Hugmynd um 20 prósent skatt á vörur frá Mexíkó fellur í grýttan jarðveg

Efnahags­stríð nýkjörins forseta Banda­ríkjanna gegn Mexíkó er þegar búið að skapa hörðustu milliríkja­deilu milli landanna í áraraðir.

Donald J. Trump hefur farið af stað með látum frá því hann sór embættis­eiðinn og tók við sem forseti Bandaríkjana fyrir um viku síðan.

Fyrsta vikan hefur einkennst af gríðar­legum mótmælum - raunar þeim mestu í sögu Banda­ríkjanna með mótmælum kvenna vítt og breitt um Banda­ríkin og heiminn allan, daginn eftir embættis­tökuna - og síðan umdeildum ákvörðunum á færibandi. Flestar voru þær fyrir­sjáanlegar og í takt við það sem hann sagði fyrir kosningar en engu að síður hefur komið á óvart hvað þær hafa verið afdráttar­lausar.

Þar á meðal voru ákvarðanir um að aftur­kalla heilbrigðis­tryggingar­kerfið sem nefnt hefur verið Obamacare, en það tryggði 20 milljónum manna aðgang að heilbrigðis­tryggingu sem annars höfðu hana ekki. Málið var eitt stærsta áherslumál Barack Obama.

Þá hefur verið tilkynnt um að veggurinn á landa­mærum Banda­ríkjanna og Mexíkó verði byggður. Trump segir að Mexíkó muni greiða fyrir múrinn en stjórn­völd þar hafa sagt að það komi ekki til greina. Í gær kynnti Sean Spicer, fjölmiðla­fulltrúi Donalds Trump, hugmynd um að lagður verði 20 prósent skattur á allar innfluttar vörur frá Mexíkó og peningarnarir notaðir til byggja múrinn.

Um leið og hugmyndirnar komu fram blossaði upp mikil reiði hjá stjórn­völdum í Mexíkó, sem sendur Trump og stjórn hans tóninn og sögðu augljóst að það yrðu bandarískir neytendur sem þyrftu að borga fyrir vegginn með hærra vöruverði. Vörur frá Mexíkó - þar á meðal ýmsar tegundir matvæla, raftækja og faratækja - væru nauðsynlegar fyrir Bandaríkja­markað og því myndi skatt­lagningin skila sér í hærra vöruverði.

Nokkrum klukku­tímum eftir yfir­lýsingu Spicer greindi hann síðan frá því að skatturinn væri aðeins ein hugmynd af mörgum sem til greina kæmi, en Trump gengi út frá því að Mexíkó borgaði fyrir vegginn.

Forseti Mexíkó Enrique Pena Nieto sagði augljóst að Mexíkó vildi ekki borga fyrir vegginn og myndi ekki gera það. Hann segist reiðu­búinn að efla samband Banda­ríkjanna og Mexíkó með skynsömu samstarfi og viðskipta­samningum. En Mexíkó láti ekki kúga sig.

Gríðar­legir hagsmunir eru í húfi fyrir Mexíkó en útflutningur fyrir­tækja landsins til Banda­ríkjanna nemur meira en 300 milljörðum Bandaríkja­dala á ári. Þessi 122 milljóna íbúa þjóð er nær alveg háð markaðs­svæði Banda­ríkjanna og gæti skatt­lagning sem þessi orðið bylmings­högg fyrir efnahag landsins.

Mark Meadows, þingmaður Repúblikana, sagði eftir að hugmyndin kom fram frá Spicer í gær að sértæk skatt­lagning eins og þessi væri yfirleitt ekki til góðs, og það væru á endanum neytendur sem þyrftu að greiða fyrir hana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár