Kynna áform um bann við leit og vinnslu olíu við Ísland

Umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið hefur birt í samráðs­gátt stjórn­valda áform um niður­fellingu laga um leit, rann­sóknir og vinnslu kolvetnis. Markmiðið er að tryggja að ekki fari fram olíuleit eða vinnsla í íslenskri efnahags­lögsögu.

Engin leit að olíu er stunduð við Ísland í dag.
Engin leit að olíu er stunduð við Ísland í dag. Mynd: Loftmynd/Nasa

Í samræmi við stefnu ríkis­stjórnar Katrínar Jakobs­dóttur, sem sett var fram í stjórnar­sáttmála ríkis­stjórnar­flokkanna þriggja, hefur umhverfis- og auðlinda­ráðuneytið birt í samráðs­gátt stjórn­valda áform um niður­fellingu laga um leit, rann­sóknir og vinnslu kolvetnis sem felur í sér bann við leit og vinnslu olíu í íslenskri efnahags­lögsögu.

Í stjórnar­sáttmála Framsóknar­flokks, Sjálfstæðis­flokks og Vinstri grænna frá því í nóvember er sett fram það markmið að Ísland nái kolefnis­hlutleysi og fullum orku­skiptum eigi síðar en árið 2040 og verði þá óháð jarðefna­eldsneyti fyrst ríkja. Ríkis­stjórnin muni ekki gefa út nein leyfi til olíu­leitar í efnahags­lögsögu Íslands.

Samkvæmt lögum nr. 73/1990 um eignar­rétt íslenska ríkisins að auðlindum hafs­botnsins má enginn leita að efnum til hagnýtingar á, í eða undir hafs­botninum utan netlaga í landhelgi, efnahags­lögsögu og land­grunni utan netlaga nema að fengnu skriflegu leyfi Orku­stofnunar. Með lögum nr. 13/2001 um leit, rann­sóknir og vinnslu kolvetnis var í löggjöfinni settur rammi um leyfis­veitingu fyrir leit, rann­sóknir og vinnslu kolvetnis.

Þannig gerir núgildandi löggjöf ráð fyrir að hægt sé að uppfylltum skilyrðum að fá útgefið leyfi til rann­sóknar og vinnslu kolvetnis í efnahags­lögsögu Íslands.

Engin olíuleit stunduð í dag

Nú er áformað að fella brott lög nr. 13/2001 um leit, rann­sóknir og vinnslu kolvetnis í takti við þá stefnu stjórn­valda að gefa ekki út leyfi til olíu­leitar í efnahags­lögsögu Íslands. Til samræmis við þá stefnu er ennfremur áformað að „orða með jákvæðum hætti“, líkt og segir í gögnum sem birt hafa verið í samráðs­gátt, bann við leit og vinnslu kolvetnis í efnahags­lögsögu Íslands í lögum nr. 73/1990 um eignar­rétt íslenska ríkisins að auðlindum hafs­botnsins.

Engir aðilar stunda í dag leit, rannsókn eða vinnslu kolvetnis í efnahags­lögsögunni.

„Áformin eru í samræmi við stefnu stjórn­valda um umhverfis­vernd og sjálfbæra þróun. Þar sem áformin fela í sér að lagt verið bann við starfsemi sem ekki er í reynd stunduð (leit og vinnsla olíu) hafa áformin ekki bein áhrif á umhverfi og sjálfbæra þróun nema að því leyti að þeim er ætlað að tryggja að ekki verði teknar ákvarðanir um að heimila tiltekna starfsemi sem er til þess fallin að hafa neikvæð áhrif á umhverfi og sjálfbæra þróun,“ segir í gögnum ráðuneytisins í samráðs­gáttinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár