G7-ríkin munu fjármagna eigin útgáfu af Belti og braut

Sjö ríkustu lýðræðis­ríki heimsins sammæltust um helgina um stofnun nýs innviða- og fjár­festingar­verkefnis sem ætlað er að vera mótsvar við belta- og brautar­verkefni kínverskra stjórn­valda.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, á árlegum fundi G7-ríkjanna um helgina.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, á árlegum fundi G7-ríkj­anna um helg­ina. Mynd: EPA

Leiðtogar G7-ríkjanna hafa ákveðið að stofna fjár­festinga- og innviða­verkefnið B3W, sem mun auðvelda þróunar­ríkjum að sækja sér fjármagn til þess að byggja upp græna innviði og ráðast í samfélags­lega mikilvæg verkefni.

Samkvæmt frétt Reuters um málið sammæltust leið­togarnir um stofnun verk­efnisins á árlegum fundi hópsins, sem stóð yfir um helgina í Cornwall í Bretlandi. Hópurinn inni­heldur sjö ríkustu lýðræðis­ríki heims – Banda­ríkin, Bretland, Kanada, Frakkland, Þýskaland, Ítalíu og Japan – en fulltrúar Evrópu­sambandsins mættu einnig á fundinn.

Joe Biden Bandaríkja­forseti er sagður hafa hvatt ríkin til að veita þróunar­löndum „lýðræðis­legan valkost“ við að þiggja lán frá kínverskum stjórn­völdum í gegnum svokallaða beltis- og brautar­verkefni þeirra.

Kjarninn hefur áður fjallað um beltis- og brauta­verkefnið, en það hefur verið hornsteinn utan­ríkisstefnu Kína frá árinu 2013 undir stjórn forsetans Xi Jinping. Verkefnið nær frá Kína til Evrópu, Austur-Afríku og fjölmargra Asíuríkja og yfirlýst markmið þess eru að auka samskipti milli ríkja. Hins vegar líta stjórn­völd ýmissa vestur­landa á verkefnið sem tól kínverskra stjórn­valda til að auka ítök sín í þróunar­löndum.

Nánir samstarfs­menn Boris Johnson, forsætis­ráðherra Bretlands, kalla B3W verkefni G7-ríkjanna græna útgáfu af Belti og braut, þar sem ríkari lönd hjálpa þróunar­ríkjum að fjármagna grænar fjár­festingar.

Kínversk stjórn­völd hafa gagnrýnt áformin og segja þau að raun­veruleg alþjóða­samvinnu­verkefni ættu að fara fram á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. „Dagarnir sem ákvarðanir í alþjóða­stjórnmálum eru teknar af litlum hópi landa eru löngu liðnir,“ hafði Financial Times eftir talsmanni kínverska sendi­ráðsins í London.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár