Starfsmaður forsetaembættisins var sendur í leyfi fyrir kynferðislega áreitni

Forseti Íslands kallar athæfi starfs­manns embættisins „óþolandi“ í yfir­lýsingu. Viðkomandi gerðist sekur um kynferðis­lega áreitni í opnu rými og „annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt.“

Bessastaðir.
Bessa­staðir. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Starfs­maður embættis forseta Íslands var sendur í leyfi og fékk skriflega áminningu frá forseta­ritara vegna athæfis sem hann sýndi af sér í vinnu- og námsferð starfs­manna embættisins til Parísar 13.-16. september síðastliðinn. Starfs­manninum hefur hins vegar verið leyft að snúa aftur til starfa eftir að beðið hlut­aðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræði­aðstoðar.

Í yfir­lýsingu frá Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, segir: „Í ferðinni varð einn starfs­maður embættisins sekur um óþolandi athæfi gagnvart tveimur í ferða­hópnum, kynferðis­lega áreitni í opnu rými og annað háttalag sem aldrei verður fallist á að afsaka megi á nokkurn hátt. Eftir heimkomu greip embættið til viðeigandi aðgerða, meðal annars með hliðsjón af stefnu og áætlun Stjórnar­ráðsins gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Um leið og ég varð áskynja um það ólíðandi athæfi sem viðhaft var aflaði ég mér allra mögulegra upplýsinga, meðal annars með viðtölum við alla þá sem málið varðaði. Starfs­maðurinn fór í leyfi og forseta­ritari veitti honum skriflega áminningu.“

Í yfir­lýsingu Guðna segir enn fremur að starfs­manninum hafi auk þess verið gert ljóst að ekki yrði látið þar við sitja. „Í fram­haldinu hefur viðkomandi starfs­maður beðið hlut­aðeigandi afsökunar og leitað sér sérfræði­aðstoðar. Þeir aðilar sem brotið var gegn ‒ ágætt samstarfs­fólk mitt ‒ hafa í öllu ferlinu verið upplýstir um stöðu og þróun mála og hafa fallist á þær ákvarðanir sem teknar hafa verið, án þess auðvitað að þurfa að bera að nokkru leyti ábyrgð á brotum sem þeir þurftu að þola. Formlegu ferli málsins er þannig lokið með samþykki allra þeirra aðila sem málið varðar og starfs­manni var heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum.“

Tilefni yfir­lýsingar forsetans er frétt sem birtist á vef Frétta­blaðsins fyrr í dag þar sem greint var frá því að tvær kvartanir hefðu borist til embættis forseta Íslands vegna ámælis­verðrar hegðunar starfs­mann skrif­stofu hans gegn samstarfs­konum. Þar sagði að annað atvikið hefði átt sér stað í París en hitt hér á landi.

Örnólfur Thorsson forseta­ritari vill ekki tjá sig meira um málið í samtali við Kjarnann. „Yfir­lýsing forsetans er það sem við höfum að segja um málið,“ segir hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár