Fimm gallar í Max vélunum - Verða kyrrsettar lengur en talið var

737 Max vélarnar frá Boeing verða kyrr­settar lengur en talið var að þörf væri á. Nýir gallar hafa fundist í vélunum.

Fimm gallar hafa fundist í 737 Max vélunum frá Boeing, við nákvæma skoðun flugmála­yfirvalda í Evrópu, og standa nú líkur til þess að vélarnar verði kyrr­settar lengur en áður var talið.

Frá þessu greindi Bloomberg í gær, og vitnaði til heimildar­manna sem ekki vildu koma fram undir nafni, en ekki hefur verið greint frá þessum niður­stöðum opinber­lega ennþá.

Meðal galla sem fundist hafa tengjast sjálf­stýringar­búnaði og hinu svonefnda MCAS kerfi, sem á að sporna gegn ofrisi.

Ljóst þykir að viðgerðirnar verða kostnaðar­samar, bæði fyrir Boeing og ekki síður flug­félögin, sem hafa reitt sig á Max vélarnar í leiða­kerfum sínum. Á meðal þeirra flug­félaga er Icelandair, en félagið hefur gefið það út að það sé nú með flota sinn til endur­skoðunar, ekki síst vegna kyrr­setningar á Max vélunum.

Opinberar yfir­lýsingar félagsins gera ráð fyrir kyrr­setningu í það minnsta fram til 15. september, en nú er gert ráð fyrir að mun lengri tíma muni taka að laga Max vélarnar þannig að vélarnar séu öruggar. Nú þegar hefur kyrr­setningin leitt til samdráttar í sæta­framboði, og kostnaðarukningu, en ekki liggur fyrir enn hvort Boeing bæti skaðann af kyrr­setningunni.

Alþjóðleg kyrr­setning tók gildi eftir að Max vél Ethiopian Airlines hrapaði 13. mars, með þeim afleiðingum að allir um borð létust. Áður hafði Max vél hrapað 29. október í Indónesíu, með þeim afleiðingum að allir um borð létust. Samtals létust 346 í þessum tveimur slysum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár