%, Sanders 45,3%

Oklahoma: Hillary 45,6%, Sanders 43%

Tennessee: Hillary 57,9%, 32,9%

Texas: Hillary 60,8%, Sanders 31,8%

Vermont: Sanders 85,9%, Hillary 10,2%

Virginia: Hillary 56,9%, Sanders 33,8%

Samkvæmt könn­unum lítur staðan þannig að lík­legt er að Trump vinni í öllum ríkj­unum nema í Texas en þar virð­ist Cruz vera nokkuð öruggur með tíu pró­sentu­stiga for­skot í sínu heima­ríki. En Texas telur mikið og því enn von fyrir Cruz eða Rubio að ná for­skoti fram yfir Trump en það verður hins­vegar mjög erfitt.

Hjá Demókrötum benda kann­anir til þess að Hillary sigri Texas örugg­lega og fái mik­inn meiri­hluta þeirra 222 kjör­manna sem til­heyra rík­inu. Mjótt er á munum á þeim Sanders og Hillary í Oklahoma og Massachuset en öll hin ríkin virð­ast munu kjósa Hillary í meir mæli, fyrir utan Vermont, heima­ríki Sanders sem hann mun sigra örugg­lega.

Eftir að hafa rýnt í kann­an­irnar verður maður samt að hafa í huga að kann­anir hafa ekki reynst eins áræð­in­legar upp á síðkastið og oft­ast áður, það er því ekk­ert í hendi. Það er svo allt eins lík­legt að fram­bjóð­endur kepp­ist við að spila út skíta­bombum á hvorn annan um helg­ina til að hafa áhrif á kjós­endur á þriðju­dag.

Á föstu­dag kom svo óvænt útspil rík­is­stjór­ans í New Jersey, Chris Christie sem nýverið dró fram­boð sitt til for­seta til baka, þar sem hann lýsti yfir stuðn­ingi við Trump. Christie hafði vegið hart að Trump í kapp­ræðum og þótti fremur fjarri honum í skoð­unum, ekki síst í inn­flytj­enda­málum. Á hinn bóg­inn mætti segja að þeim svipi til í stíl því Christie hefur líkt og Trump verið í hópi þeirra fram­bjóð­enda sem hafa talað umbúða­laust eða það sem kan­inn kallar ,,straight talk”. Allt bendir til þess að nú sé keppnin um hvern Trump velji sem vara­for­seta og útspil Christie hafi lyktað sterk­lega af þeirri ósk­hyggju.

Nú verður áhuga­vert að sjá hvort Jeb Bush, sem hætti fram­boði í síð­ustu viku lýsi einnig stuðn­ingi við ein­hvern þeirra sem eftir eru. Talið er að hinir örlátu styrkt­ar­að­ilar Bush af Wall Street muni færa sig yfir til Rubio, en margir bíða þó eftir að flokks elítan gefi skýr­ari vís­bend­ingu um hvert best sé að beina fjár­munum. Hver slíkir fjár­munir rata skiptir gríða­legu miklu máli fyrir fram­bjóð­endur því ekki bein­línis um neitt klink að ræða og sagan sýnir að þeir sem eyða mestum fjár­munum auka líkur sína til að vinna veru­lega, nema nátt­úr­lega þeir heiti Bush, það vöru­merki virð­ist búið að vera.

Á aðfara­nótt mið­viku­dags munu nið­ur­stöður for­val­anna fara að týn­ast inn, þá verður mik­il­vægt fyrir eld­heitasta áhuga­fólk um fram­tíð­ar­leið­toga hins ,,Frjálsa heims” að vera búið að poppa og koma sér vel fyrir framan sjón­varpið - og auð­vitað að vera með góða afsökun fyrir því að mæta í vinn­una á hádegi dag­inn eftir!

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár