Fjórir búnir að skuldbinda sig til að kaupa 10 prósent í Íslandsbanka

Íslands­banki tilkynnti fyrr í dag að útboð bankans hæfist klukkan 9 í morgun og að því lyki á þriðjudaginn í næstu viku. Tveir íslenskir lífeyris­sjóðir og tveir erlendir fjár­festar hafa skuld­bundið sig í að kaupa 10 prósent í bankanum.

Lífeyris­sjóður verslunar­manna, Gildi, Capital World Invsestors og RWC Asset Management hafa skuld­bundið sig til að kaupa um það bil tíu prósent af öllu útgefnu hlutafé Íslands­banka í hlutafjár­útboði bankans sem hófst í morgun.

Þetta kemur fram í útboðs­lýsingu bankans, sem birtist fyrr í dag. Hlutafjár­útboðið hófst kl. 9 í morgun og mun það standa til hádegis þriðjudaginn 15. júní. Bankinn getur selt allt að 35 prósent af hlutafé sínu á 71 til 79 krónur á hlut, samkvæmt tilkynningu á útboðsvef bankans.

Miðpunktur hins leiðandi verðbils er að virði bankans sé 150 milljarðar króna, en eigið fé bankans er 185 milljarðar króna. Því eru 0,81 krónur af hlutafé fyrir hverja krónu af eigin fé.

Af þeim allt að 636 milljónum hluta sem ríkið getur selt hefur Capital World Investors skuld­bundið sig til að kaupa 77 milljónir hluta og RWC Asset Management LLP 31 milljónir hluta. Sömuleiðis ætla Gildi Lífeyris­sjóður og Lífeyris­sjóður verslunar­manna hvorir um sig að kaupa 46 milljónir hluta. Samanlagt hafa þessir fjórir fjár­festar því skuld­bundið sig í að kaupa um það bil 10 prósent af hlutafé bankans.

Áætlað er að það náist að selja fyrir 42,6 milljarða króna út frá útboðinu, að því gefnu að útboðs­verð verði í miðpunktinum á verð­bilinu og að fjöldi hluta­bréfa sem seld verði sé á milli 25 prósent og 31,8 prósent af útgefnum hlutum í bankanum og að heimild til að selja fleiri hlutabréf sé ekki nýtt. Áætluð þóknun af sölunni nemur 1,4 milljörðum króna og því er búist við að ríkið fái um 41,3 milljarða króna fyrir útboðið.

Allt hlutafé sem selt verður í útboðinu er sölu­tryggt. Í íslenskri samantekt á útboðs­lýsingunni segir: „Fáist ekki kaupendur samkvæmt framan­greindu verða hlutir seldir til sölu­ráðgjafanna og sérhver þeirra hefur samþykkt að útvega kaupendur í samræmi við neðan­greint. Takist það ekki, hefur hver sölu­ráðgjafi samþykkt að kaupa af seljanda, eftir atvikum, hlutfall hlutanna sem seldir verða eins og þeir eru tilgreindir í neðan­greindu yfirliti.“ Yfirlitið má sjá á mynd hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár