Þrenn mislæg gatnamót á 5,3 kílómetra kafla

Vega­gerðin áformar að tvöfalda Suður­landsveg frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan Reykja­víkur, um 5,3 kílómetra leið. Byggð verða þrenn mislæg gatnamót og fyllingar settar í Rauðavatn. Framkvæmda­svæðið liggur um friðlýst svæði, fólk­vanginn Rauðhóla.

Möguleg útfærsla fyrir mislæg vegamót við Norðlingavað.
Möguleg útfærsla fyrir mis­læg vega­mót við Norð­linga­vað. Mynd: Vegagerðin/Sigurður Valur

Vega­gerðin, í samvinnu við Reykja­víkurborg og Mosfellsbæ, áformar að tvöfalda Suður­landsveg frá vegamótum við Bæjarháls að Hólmsá ofan Reykja­víkur. Lagður verður 2 + 2 vegur og tengingum fækkað frá því sem nú er. Byggð verða þrenn mislæg vegamót; við Breið­holtsbraut, Norðlingavað og Hafra­vatnsveg. Gerðir verða nýir reið-, hjóla- og göngu­stígar.

Markmið framkvæmdarinnar er að auka umferðar­öryggi allra fararmáta og tryggja greiðari umferð um Suður­landsveg með því að aðskilja aksturs­stefnur. Vegurinn verður tvöfaldaður í allt að fimm áföngum og er framkvæmdinni ætlað að leysa umferðarmál til næstu áratuga.

Þetta kemur fram í tillögu að mats­áætlun fyrir hina fyrir­huguðu framkvæmd sem nú hefur verið auglýst á vef Skipulags­stofnunar.

Framkvæmdinni verður skipt í að minnsta kosti fimm áfanga og í fyrstu tveimur verður vegurinn tvöfaldaður án mislægra vegamóta. Ný akbraut verður lögð að mestu norðan núverandi vegar. Aðlaga þarf tengingar mislægra vegamóta við Bæjarháls og tengingar við hringtorg við Breið­holtsbraut. Við vegamót Breið­holts­brautar er landrými takmarkað og einnig þrengdi bygging bensín­stöðvar Olís að vegsvæði við Rauða­vatnsskóg. Á þeim vegkafla verður lagður vegur með þröngu þversniði.

Við Norðlingavað þarf í fyrri áföngum að tvöfalda hringtorg. Suður­landsvegur liggur síðan á bökkum Bugðu (Hólmsár) austan Norðlinga­holts og verður áhersla á að raska ekki ánni og árbakkanum.

Í áföngum 3 til 5 verða mislæg vegamót byggð við öll vegamótin á kaflanum nema við Heiðmerkurveg.

Árið 2009 gerði verkfræði­stofan EFLA tillögu að mats­áætlun vegna breikkunar Suður­landsvegar sem var samþykkt af Skipulags­stofnun. Í kjölfarið var gerð frummats­skýrsla og nauðsynlegar rann­sóknir tengdar þeirri vinnu voru framkvæmdar. Ekki var farið út í framkvæmdir á þessum tíma og því var frummats­skýrsla ekki send til Skipulags­stofnunar.

Suður­landsvegur er hluti af hringveginum og er aðal­samgöngu­leiðin suður og austur um land. Vegurinn um fyrir­hugað framkvæmda­svæði er ein akrein í hvora átt. Tvöfalt hringtorg er við Breið­holtsbraut og einfalt hringtorg er við Norðlingavað. Bílastæði eru beggja vegna við veg hjá Rauða­vatnsskógi þar sem fjölmargir stöðva og fólk sameinast í bíla fyrir ferðir austur fyrir fjall eða til að fara í göngu­ferðir í Rauða­vatnsskógi og á Hólms­heiði.

Mikil umferð er um veg við Rauðhóla til og frá Heiðmörk og um Hafra­vatnsveg og þurfa vegfarendur oft að sæta lagi til að komast inn á veginn. Nokkur íbúðar- og sumarhús eru sunnan Suður­landsvegar og hefur markvisst verið unnið að því á undan­förnum árum að fækka tengingum og gera þær öruggari. Enn er þó hægt að aka inn á veginn á átta stöðum til viðbótar því sem að ofan er talið.

„Öllu fyrir­huguðu framkvæmda­svæði hefur verið umbylt á undan­förnum áratugum þannig að þar er vart að finna náttúrulegt gróður­lendi eða óhreyfða jarð­myndun,“ segir í skýrslunni. Á svæðinu við Rauðavatn hafa verið lagðir stígar og landið jafnað. Við sunnan­vert vatnið hefur verið fyllt út í það til að koma núverandi Suður­landsvegi fyrir ásamt reiðstíg og göngustíg.

Rauðavatn og nágrenni þess er vinsælt útivistar­svæði. Vatnið hvílir á fremur lekum grágrýtis­grunni og án afrennslis á yfirborði. Vatna­sviðið er um 3 km². Miklar vatnsborðs­sveiflur einkenna vatnið og því er strandsvæði vatnsins lítt gróið. Skógurinn við Rauðavatn, sem gengur undir nafninu Rauða­vatnsstöðin eða Rauða­vatnsskógur er í grunninn einn elsti ræktaði skógur Íslands. Ræktun hófst á svæðinu að tilstuðlan danskra frumkvöðla í skógrækt og land­græðslu árið 1901. Við framkvæmdina verður reynt að skerða hann sem allra minnst, segir í skýrslunni.

Heildar­flatarmál lands sem fer undir mannvirki til viðbótar þeim vegum og stígum sem fyrir eru verður um 40 hektarar og heildarlengd vega sem verða tvöfaldaðir er um 5,3 kíló­metrar. Svæðið er að mestu í eigu Reykja­víkurborgar en nokkur svæði eru í eigu einstaklinga. Nokkuð er um leigu­lóðir, bæði sumar- og heilsárs­húsa.

Helstu áhrif á framkvæmda­tíma felast í beinum áhrifum á því landsvæði sem fer undir veg. Þeir þrír valkostir sem til skoðunar eru fyrir mislæg vegamót við Breið­holtsbraut fela allir í sér fyllingar í Rauða­vatni. Lagt verður mat á umfang og áhrif fyllinga í Rauða­vatni vegna mismun­andi valkosta. Vegfyllingar geta einnig haft áhrif á lífríki. Nýr vegur og mislæg vegamót hafa einnig sjónræn áhrif.

Leita þarf leyfis hjá Umhverfis­stofnun þar sem framkvæmda­svæðið liggur um friðlýst svæði, fólk­vanginn Rauðhóla. Í reglugerð fólk­vangsins segir: „Óheimilt er að gera á svæðinu mannvirki né gera jarðrask, nema leyfi Umhverfis­stofnunar komi til. Eftirlit með fólk­vanginum er í höndum Umhverfis­sviðs Reykja­víkur.“

Allir geta kynnt sér tillöguna og lagt fram athuga­semdir. Athuga­semdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. júní 2020 til Skipulags­stofnunar bréfleiðis eða með tölvu­pósti á skipulag@skipulag.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár