Katrín sagði sig úr uppstillingarnefndinni: „Er ekki handbendi neins“

„Vil ekki að ákvarðanir mínar eftir þing­störfin þvælist fyrir þeim sem nú fara fram,“ skrifar Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda­stjóri Samtaka fjármála­fyrirtækja og fyrr­verandi þingkona og ráðherra Samfylk­ing­ar­innar.

Katrín Júlíusdóttir, framkvæmda­stjóri Samtaka fjármála­fyrirtækja og fyrr­verandi þingkona og ráðherra Samfylkingarinnar til margra ára, sagði sig úr uppstillingar­nefnd vegna framboðs flokksins í Suðvestur­kjördæmi í morgun. 

Stundin greindi frá setu hennar í uppstillingar­nefndinni í gær og spruttu umræður um málið víða á samfélags­miðlum. 

Katrín sagði sig úr nefndinni snemma í morgun og greinir frá því í athuga­semdum á Facebook þar sem rætt hafði verið um málið.

„Ég sagði mig úr nefndinni snemma í morgun. Er með fótgöngu­liða­eðli í mér og fannst sjálfsagt og eðlilegt að nota pólitíska reynslu í flokks­starfi nú þegar lítill tími er til stefnu. Sósíal­demókratinn í mér lifir nefnilega góðu lífi og vildi ég nú bara hjálpa til,“ skrifar Katrín og bætir við: „Er ekki handbendi neins og vil ekki að ákvarðanir mínar eftir þing­störfin þvælist fyrir þeim sem nú fara fram. Eitt atriði sem ég vil nefna er að í SFF eru tæplega 30 fyrirtæki þmt bankarnir sem að 2/3 hluta eru í eigu ríkis og í samtökunum eru einnig spari­sjóðirnir. Væri gaman að eiga efnislegt samtal um þróun þessa umhverfis og markmið við tækifæri. En einblínum nú á fólkið sem er að fara fram í öllum flokkum og ræðum málefnin.“

Katrín var þingkona Samfylkingarinnar á tíma­bilinu 2003 til 2016, iðnaðar­ráðherra frá 2009 til 2012 og fjármála- og efnahags­ráðherra frá 2012 til 2013. Hún hefur svo starfað sem framkvæmda­stjóri Samtaka fjármála­fyrirtækja frá því í nóvember 2016.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár