Lárus Welding, fyrrverandi forstjóri Glitnis, gefur út bókina „Uppgjör bankamanns“

Fyrr­verandi forstjóri Glitnis gefur í lok viku út bók þar sem hann gerir upp rúmlega áratuga langa baráttu sína við réttar­kerfið á Íslandi. Hann var ákærður í fjórum málum og sakfelldur í tveimur þeirra.

Lárus Welding þegar hann var stýrði Glitni.
Lárus Welding þegar hann var stýrði Glitni. Mynd: Glitnir

Lárus Welding, fyrr­verandi forstjóri Glitnis banka, hefur skrifað bók sem ber heitið „Uppgjör banka­manns“ og kemur út í lok þessarar viku. Greint er frá þessu í Morgun­blaðinu í dag. Þar segir að í kynningu á bókinni segi að það hafi ekki legið fyrir þegar Lárus var ráðinn forstjóri Glitnis að „fram undan væri rúmlega áratugar löng barátta í íslenska réttar­kerfinu þar sem ákæru­valdið gekk mjög hart fram á meðan Lárus gaf allt sitt í vörnina“.

Um er að ræða fyrstu bókina sem æðsti stjórn­andi eins þeirra banka sem féllu í banka­hruninu haustið 2008 gefur út. Áður höfðu stórir eigendur slíkra banka þó gefið út bækur þar sem þeir lýsa sinni hlið. Þar er um að ræða Jón Ásgeir Jóhannesson, fyrr­verandi aðal­eiganda Glitnis sem gaf út bókina „Málsvörn“ í byrjun árs í fyrra, og Björgólf Thor Björgólfsson, sem gaf út „Billions to Bust – and Back“ alþjóð­lega árið 2014.

Lárus var ákærður í fjórum hrunmálum. Hann var sýknaður í svokölluðu Vafnings­máli í Hæstarétti í febrúar 2014 en sakfelldur í markaðs­misnotkunar­máli gagnvart nokkrum stjórn­endum Glitnis í héraðs­dómi í mars 2018 og áfrýjaði ekki þeirri niður­stöðu. Þá var hann endanlega sýknaður í svokölluðu Aurum-máli í Lands­rétti í október 2018 en sakfelldur í svokölluðu Stím-máli í Lands­rétti í júní 2020. Síðasti dómurinn í hrunmáli gegn Lárusi féll því næstum tólf árum eftir að Glitnir féll í október 2008.

„Íslendingar, einir þjóða, fóru markvisst á eftir starfsmönnum bankanna“

Lárus sætti gæslu­varðhaldi um tíma á árinu 2011 eftir að hafa verið hand­tekinn í tengslum við meint brot í tengslum við störf hans hjá Glitni. Upphaf­lega var hann dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir hlut sinn í Stím málinu og í héraði fékk hann eins árs dóm fyrir Aurum-málið, en refsiramminn fyrir efnahags­brot er sex ár. Þegar þriðja niður­staðan féll á fyrsta dómstigi, í markaðs­misnotkunar­málinu, var honum því ekki gerð frekari refsing. Þeirri niður­stöðu ákvað Lárus að una.

Hann var svo, líkt og áður sagði, sýknaður í Lands­rétti í Aurum málinu og þegar Lands­réttur dæmdi hann sekan í Stím-málinu var fimm ára refsing hans gerð skilorðs­bundin þar sem mála­reksturinn hafði dregist úr hömlu. Því var Lárusi á endanum ekki gert að sæta fangelsis­vist utan þess tíma sem hann sat í gæslu­varðhaldi.

Lárus var einungis þrítugur þegar hann var ráðinn forstjóri Glitnis vorið 2007. Hann hafði áður starfað sem framkvæmda­stjóri hjá Lands­banka Íslands í London og hjá Íslands­banka-FBA.

Í frétt Morgun­blaðsins um útgáfu bókarinnar kemur fram hún gefi mikils­verða sýn þeirra sem störfuðu í fjármála­kerfinu og að Lárus varpi ljósi á efnahags­hrunið og tengsl þess við hina alþjóð­legu fjármála­kreppu. „Í bókinni fjallar Lárus um ýmislegt sem aflaga fór innan íslenska réttar­kerfisins í tengslum við eftirleik hrunsins en Íslendingar, einir þjóða, fóru markvisst á eftir starfs­mönnum bankanna. Fram kemur í bókinni að Lárus hafði réttar­stöðu sakbornings í rúman áratug. Hann segir þar frá upplifun sinni af því þegar hann sætti gæslu­varðhaldi, hlerunum, húsleitum, margra vikna yfirheyrslum og loks fjórum ákærum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár