Kostnaður umfram spár, en eiginfjárstaða betri en á horfðist

Mikið þarf til að tekju- og kostnaðar­áætlanir Icelandair fyrir árið 2021 haldist, en rekstrar­kostnaður félagsins var töluvert hærri en það gerði ráð fyrir í hlutafjár­útboðinu sínu. Þó er lausafjár­staða flug­félagsins betri en búist var við.

Rekstrar­kostnaður Icelandair á milli júlí­mánaða 2020 og 2021 var 27 prósent umfram spár félagsins í fjárfesta­tilkynningu sinni samhliða hlutafjár­útboðinu sínu í fyrra­haust. Þrátt fyrir að rekstrar­tekjur félagsins á nýliðnum ársfjórðungi hafi aukist töluvert þurfa þær að hækka um fimmtung á síðustu mánuðum þessa árs til að standast eigin spár.

Þurfa enn meiri tekjuvöxt

Samkvæmt nýbirtu árshluta­uppgjöri Icelandair námu rekstrar­tekjur félagsins alls 258 milljónum Bandaríkja­dala á þriðja ársfjórðungi, eða um 33 milljörðum íslenskra króna. Þetta eru langmestu tekjurnar sem flug­félagið hefur fengið af starfsemi sinni frá árinu 2019, en þær eru rúmlega tvöfalt meiri en tekjurnar á sama tímabili í fyrra og rúmlega þrefalt meiri en þær voru á öðrum fjórðungi þessa árs.

Þó þurfa tekjurnar að vaxa enn meira til að flug­félagið standist spárnar sem það setti fram samhliða hlutafjár­útboðinu sínu í fyrra. Samkvæmt þeim var búist við að heildar­tekjur vegna rekstrar samstæðunnar Icelandair Group myndu ná 637 milljónum dala í ár, eða um 82 milljörðum í ár, en til þess að það markmið náist þurfa rekstrar­tekjur hennar að aukast um 20%. Tekju­þróunina eftir ársfjórðungum má sjá á mynd hér að neðan.

Skuldar 3,5 milljarða í frestaðar tekjuskattgreiðslur

Í fjárfesta­kynningu sinni í fyrra kynnti Icelandair einnig spár um rekstrar­kostnað félagsins á milli júlí­mánaða 2020 og 2021. Líkt og myndin hér að neðan sýnir var kostnaðurinn hins vegar umfram spár í hverjum ársfjórðungi, en hann var alls vanmetinn um 27 prósent á tíma­bilinu.

Á nýliðnum ársfjórðungi jókst rekstrar­kostnaður félagsins svo töluvert, eða úr 114 milljónum Bandaríkja­dala í 217 milljónir dala. Búist er við að kostnaðurinn aukist nokkuð á næsta ári, en líkt og Icelandair greinir frá í uppgjörinu sínu mun félagið byrja að greiða upp frestaðan tekju­skatt starfs­manna sinna í byrjun næsta árs. Alls skuldar félagið 26,8 milljónir Bandaríkja­dala, eða um 4,5 milljarða króna, ríkissjóð fyrir frestaðar tekjuskatts­greiðslur.

Lausafjárstaða betri en á horfðist

Þrátt fyrir að áætlaður rekstrar­kostnaður félagsins hafi verið vanmetinn og að mikið þurfi til svo að spár um rekstrar­tekjur haldist hefur lausafjár­staða Icelandair batnað töluvert. Ef ríkis­ábyrgð á lánum félagsins er talin með nemur lausafjár­staðan nú 454 milljónum Bandaríkja­dala, eða um 58,7 milljörðum króna.

Staðan hefur batnað um 123 milljónir dala frá síðasta ársfjórðungs­uppgjöri. Samkvæmt áætlunum Icelandair var búist við að eiginfjár­staðan, að ríkis­ábyrgðinni meðtalinni, myndi einungis nema 217 milljónum Bandaríkja­dala, eða um 28 milljörðum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár