Landvernd skorar á ráðherra að virða niðurstöðu Úrskurðarnefndarinnar

Stjórn Land­verndar skorar á sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og umhverfis- og auð­linda­ráð­herra að virða nið­ur­stöðu Úrskurð­ar­nefndar umhverfis- og auð­linda­mála og láta af áætl­unum um laga­setn­ingar sem snúa að úrskurði hennar.

Stjórn Land­verndar telur það mjög alvar­legt fyrir íslenska stjórn­sýslu í umhverf­is­vernd­ar­málum að ráð­herra skuli hlut­ast til um úrskurði Úrskurð­ar­nefndar í umhverfis- og auð­linda­málum.

[links]Þetta kemur fram í áskorun frá Land­vernd á tvo ráð­herra, Guðmund Inga Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra og Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, sem sam­tökin sendu frá sér í dag. 

„Það er ákvörðun og áhætta fyr­ir­tækja að hefja starfs­semi þrátt fyrir aug­ljósa ágalla á henni sem varða við lands­lög, eins og það að kosta­grein­ging fór ekki fram. Réttur umhverf­is­vernd­ar­sam­taka til þess að láta reyna á fram­kvæmda- og starfs­leyfi fyrir starfs­semi sem hefur skað­legar afleið­ingar fyrir umhverfið fyrir óháðum aðila er lít­ils virði þegar ráð­herrar setja lög á úrskurði þessa óháða aðila.

Stjórn Land­verndar skorar á Sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra og Umhverfis- og auð­linda­ráð­herra að virða nið­ur­stöðu úrskurð­ar­nefnd­ar­innar og láta af áætl­unum um laga­setn­ingar sem snúa úrskurði hennar,“ segir í áskor­un­inni. 

[adspot]

Nú standa yfir umræður á Alþingi um nýtt frum­varp sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra en sam­kvæmt því mun verða mögu­legt að veita rekstr­ar­leyfi til bráða­birgða fyrir fisk­eld­i.

Frum­varpið var kynnt á rík­is­stjórn­ar­fundi í gær en í til­kynn­ingu frá ráðu­neyt­inu segir að því sé ætlað að lag­færa ­með almennum hætti ann­marka á lögum um fisk­eldi til fram­tíð­ar. Sá ann­marki birt­ist í því að sam­kvæmt gild­andi lögum sé eina úrræði Mat­væla­stofn­unar, í þeim til­vikum sem rekstr­ar­leyfi fisk­eld­is­stöðvar er fellt úr gildi, að stöðva starf­semi henn­ar.

Úrskurð­ar­nefnd umhverf­is- og auð­linda­mála felldi úr gildi rekstr­ar­leyfi og starfs­leyfi Fjarð­ar­lax og Arctic Sea til lax­eldis í sjó­kvíum í Pat­reks­firði og Tálkna­firði og vís­aði einnig frá beiðni fyr­ir­tækja um frestun rétt­ar­á­hrifa. Sam­tals voru leyfin upp á um 17.500 tonn en sveit­ar­fé­lögin á starfs­svæði fyr­ir­tækj­anna hafa mót­mælt stöð­unni sem komin er upp og kraf­ist aðgerða.

Drög að frum­varp­inu voru sem sagt sam­þykkt á auka­fundi rík­is­stjórn­ar­innar í hádeg­inu í gær og kynnt hinum stjórn­mála­flokk­unum síð­degis í gær. Fyr­ir­tækj­unum Arctic Fis­h og Fjarða­laxi er því gef­inn frestur til að fara yfir umhverf­is­mat fyr­ir­tækj­anna til að tryggja að umsókn þeirra um aukið lax­eldi á sunn­an­verðum Vest­fjörðum verði sam­kvæmt lögum og regl­um. Aðspurður segir Krist­ján Þór frum­varpið ekki fara á svig við úrskurð nefnd­ar­innar um að fella starfs­leyfi fisk­eld­is­fyr­ir­tækj­anna tveggja úr gildi. Hann segir þá ákvörðun vera sjálf­stæða og frum­varpið ekki snerta hennar úrskurð. Frum­varpið flýti ein­fald­lega fyrir ferli máls­ins en bið eftir úrskurði dóm­stóla væri bæði kostn­að­ar­söm og tíma­frek.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár