Sakar forsætisráðherra Bretlands um lögbrot

Vigdís Hauks­dóttir, lögfræðingur og formaður fjár­laganefndar, segir David Cameron hafa farið á svig við lög með skatta­undanskotum. Þá telur hún að haturs­menn Sigmundar Davíðs ætli nú að hrekja Ólaf Ragnar af Bessa­stöðum.

„Ég meina, David Cameron situr áfram þrátt fyrir að hafa í raun og veru gerst sekur um lögbrot,“ sagði Vigdís Hauks­dóttir, lögfræðingur og formaður fjár­laganefndar, í viðtali á Útvarpi Sögu í dag. Þá fullyrti hún að sömu öfl og hefðu hrakið Sigmund Davíð Gunnlaugsson, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, frá völdum vegna framgöngu hans gagnvart kröfu­höfum gerðu nú harða hríð að Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands. „Nú er forsetinn undir smásjánni, áhlaup á hann,“ sagði Vigdís og bætti við að þeir sem haft hefðu horn í síðu Ólafs vildu fyrir alla muni losna við hann af Bessa­stöðum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár