Ríkið fær yfir 50 milljarða króna fyrir hlutinn í Íslandsbanka

Líkur eru fyrir því að lægri boð en 79 krónur á hlut fyrir bréf í Íslands­banka verði ekki samþykkt.

Í tilkynningu sem send var til Kaup­hallar Íslands í morgun tilkynning Banka­sýsla ríkisins, sem fer með hlut ríkis­sjóðs í Íslands­banka, að umsjónar­aðilar útboðs með hluti í bankanum hafi ráðlagt að leið­beinandi lokaverð fyrir útboðið sem nemur 79 krónur á hvern hlut. „Líkur eru fyrir því að lægri tilboð verði ekki samþykkt“.

Þetta eru efri mörk útboðs­bilsins og ef allt sem mögulega er til sölu verður selt, sem er sennilegt í ljósi þess að mikil umfram­eftirspurn er eftir bréfum í bankanum, mun ríkis­sjóður fái um 53 milljarða króna fyrir 35 prósent hlutinn sem seldur verður.

Áætlað er að útboðinu ljúki á hádegi á morgun, þriðjudaginn 15. júní 2021 og verða bréf í Íslands­banka í kjölfarið skráð á hlutabréfa­markað.

Þegar skráningar­lýsing Íslands­banka var birt í byrjun síðustu viku kom fram að hið leiðandi verðbil í því væri frá 71 til 79 krónur á hlut. Miðpunktur þess reiknaði að virði bankans væri 150 milljarðar króna, en eigið fé bankans er 185 milljarðar króna. Nú er ljóst að virði bankans verður vel umfram það enda eftir­spurn eftir bréfum langt umfram framboð. Þar þykir ráða mestu að bréfin teljast ódýr, sérstak­lega í saman­burði við gengi bréfa í Arion banka, hinum kerfis­lega mikilvæga bankanum sem skráður er á markað.

Lífeyris­sjóður verslunar­manna, Gildi, Capital World Invsestors og RWC Asset Management hafa þegar skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu prósent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hlutafjár­útboði bankans og verða svokallaðir hornsteins­fjárfestar. Búist er við mikilli þátttöku almennings í útboðinu þar sem að hægt er að skrá sig fyrir mjög litlum hlutum.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahags­ráðherra og formaður Sjálfstæðis­flokksins, sagði í maí að hann vilji selja það sem eftir mun standa af eignar­hlut Íslands­banka við fyrsta tækifæri á næsta kjör­tímabili. Ríkið er skuld­bundið samkvæmt skilmálum hlutafjár­útboðsins að selja ekki fleiri hluti í hálft ár eftir fyrstu sölu. Bjarni sagði við Frétta­blaðið í síðasta mánuði: „Ef ég fengi einhverju um það ráðið þá myndum við klára þennan áfanga og við myndum nota fyrsta tækifæri á nýju kjör­tímabili til að halda áfram að losa okkur við eignar­hluti í bankanum.“ Það verði verkefni næsta kjör­tímabils.

Bjarni sagðist líka vilja selja 35 til 50 prósent hlut í Lands­bankanum, sem ríkið á líka. Sá hlutur sem ríkið myndi halda væri til þess fallið að tryggja að á Íslandi yrði áfram höfuð­stöðvar banka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár