Trump enn með bein tengsl við viðskiptaveldi sitt

Þrátt fyrir yfir­lýsingar um annað þá virðist Donald J. Trump enn vera með bein tengsl við viðskipta­veldi sitt. Þræðirnir eru ekki aðeins hjá börnum hans, eins og hann hafði áður haldið fram.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA

Donald J. Trump, forseti Banda­ríkjanna, hefur enn beina viðskipta­hagsmuni Trump Organization félaginu, sem börn hans stýra nú. Hann er sá eini sem nýtur góðs af sjóðnum Donald J Trump Revocable Trust. Kennitala forsetans er skráð fyrir sjóðnum en vefurinn ProRepublica greinir frá þessu og vitna til gagna sem hann hefur undir höndum. 

Tveir eldri synir forsetans, Eric og Donald Trump Jr., stýra viðskipta­veldinu en Bandaríkja­forseti hefur enn beina hagsmuni af því hvernig því er stýrt.

Sjóðurinn var færður í umsjá Donalds Trumps yngri og Allen Weisselbergs, fjármála­stjóra Trump veldisins, þremur dögum áður en Trump tók við embætti, 20. janúar síðastliðinn.

Sjóðurinn heldur utan um reiðufé sem Bandaríkja­forseti á, eftir sölu á hluta­bréfum í fyrra, auk eigna hans, á borð við Trump-turninn á Manhattan og sveita­setur hans í Flórída.

Samkvæmt lista Forbes í fyrra voru eignir Bandaríkja­forseta metnar á 3,7 milljarða Bandaríkja­dala eða sem nemur um 450 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár