Landssamband veiðifélaga: Sé nægum þrýstingi beitt víkur umhverfisvernd

Lands­samband veiði­félaga lýsir furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að leggja fram umsögn um frumvarp sjávar­útvegs- og land­búnaðar­ráðherra um breytingu á fiskeldis­lögum sem samþykkt var á Alþingi í gærkvöldi.

Lands­samband veiði­félaga lýsir yfir vonbrigðum með þá niður­stöðu Alþingis að breyta fiskeldis­lögum þannig að opnað sé á möguleika ráðherra til að gefa út rekstrar­leyfi til bráðar­birgða til allt að 20 mánaða. Þetta kemur fram í frétta­tilkynning frá sambandinu í dag.

Lýsir Lands­sambandið einnig furðu sinni á því að hafa á engu stigi fengið að leggja fram umsögn um umrædda laga­setningu. „Af umræðum undan­farna daga verður að teljast líklegt að þessi heimild verði notuð til að draga úr áhrifum úrskurða sem eru umhverfinu í hag,“ segir í tilkynningunni.

Frumvarp Kristjáns Þórs Júlíussonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra var samþykkt á Alþingi í gærkvöldi en sam­­kvæmt því mun verða mög­u­­legt að veita rekstr­­ar­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eldi. Ástæðan fyrir frum­varpinu er sú að Úrskurð­­ar­­nefnd umhverf­is- og auð­linda­­mála felldi úr gildi rekstr­­ar­­leyfi og starfs­­leyfi Fjarð­­ar­­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­­reks­­firði og Tálkna­­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­­ar­á­hrifa.

Lands­samband veiði­félaga spyr sig hvort málum sé virkilega þannig komið að sé nægjanlegum þrýstingi beitt víki reglur um umhverfis­vernd. „Lands­samband veiði­félaga minnir á að ekki eru liðnir nema nokkrir mánuðir síðan kynntar voru hugmyndir Hafrannsóknarstofnunar um 3.000 tonna „tilrauna­eldi“ í Ísafjarðar­djúpi. Virðist það vera gert gagngert til að komast framhjá áhættu­mati um erfða­mengun sem hafði í raun lokað fyrir eldi frjórra norskra laxa í Djúpinu. Stuttu áður hafði álit Skipulags­stofnunar, sem lagðist gegn eldi frjórra laxa, verið dregið til baka eftir mikinn pólitískan þrýsting.

Eftir „velheppnaða“ herferð Lands­sambands fisk­eldisstöðva gegn úrskurði Úrskurðar­nefndar auðlinda- og skipulags­mála má búast við að eldi frjórra laxa í Djúpinu verði næsta markmið, ásamt frekari tilslökunum á lögum um fiskeldi. Lands­samband veiði­félaga hvetur unnendur íslenskrar náttúru til þess að vera sérstak­lega á verði gagnvart frekari tilslökunum á reglum er varða umhverfis­vernd. Einnig þeirri tilhneigingu, að sé nægu pólitískum þrýstingi beitt víki umhverfis­verndin alltaf,“ segir í tilkynningunni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár