Læknar ítreka að þeim finnst að konur ættu að geta farið í orlof eftir 36 vikur án skerðinga

Fæðinga- og kven­sjúkdóma­læknar telja að konur ættu að hafa rétt til að fara í orlof eftir 36 vikna meðgöngu, án þess að orlof eftir fæðingu skerðist. Starfs­hópur heilbrigðis­ráðherra um stefnu­mótun í barneignar­þjónustu er einróma á sömu skoðun.

Konur ættu að hafa rétt til þess að hverfa frá störfum sínum eftir 36 vikna meðgöngu að mati Félags íslenskra fæðinga- og kvensjúkdómalækna.
Konur ættu að hafa rétt til þess að hverfa frá störfum sínum eftir 36 vikna með­göngu að mati Félags íslenskra fæð­inga- og kven­sjúk­dóma­lækna. Mynd: Pexels

Íslenskir fæðinga- og kven­sjúkdóma­læknar vilja að verðandi mæður hafi rétt til þess að fara í orlof eftir 36 vikur meðgöngu án þess að réttindi þeirra til frekari orlofs­töku eftir fæðingu skerðist. Þetta kemur fram í umsögn Félags íslenskra fæðinga- og kven­sjúkdóma­lækna (FíFK) til Alþingis um endur­skoðun um á lögum og fæðingar- og foreldra­orlof.

„Það er mikið álag á konur á seinni hluta meðgöngu jafnvel þó þær séu í eðlilegri meðgöngu án læknis­fræðilega sjúkdóma eða fylgi­kvilla. Því er mjög algengt að þær leiti til mæðra­verndar og lækna til að fá veikinda­vottorð vegna algengra fylgi­kvilla meðgöngunnar,“ segir í umsögn lækna­félagsins, sem sendi samhljóða umsögn inn í samráðs­gátt stjórn­valda þegar frum­varpið var lagt þar fram í haust.

Engu var þó bætt við í framlögðu frumvarpi félags- og barnamála­ráðherra hvað þetta varðar og er umsögn læknanna því lögð fram óbreytt.

Ekki skylda að hætta að vinna

Félagið segir að það sé „mikilvægt fyrir heilsu barns­hafandi kvenna og réttlætismál að þær hafi rétt til að fara í orlof strax við 36 vikur án þess að réttindi skerðist eftir fæðingu“ og nefnir að á þennan hátt yrðu konur ekki eins þreyttar og gætu betur tekist á við fæðinguna og umönnun barnsins eftir fæðingu.

„Orlofið yrði ekki skylda heldur gætu sumar konur ákveðið að halda áfram í vinnu. Þetta gæti orðið til þess að sumar konur reyndu að halda áfram í vinnu lengur en annars væri ef vissu að þær færu í orlof við 36 vikur,“ segir í umsögninni.

Konur í láglaunastörfum eigi erfiðara með að fara í leyfi

Læknarnir segja að í núverandi kerfi eigi konur mjög mismun­andi auðvelt með að fara í veikinda­leyfi undir lok meðgöngu. „Veikinda­réttindi er mismun­andi og sérlega er talið að konur af erlendu uppruna í láglauna­störfum eigi erfitt með að fara í veikinda­leyfi. Með þessum breytingum myndi jafnast aðstaða kvenna síðast á meðgöngunni. Jafnframt yrði auðveldara fyrir atvinnu­rekendur að skipuleggja afleysingu fyrir þungaða konu,“ segir í umsögninni.

Ísland ætti að veita þennan rétt eins og Noregur og Danmörk

Í umsögn FíFK er bent á að í Noregi og Danmörku séu svipuð ákvæði um rétt kvenna til að hætta vinnu við 36 vikna meðgöngu. „Við teljum að íslenskar konur eigi ekki síður en kynsystur þeirra á norður­löndunum að hafa rétt á að hætta vinnu við 36 vikur,“ segja læknarnir, sem víkja einnig að því í umsögn sinni að ef þessi breyting yrði gerð myndi álag á lækna og ljósmæður minnka, en þar er átt við að í dag séu læknar að sinna kvörtunum frá og vottorða­skrifum fyrir konur sem hafi eðlileg einkenni meðgöngu.

Starfshópur Svandísar um fæðingarþjónustu á sömu skoðun

Formaður félagsins, Alexander K. Smárason, skrifar undir umsögnina. Hann nefnir í niðurlagi hennar að hann hafi starfað í þver­faglegum starfs­hópi Svandísar Svavars­dóttur um stefnu­mótun í barneignar­þjónustu, sem skipaður var í lok árs 2019.

Alexander skrifar að það hafi verið sameiginlegt mat allra í starfs­hópnum að stefna ætti að því að konur á Íslandi hafi rétt til að fara í meðgöngu­orlof eða fæðingar­orlof frá 36 vikum án þess að það skerti orlof eftir fæðingu og að þetta álit myndi koma fram í væntanlegri skýrslu hópsins til heilbrigðis­ráðherra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár