Kosningastjóri hættir á Facebook

Kosn­inga­stjóri Fram­sókn­ar­flokks­ins kall­aði hæl­is­leit­anda þræla­hald­ara og mellu­dólg og lagði til að rétt­indi útlend­inga til per­sónu­verndar yrðu skert

Svanur Guð­munds­son, kosn­inga­stjóri Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum, hefur yfir­gefið Facebook eftir storma­saman dag á sam­fé­lags­miðl­inum. Ummæli Svans um að hæl­is­leit­and­inn Tony Omos væri þræla­hald­ari og mellu­dólgur vöktu mikla athygli, rétt eins og Stundin greindi frá í morgun, en rétt er að taka fram að Tony hefur aldrei verið ákærður fyrir brot af þessu tagi. Þá stakk Svanur upp á því að útlend­ingar yrðu sviptir þeirri vernd sem lög um per­sónu­vernd og með­ferð per­sónu­upp­lýs­inga veita. Ýmsir hafa for­dæmt ummælin. 

Uppfært kl. 23:55: Svo virð­ist sem Svanur sé hættur við að hætta á Facebook. Hann er mættur aftur til leiks en hefur þó fjar­lægt umdeilda færslu sína um hæl­is­leit­and­ann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

2
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár