Paradísarskjölin skekja heim hinna ríku

Nýr gagnaleki hefur nú átt sér stað en 13.4 milljónum skjala hefur verið lekið og 96 frétta­miðlar í 67 löndum fjalla nú um þau. Englands­drottning er meðal þeirra sem eru í skjölunum.

Milljónir punda úr einkabúi Englands­drottningar hafa verið settar á reikning á Cayman-eyjum sem er hluti af aflands­eignasafni sem aldrei hefur verið greint frá fyrr, samkvæmt skjölum sem litu dagsins ljós í rannsókn á skatta­paradísum utan við landsteinana.

Þetta kemur fram í frétt The Guardian.

Skrár úr umfangs­miklum leka sýna í fyrsta sinn hvernig drottningin, fyrir milli­göngu hertoga­dæmisins af Lancaster, hefur átt og á enn fjár­festingar í gegnum sjóði sem hafa sett fé í ýmiss konar fyrirtæki, þar á meðal keðjuna Threshers og sölu­fyrirtækið BrightHouse, sem hefur verið gagnrýnt fyrir að færa sér í nyt neyð þúsunda fátækra fjöl­skyldna og berskjaldaðs fólks.

Hertoga­dæmið viðurkenndi að hafa ekki haft neina hugmynd um 12 ára langa fjár­festingu sína í BrightHouse þar til blaðið The Guardian kom að máli við það ásamt öðrum samstarfs­aðilum í alþjóð­legu verkefni sem nefnist Paradísar-skjölin.

Ísland smátt í Paradísarskjölum

Reykjavik Media fjallar um lekann og segir í frétt miðilsins að nöfn nokkurra tuga íslendinga sé að finna í þeim 13.4 milljónum skjala sem 96 frétta­miðlar í 67 löndum byrja að fjalla um í kvöld. Paradísar­skjölin eins og þau eru kölluð veiti innsýn í skatta­paradísir víða um heim um það hvernig efnað fólk og alþjóðleg stór­fyrirtæki nýta sér glufur í kerfinu til borga minni skatta eða fela eignir sínar. „Skjölin koma innan úr lögfræði­stofunni Appleby á Bermúda eyjum og innan úr Asiaciti sjóðnum í Singapúr. Í skjölunum eru einnig upplýsingar úr 19 fyrirtækja­skrám á þekktum lágskatta­svæðum eins og Möltu, Bermúda og Cayman eyjum. Það var þýska blaðið Süddeutsche Zeitung sem komst yfir gögnin og deildi með alþjóð­legum samtökum rannsóknar­blaðamanna, ICIJ, Reykjavik Media og 96 fjöl­miðlum í 67 löndum,“ segir í frétt RM.

Einnig segir að ólíkt Panama­skjölunum sé Ísland smátt í þessum gagnaleka. Nöfn Íslendinga sé að finna í gögnunum frá Appleby og einnig í fyrirtækja­skrá Möltu. Ekki hafi fundist nöfn íslenskra stjórn­málamanna í gögnunum en þar sé hinsvegar að finna nöfn 126 stjórn­málamanna frá 47 löndum.

Af norður­löndunum sé Ísland með fæstu nöfnin í gögnunum en Norðmenn flest eða um eitt þúsund. Frétta­skýringa­þátturinn Kveikur á RÚV mun fjalla um nokkur íslensk nöfn sem fundust í gögnunum næst­komandi þriðjudag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár