Trump ákærður

Hefst þá næsti slagur í Banda­ríkjaþingi milli Demókrata og Repúblikana.

Fulltrúa­deild Banda­ríkjanna hefur samþykkt að ákæra Donald Trump, forseta Banda­ríkjanna, fyrir embættis­brot. Þetta er í þriðja skiptið í sögunni sem þetta gerist.

Verði hann fundinn sekur um það sem hann er sakaður um, mun hann verða settur af sem forseti Banda­ríkjanna, en ólíklegt þykir að það gerist þar sem Repúblikanar eru taldir líklegir til að styðja Trump og koma í veg fyrir að hann missi embættið.

Atkvæði fóru eftir flokks­línum en báðar ákærurnar voru samþykktar á grund­velli meirihluta Demókrata. Fyrri ákæran, hvað varðar misnotkun valds, var samþykkt með 230 atkvæðum gegn 197. Tveir demó­kratar, greiddu atkvæði gegn því að ákæra Trump, og einn sat hjá. Sú síðari, að standa í vegi þingsins varðandi rannsókn fulltrúa­deildarinnar, var samþykkt með 229 atkvæðum gegn 198.

Ákærurnar fara nú til öldunga­deildarinnar þar sem haldin verða réttarhöld, en þar eru Repúblikanar með meirihluta. Forseti hæstaréttar Banda­ríkjanna mun starfa sem dómari yfir réttar­höldunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár