Dugleysi stjórnmálamanna að tala um náttúruvernd einungis á tyllidögum

Björt Ólafs­dóttir, fyrr­ver­andi umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir það örg­ustu hræsni að vinna við það að setja öðrum lög en fara bara eftir þeim eftir eigin hent­ug­leika líkt og nú eigi að gera.

Björt Ólafsdóttir.
Björt Ólafs­dóttir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Björt Ólafs­dóttir, for­maður Bjartrar fram­tíðar og fyrrum umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, gagn­rýnir stjórn­mála­menn harð­lega í aðsendri grein í Frétta­blað­inu í dag. Hún talar um dug­leysið í stjórn­mála­mönn­unum sem tala um vernd líf­ríkis og nátt­úru ein­ungis á tylli­dögum. „Það er sorg­legt og dýr­keypt fyrir lands­menn hvað veður skip­ast hér alltaf fljótt í lofti og það er auð­vitað arg­asta hræsni að vinna við það að setja öðrum lög en fara bara eftir þeim eftir eigin hent­ug­leika líkt og nú á að gera,“ segir hún í grein­inni.

[links]Í gær var frum­varp Kristján Þórs Júl­í­us­sonar sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra sam­þykkt á Alþingi en sam­­kvæmt því mun verða mög­u­­legt að veita rekstr­­ar­­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i. Ástæðan fyrir frum­varp­inu er sú að Úrskurð­­ar­­nefnd umhverf­is- og auð­linda­­mála felldi úr gildi rekstr­­ar­­leyfi og starfs­­leyfi Fjarð­­ar­­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­­reks­­firði og Tálkna­­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­­ar­á­hrifa.

Björt spyr sig í grein­inni hvar þeir séu í póli­tík sem eiga enn ein­hvern snefil af sann­fær­ingu og hug­sjón fyrir því meg­in­stefi í nátt­úru­vernd sem og verndun fjöl­breyti­leika líf­ríkis að vernd­unin sjálf í eðli sínu sé það mik­il­væga. „Ekki fyrir pen­inga hvort sem það séu vasar Norð­manna eða veiði­rétt­ar­hafar lax­veiðiáa. Heldur út af því að við sem erum hér í stutta stund höfum ekk­ert leyfi til þess að skemma hana til fram­búðar. Þessi rök um ábyrgð kyn­slóð­anna hafa reyndar þegar á reynir ekki fleytt nátt­úru­vernd­inni langt á þessum síð­ustu tímum ólíkt því þegar Sigríður í Bratt­holti barð­ist fyrir verndun Gullfoss. En þá eru líka hæg heima­tökin að benda á bullið í við­skipta­mód­el­inu fyrir íslenska skatt­greið­endur sem verða af tugum millj­arða sem þeir norsku fá fyrir leyfin og þau tak­mörk­uðu gæði sem firð­irnir eru,“ segir hún.

Björt hvetur enn fremur Íslend­inga til að læra af for­tíð­inni. „Fyrir nokkrum árum þótti stjórn­mála­mönnum Vinstri grænna olíu­leit og kís­il­málm­ver góðar og grænar hug­myndir ekki síst til þess að styðja við byggð í land­inu. Hættum að láta eins og við vitum ekki að opið sjó­kvía­eldi sé meng­andi. Og hættum að láta eins og störfin þar verði mörg til fram­búðar mitt í því að stjórn­mála­menn tala sig hása um fjórðu iðn­bylt­ing­una og sjálf­virkni­væð­ingu starfa sem verða þar auð­vitað eins og í öðrum sjáv­ar­út­vegi.“

Hún seg­ist skilja vel reiði Vest­firð­inga sem hafa setið eftir. Póli­tíkusar hafi ekki sinnt því að skapa almenn skil­yrði til þess að fjöl­breytt sam­fé­lag megi þar dafna. Það sé gert með hring­teng­ingu raf­magns, vegöngum og styrk­ingu vega­kerfis og ljós­leið­ara og sé það hlut­verk stjórn­mál­anna.

„Ef ráða­menn sam­tím­ans hafa ekki þá sýn að bjóða fólk­inu í land­inu hvort sem það býr á lands­byggð­inni eða í borg að fá að búa heima hjá sér og hafa nóg að starfa án þess í leið­inni að eyði­leggja líf­ríki og nátt­úru, þá á það fólk í stjórn­mál­unum að finna sér eitt­hvað annað að gera,“ segir Björt í grein sinni.

Fleiri en ein ástæða fyrir ógildingu

Björt rekur úrskurð nefnd­ar­innar og bendir á að ástæður ógild­ing­ar­in­anr hafi verið fleiri en sú að stofn­anir umhverf­is­ráðu­neyt­is­ins hafi ekki með nægj­an­legum hætti fjallað um aðra kosti í sinni máls­með­ferð en lax­eldi í sjó, og þar með ekki farið að lögum um mat á umhverf­is­á­hrifum. Hún segir það eitt og sér vera ámæl­is­vert, og bróta gegn lögum, en sé þó fjarri því eina ástæðan sem til­greind er fyrir synjun leyf­anna.

„Fyrir það fyrsta rekur nefndin hvernig meiri­háttar ann­markar hafi verið á allri máls­með­ferð hvað varðar lax­eldi í sjó af hendi íslenskra stjórn­valda í áraraðir. Samkvæmt 2. máls­lið 40. gr. stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins Íslands geta stjórn­völd ekki afhent eignar- eða afnota­rétt að haf­svæði við landið sé ekki fyrir hendi sér­stök laga­heim­ild til hinnar til­teknu ráð­stöf­unar haf­svæð­is­ins. Hún sé ekki til staðar og þannig brjóti leyf­is­veit­ing­arnar almennt gegn stjórn­ar­skránni,“ segir hún.

Í öðru lagi bendir hún á að nefndin hafi til­tekið að Umhverf­is­stofnun hafi ekki tekið afstöðu eins og henni bar lögum sam­kvæmt til fyr­ir­liggj­andi mats á hættu á erfða­mengun villtra laxa vegna lax­eldis, meng­unar í fjörðum og sjúk­dóma í eld­is­fiski á við laxa­lús.

„Í þriðja lagi en ekki í síð­asta lagi fjallar nefndin um þá stað­reynd sem sé einnig ein og sér óhjá­kvæmi­lega umsvifa­laus ógild­ing starfs­leyfa, að fjar­lægð á milli eld­is­svæða ótengdra aðila í þessum máli er ekki sam­kvæmt reglu­gerðum,“ segir hún.

Athuga­semd frá blaða­manni: Eftir ábend­ingu frá les­anda er vert að taka það fram að þessar þrjár ástæður ógild­ingar sem Björt nefnir eru í kafl­anum „máls­rök kærenda“ en ekki í nið­ur­stöðu Úrskurð­ar­nefnd­ar­innar.

Hægt er að lesa úrskurð­ina hér og hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár