Fjárfestar á Wall Street byrjaðir að teikna upp sviðsmyndir um Íransstríð

Hvað getur gerst ef það brjótast út frekari átök vegna spennu milli Banda­ríkjanna og Íran? Getur brotist út stríð á næstunni? Hver verða áhrifin?

Hvað getur gerst ef spennan milli Banda­ríkjanna og Íran magnast upp og stríð brýst út?

Þetta er meðal sviðs­mynda sem fjár­festar á Wall Street eru nú byrjaðir að rýna og draga fram, að því er fram kemur í umfjöllun Bloomberg í dag.

Spjótin beinast meðal annars að því, hvort að stríð - eða vaxandi spenna - geti leitt til þess að olía berst síður um Persaflóa inn á alþjóða­markaði, með tilheyrandi áhrifum á olíuverð.

Um Persaflóa fer um 40 prósent af olíu heimsins, sem flutt er með skipum, inn á heims­markað - frá olíu­lindum miðausturlanda - og því getur stöðvun eða heft skipa­umferð leitt til mikilla vandamála í heiminum og verð­hækkana.

Samkvæmt greiningu stærstu eigna­stýringar heimsins, Black Rock, þá gætu árásir Írans beinst að olíu- og orku­innviðum, þar sem bandarískir hagsmunir eru undir.

Grein­endur annarra stórra fyrir­tækja, meða annars JP Morgan, telja að frekari spenna geti ýtt undir hærra verð á gulli, en það hefur hækkað umtals­vert að undan­förnu.

Mikil spenna er nú á milli Banda­ríkjanna og Írans, eftir að Bandaríkjaher myrti Qasem Soleimani, æðsta hers­höfðingja Írans, með drónaárás sem Donald Trump Bandaríkja­forseti fyrir­skipaði. Þjóðar­öryggisráð Írans hefur lofað hefnd, og má segja að alþjóða­pólitísk samskipti ríkjanna séu nú í frosti. Sameinuðu þjóðirnar munu funda frekar um málið síðar í vikunni, en Trump hefur hótað því að koma í veg fyrir að fulltrúi Íran geti komið til fundarins með því að neita honum um vegabréfs­áritun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár